Hús við Eyrarlandsveg

Þessi dægrin legg ég dálítið stund á það að gera færslur síðunnar aðgengilegar á fljótvirkan hátt með því að raða þeim upp eftir götum. Þetta hjálpar mér að sjá hvaða hús ég hef þegar tekið fyrir en einnig er ágætt að líta á sum þessi skrif aftur, því sum hef ég ekki lesið frá því ég birti þau hér. Oftar en ekki eru þau uppfull af alls konar ásláttar- og málfarsvillum sem ég veitti enga athygli fyrst. En hér eru færslur um hús við Eyrarlandsveg.

Eyrarlandsvegur er ein af þessum áberandi og glæsilegu eldri götum Akureyrar,
heitir eftir stórbýlinu 
Eyrarlandi  sem lagði til stóran hluta bæjarlands Akureyrar sunnan Glerár. Gatan liggur frá Akureyrarkirkju og klífur á brekkubrúninni til suðurs uppá barma Barðsgils ofan  Samkomuhússins og heldur svo áfram framhjá Menntaskólanum og Lystigarðinum að Sjúkrahúsinu, þar sem Spítalavegurinn steypist niður í Innbæinn. 

Eyrarlandsvegur 8 (Æsustaðir) (1906)

Eyrarlandsvegur 12 (1923)

Eyrarlandsvegur 14 (1928)

Eyrarlandsvegur 16 (1928)

Eyrarlandsvegur 20 (1926)

Eyrarlandsvegur 22 (1926)

Eyrarlandsvegur 24 (1925)

Eyrarlandsvegur 25 (1970, Barð 1899-1969)

Eyrarlandsvegur 26 (1911)

Eyrarlandsvegur 27 (1928)

Eyrarlandsvegur 29 (1923)

Eyrarlandsvegur 31 (1923)

Eyrarlandsvegur 33 (1971)

Eyrarlandsvegur 35 (Fagrastræti 1) (1915)

Eftirfarandi byggingar standa einnig við Eyrarlandsveg:

Sigurhæðir (1903)

Gamli Skóli (1904) og Fjósið (1905)

Akureyrarkirkja (1940)

telst einnig standa við Eyrarlandsveg. Við Eyrarlandsveg 19 stóð einnig húsið Rósinborg en sökum þess að það var rifið rúmum 12 árum áður en ég fæddist hef ég ekki tekið mynd af því wink. Hér sést það hins vegar á mynd á myndasíðu Rúnars Vestmann. Barð hét einnig lítið hús sem stóð á Eyrarlandsvegi 25.

Meðalaldur þeirra húsa sem nú standa við Eyrarlandsveginn árið 2015 er 89,7 eða tæp 90 ár 


Bloggfærslur 10. maí 2015

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • PA040027
  • IMG 1503
  • IMG 1501
  • IMG 1500
  • P8291011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 18
  • Sl. sólarhring: 35
  • Sl. viku: 435
  • Frá upphafi: 417804

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 245
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband