Hús dagsins: Norðurgata 6

P9100043

Norðurgötu 6 reisti Metúsalem Jóhannsson árið 1898 á lóð þess sem hann fékk á horni Norðurgötu og "fyrirhugaðrar þvergötu" sem síðar fékk nafnið Gránufélagsgata. En húsið er einlyft timburhús á háum steinkjallara og með portbyggðu háu risi og klætt steinblikki. Miðjukvistur er á húsinu framantil fyrir miðju og er þetta ein algengasta gerð lítilla timburhúsa frá ofanverðri 19.öld. Einhvers staðar heyrði ég að líklega hefði húsið verið hækkað upp og steyptur undir það nýr kjallari en það var gert með húsin skáhallt á móti, Norðurgötu 11 og 13 uppúr 1920. Þá er líklegt að steinblikk hafi verið sett á húsið um svipað leiti en sú klæðning fór að berast hingað á því bili. Eftir 1910 voru flest timburhús nefnilega varin með járni eða steinskífu í færri tilfellum en brunarnir miklu sátu fast í mönnum og þetta ein öflugasta eldvörn þessa tíma. Það er, að ef kviknaði í, þá brynni aðeins eitt hús í stað sjö eða tíu. Á baklóð hússins stóð einlyft smáhús með lágu risi, óvíst með byggingarár en því var breytt í íbúð 1922 af Guðrúnu Jónsdóttur en þá var eigandi hússins Sölvi Halldórsson. Bakhúsið, Norðurgata 6b var lengst af íbúðarhús en það var rifið um 1996.  Sú lóð stóð um nokkurra ára skeið auð og í órækt eftir að húsið var rifið en var fyrir fáeinum árum aftur sameinuð við lóð framhússins. Norðurgata 6 er sennilega það hús í þessari þrenningu 2-6 sem minnst hefur verið breytt frá upphafi en öll eru húsin sviplík að framanverðu en á nr. 2 hefur risi verið lyft að aftan og það hefur einnig verið gert á nr.4 ásamt viðbyggingu bakatil. Húsið er í góðri hirðu og hefur líkast til alla tíð verið vel við haldið, það er t.d. nýmálað síðan síðsumars 2013.  Umhverfi hússins er einnig einkar áhugavert en  þar hafa núverandi eigendur, Sigurvin Jónsson og Perla Fanndal sett upp mikinn og stórglæsilegan búgarð; þarna er eitt alstærsta og veglegasta hænsna-og fuglabú á Akureyri auk töluverðrar ræktunar í gróðurhúsum. Þessi mynd er tekin í morgunsólinni þann 10.september síðastliðin.

Áður hef ég fjallað um hina skemmtilegu röð við Norðurgötu 2-6 hér:

http://www.arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/1109607/

http://www.arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/958152/

Heimildir:  Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta eru skemmtileg og fróðleg blogg hjá þér, sem hafa örugglega talsvert sögulegt gildi og ná til fleiri en húsakannanir ofan í skrifborðskúfumm ráðhussins.. Allavega er gaman fyrir húsagruskara eins og mig að fylgjast með og fræðast. Hef skoðað flest þessara húsa raunar í leit að fyrirmyndum m.a.

Ég er þó ekki sérlega dyggur við endurgerðir á upprunalegum grunni og þykist vera að gefa húsum hér á siglufirði nýja reisn og virðingu í norrænum anda. Það virðist allavega vekja ánægju.

Hér hefur lengi staðið til að gera húsakönnun og mikil þörf á að meta sögulegt gildi húsa, ástand þeirra og hugsanlegar takmarkinir á nálgun við endurgerð. Það virðast þó vera orðin tóm, sem dukka upp um kosningar og síðan ekki söguna meir.

Jón Steinar Ragnarsson, 10.12.2013 kl. 02:56

2 identicon

Vel gert vinur

Sigurvin Jónsson (IP-tala skráð) 10.12.2013 kl. 10:37

3 identicon

Flott hjá þér. Ég á einhversstaðar afrit af leigusamningi varðandi lóðina 6b og mig minnir að hann sé síðan 1901 eða 1902. Hvað maður vildi geta hoppað upp í tímavél í smástund....

Perla Fanndal (IP-tala skráð) 10.12.2013 kl. 16:18

4 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Þakka hólið og skemmtilegar athugasemdir. Það að leigusamningurinn fyrir 6b sé frá 1901 eða 1902 bendir þá til þess að  bakhúsið hafi verið reist þá. Það er nefnilega ekkert minnst á byggingarár þess í Oddeyrarbókinni, bara að því var breytt í íbúð 1922.

Kveðja, Arnór.

Arnór Bliki Hallmundsson, 12.12.2013 kl. 08:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • PA040027
  • IMG 1503
  • IMG 1501
  • IMG 1500
  • P8291011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 78
  • Sl. sólarhring: 88
  • Sl. viku: 554
  • Frá upphafi: 417775

Annað

  • Innlit í dag: 24
  • Innlit sl. viku: 352
  • Gestir í dag: 24
  • IP-tölur í dag: 24

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband