Hús dagsins: Hafnarstræti 19

P5290055Hafnarstræti 19 var reist á vegum Höepfnersverslunar (sjá Hafnarstræti 20) árið 1913. Húsið er tvílyft steinhús með háu risi og miðjukvisti og er með fyrstu steinsteypuhúsum á Akureyri. Eitt  einkenni margra elstu steinsteypuhúsanna eru bogadregnir gluggar, en þannig gluggar eru einmitt á húsinu. Bogadregnir gluggar eru einnig á Ósi (102) og Gömlu fiskbúðinni (95) og einnig á Gefjunarhúsinu (byggt 1907, rifið 2007). Húsið var upprunalega vörugeymsla og greinilega hefur mikið þurft að hífa þunga hluti upp í ris, sbr. dyr á kvisti og krana. Húsið hefur gegn um tíðina þjónað sem verslunar- og eða geymsluhúsnæði, þar er verslun í dag. Húsið stóð um nokkurt skeið ónotað en  árin 2006-07 var húsið tekið til gagngerra endurbóta bæði að utan og innan og er nú til mikillar prýði. Þessa mynd tók ég sl. laugardag, 29.5.2010.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sumarliði Einar Daðason

Það er ánægjulegt að sjá hversu vel hefur verið staðið að endurgerð þessa húss miðað við það sem áður var.

Sumarliði Einar Daðason, 6.6.2010 kl. 12:58

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Heldur betur sammála, það er allt annað að sjá þetta hús heldur en fyrir t.d. 5-10 árum. Gott dæmi um það þegar endurgerð húss tekst frábærlega.

Arnór Bliki Hallmundsson, 7.6.2010 kl. 18:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • PA040027
  • IMG 1503
  • IMG 1501
  • IMG 1500
  • P8291011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 7
  • Sl. sólarhring: 86
  • Sl. viku: 424
  • Frá upphafi: 417793

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 237
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband