Hús dagsins: Barð (áður Aurora) við Eyrarlandsveg 25.

 

Eyrarlandsvegi á Brekkunni mætti skipta í tvo hluta, efri og syðri hluta, sem liggur á brekkubrúninni framan Lystigarðs og lóð Menntaskólans á Akureyri. Hið tilkomumikla timburhús skólans, Gamli Skóli frá 1904 stendur nr. 28 við götuna. Neðri og nyrðri hluti liggur frá Grófargili bak Akureyrarkirkju og upp á brún Barðsgils. Upp það gil liggur hinn svokallaði Menntavegur frá Hafnarstræti norðan Samkomuhúss. Á þessu stað mætast Eyrarlandsvegur og Hrafnagilsstræti en þarna einnig liggur gatan Barðstún á brekkubrúninni, samsíða efri hluta Eyrarlandsvegar. En við hvaða Barð er gilið og gatan kennd ? Því verður svarað hér.P6100357

 

Gegnt Gamla Skóla standa sex íbúðarhús, Eyrarlandsvegur 25, 27, 29, 31, 33 og 35. Á nr. 25 stendur hús nokkuð frábrugðið næstu húsum, steinhús með flötu þaki. En þarna stóð áður smábýlið Barð, hjáleigan úr landi Stóra- Eyrarlands. Hér ætla ég að mestu að fjalla um það hús sem síðast stóð þar . Hér til hliðar má sjá teikningu höfundar að Barði eins og það mun hafa litið út fyrstu áratugi 20.aldar. Stuðst var við ljósmynd sem birtist í Húsakönnun um MA-reit (sjá tengil í heimildaskrá) Íbúðarhúsið á Barði stóð nokkurn veginn þar sem Eyrarlandsvegur 25 stendur nú. Það var ekki stórt eða háreist, aðeins um 35 fermetrar (3,9x8,8m segir í Fasteignamati 1918) en saga þess var nokkuð sérstök. Það kom t.d. hingað til lands með skipi og hýsti nokkuð merkilega starfsemi áður en það “settist að” á Barði.

Um aldamótin 1900, þ.e. 1899-1900 var hópur danskra vísindamanna staddur á Akureyri við rannsóknir á norðurljósum. Fyrir þeim hópi fór Adam Paulsen eðlisfræðiprófessor en með í för voru einnig þeir Harold Moltke greifi og listmálari, Dan B. La Cour, eðlisfræðingur og Ivar B. Jantzen nemi. Þeir höfðu bækistöðvar á nokkrum stöðum við bæinn í litlum húsum, ekki ósvipuðum vegavinnuskúrum, sem þeir fluttu með sér. Mun ein stöðin hafa verið sem næst hátindi Ytrisúlu en eitt húsið, sem þeir kölluðu Auroru settu þeir niður ofan Naustagils. Kom þetta hús til Akureyrar forsmíðað frá Danmörku, þann 9.ágúst 1899. Þarna var bækistöð Norðurljósamanna en einnig vinnustofa Moltke greifa en eftir hann liggja mörg málverk af norðurljósum. Í húsinu voru einnig geislavirk efni fyrst notuð á Íslandi, en Paulsen notaði þau við segulmælingar. Efnin sem hann notaði fékk hann hjá Pierre Curie en hann og kona hans Marie voru frumkvöðlar í uppgötvun og nýtingu geislavirkra efna. Til er fræg mynd sem m.a. prýðir anddyri Icelandair hótels á Akureyri, sem sýnir prúðbúið fólk skála í kampavíni á tindi Súlna. Þar má m.a. sjá Moltke greifa í félagi við heiðursfólk á Akureyri m.a. Axel og Önnu Schiöth. Aurora stóða á barmi Naustagils, nærri suðurmörkum Kirkjugarðs Akureyrar. Hér er ítarleg ritgerð um “Norðurljósamennina” (sem margir Akureyringar kölluðu svo) og málverk Moltkes. Þess má einnig geta, að við mælingu grunnlínu Akureyrar sumarið 1900 höfðu landmælingamennirnir dönsku bækistöð í Auroru.

Á sama tíma, snemma sumars árið 1900 hugðist Olgeir Júlíusson bakari (faðir Einars alþingismanns) byggja á Barði. Fékk hann leyfi til að reisa hús 14x7al.að stærð suðvestan við gamla bæinn. Ekki kemur neitt frekar fram í bókunum Bygginganefndar frá þessum árum, en vitað er að einhvern tíma á bilinu 1901-05 (mögulega síðla árs 1900) var húsið Aurora flutt á þennan stað og varð að íbúðarhúsi á Barði. Hvort tilfellið hafi verið, að Olgeir hafi fengið leyfi til byggingar húss af þessari stærð og síðan óvænt fengið það tilboð að flytja Auroru-húsið í stað byggingar, eða að hann hafi strax í júní 1900 haft augastað á húsinu og fengið leyfi til að flytja það þangað fæst ekki upplýst. Mögulegt er, að byggingaleyfið vísi til steypts grunns sem undir húsinu var. En árið 1918 fást þessar upplýsingar um Barð í Fasteignamati. Húsið er sagt íbúðarhús úr timbri með járnklæddu þaki, einlyft með lágu risi 3,9x8,8m að stærð, 3 herbergi og byggt 1900. Þar standa einnig gripahús og heyhlaða úr steinsteypu með járni á þaki. Húsakosturinn er metinn á kr. 2900 en lóðin sem sögð er 448 fermetrar á kr. 400. ( Ég ætla ekki að reyna að snara þessum tæplega 100 ára krónutölum til núvirðis! ). Eigandi er Haraldur Júlíusson, bróðir Olgeirs. Þar er Barð sagt nr. 2 við Eyrarlandsveg en fékk að öllum líkindum númerið 25 þegar húsin nr. 27-31 tóku að byggjast um 1923.

Líklegt má telja að búskapur hafi verið stundaður vel framan af 20.öld en á 4.áratugnum var næsta nágrenni hússins að mestu fullbyggt.

Kjallari var undir húsinu, og til er sú saga að bankaræningi hafi verið þar í felum þar til hann komst í skip frá Akureyri. Þessi saga er rakin nokkuð skilmerkilega í rammagrein á bls. 66 í bók Steindórs Steindórssonar (1993), Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Var þar um að ræða bankastjóra, sem einn daginn virtist gufaður upp og á sama tíma kom í ljós að sjóðir bankans virtust í verulegi ólagi. Bankastjórans var leitað lengi en í raun var hann allan tíman í felum hjá Maríu [Flóventsdóttur] í Barði (móður Olgeirs og Haraldar) sem einnig kom honum til hjálpar með hest og söðul. Síðar fréttist af þessum sama bankastjóra í Ameríku. Það kemur fram í frásögninni að aldrei var Maríu álasað fyrir þetta tiltæki, heldur þótti þetta til marks um fádæma góðmennsku fátæku húsfreyjunnar í Barði.

Húsið breyttist lítið þann tíma sem það stóð og aldrei var það stækkað, þrátt fyrir að vera aðeins þessir 30 fermetrar á einni hæð. Húsið var upprunalega panelklætt að utan en fékk síðar steinblikkklæðningu, líkt og mörg timburhús. Um 1968 var húsið flutt upp í Hlíðarfjall þar sem hugmyndin var að nýta það sem skýli fyrir gönguskíðafólk. Aurora við SkíðahótelÁ myndinni hér til hliðar má sjá Barðshúsið eða Auroru fyrir framan Skíðahótelið. Myndina fékk ég senda frá Víði Gíslasyni en hana tók Hermann Sigtryggsson um 1969.Veitti hann góðfúslegt leyfi til notkunar á henni hér. Ef rýnt er inn í myndina má sjá áletrunina "Eyrarlandsvegur 25" á horni hússins. 

Húsið reyndist  ekki fullnægjandi þar uppfrá og fór ekki betur fyrir því en svo að það fauk í aftakaveðri og skemmdist og var rifið í kjölfarið. Lauk þar með sögu þessa stórmerkilega húss, sem 70 árum áður hafði verið flutt á skipi til Akureyrar í þeim tilgangi að vera bækistöð vísindarannsókna. Alla tíð bjó sama fjölskyldan í barði, Júlíus Kristjánsson og áðurnefnd María Flóventsdóttir og börn þeirra, Olgeir (flutti reyndar í Strandgötu 41 á Oddeyri fljótlega eftir að hann reisti húsið) Haraldur, Þorgerður, Jakobína og Kristrún Júlíusbörn. Sú síðasttalda var kölluð Rúna í Barði og er hún mögulega einn annálaðasti ræstitæknir sem sögur fara af. Í nær hálfa öld, frá árinu 1912 starfaði hún við þrif á göngum Menntaskólans á Akureyri og margir fyrrum nemendur skólans muna eftir henni. Hér er minningargrein um þessa heiðurskonu úr skólablaði Menntaskólans á Akureyri, Muninn frá vetrinum 1967 en Rúna lést í nóvember 1966 (fædd 1882).

Núverandi hús á Eyrarlandsvegi 25 er byggt árið 1970 eftir teikningum Jóns Geirs Ágústssonar. Það er einlyft steinsteypuhús með flötu þaki en stendur á kjallara. Lóðin er mishæðótt og er inngangur í kjallara austanmegin. Austurhlið hússins snýr einmitt að götunni Barðstúni- sem heitir eftir Barði. P5180337

Á þessari mynd er horft á Eyrarlandsveg 25 úr norðri. Austurhlið hússins snýr að götunni Barðstúni, sem gengur þarna til suðurs frá Eyrarlandsveginum á barmi Barðsgils. Þarna stóðu íbúðarhús og byggingar á Barði. Myndin er tekin 18.maí 2015.

 

 

 

 

 

Upprunalega stóð Barðshúsið, eða Aurora, á höfðanum á suðurbarmi Búðargils, sunnan Kirkjugarðsins. Það er u.þ.b. á þeim slóðum sem þessi mynd er tekin þann 8.nóv. 2015. PB080265

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Heimildir:

Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1857-1902. Fundur nr. 189, 6.júní 1900.

Óprentað, varðveitt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.

Fasteignamat á Akureyri 1918

Ópr. varðveitt á Hskjs. Ak.

Leó Kristjánsson. (Án árs) Þrjár greinar um norðurljósaleiðangra til Íslands á árunum 1883-1910. Pdf-skjal á slóðinni https://notendur.hi.is/leo/Nordurljos.pdf

  Landmælingar og kortagerð Dana á Íslandi, eftir Ágúst Böðvarsson. Útgefandi LMI, Reykjavík 1996

Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. (2016). Akureyrarbær; Menntaskólinn á Akureyri og nærliggjandi íbúðarsvæði. Húsakönnun. Pdf-skjal á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Menntaskolinn_og_ibudasvaedi/husakonnun_ma.pdf

   Nordlysets maler.  Harald Moltkes Malerier på Meteorologisk Institut.  Höf.  Peter Stauning og Sören Henrikssen, Köbenhavn 2008.   Vísað er á greinina í krækju í texta.

 

Steindór Steindórsson. (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.

 

Sérlegur heimildamaður minn við skrif þessarar greinar heitir Víðir Gíslason. Hann veitti mér margvíslegar heimildir, bæði gegn um símtöl og tölvupósta og kann ég honum bestu þakkir fyrir.

Hermanni Sigtryggssyni þakka ég einnig kærlega fyrir góðfúslegt leyfi til birtingar á ljósmyndinni af Barði við Skíðastaði.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 20
  • Sl. sólarhring: 43
  • Sl. viku: 624
  • Frá upphafi: 420097

Annað

  • Innlit í dag: 18
  • Innlit sl. viku: 472
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 17

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband