Hús dagsins: Krabbastígur 1

 

Það eru ekki margar götur á Akureyri kenndar sjávardýr, en á milli Oddeyrargötu og Munkaþverárstrætis liggur stutt og mjó gata sem nefnist Krabbastígur skáhallt til NV upp brekkuna. Hún liggur á milli 8 og 10 við Oddeyrargötu og við hana standa einungis þrjú hús sem ég ljósmyndaði einn laugardag í janúar sl. og hyggst birta hér á næstu dögum (Reyndar myndaði ég hús nr. 1 í gær þ.s. Mér þótti fyrri mynd einfaldlega ekki nógu góð).

Krabbastíg 1 reistu í félagi þeir Jóhann Jónsson og P3180521Kristján Helgason árið 1930. Síðsumars 1929 fær sá fyrrnefndi lóð sunnan Krabbastígs, beint á móti lóð Gests Bjarnasonar (þ.e. Krabbastígur 2). Jóhanni er einnig veitt leyfi til að reisa íbúðarhús, skv. meðfylgjandi teikningu og lýsingu. Húsið skyldi vera úr steinsteypu, ein hæð með risi og á háum kjallara, 13,90x8m að stærð. Húsið var (og er) parhús, skipt í miðju og í Jónsbók er Jóhann Jónsson skráður fyrir Krabbastíg 1A og Kristján og Bernharð Helgasynir búa í 1B þ.e. vesturhluta. Teikningar sem varðveist hafa af húsinu eru óáritaðar en þær sýna herbergjaskipan neðri hæðar ("kjallara") og hæðar, en inngangur var á göflum,  eldhús, bað og geymslur en stofa og svefnherbergi á hæð. Ris hefur að öllum líkindum verið óinnréttað í upphafi.

Krabbastígur 1 er tvílyft steinsteypuhús með háu risi. Veggir eru múrsléttaðir, veggir jarðhæðar eru eilítið þykkri og þ.a.l. kantur á útveggjum á hæðarskilum. og bárujárn á þaki, og krosspóstar eru í gluggum. Einn gluggi er undir mæni hvoru megin og tveir smáir súðargluggar beggja vegna risglugga.

Krabbastígur 1 mun vera fyrsta húsið á Akureyri sem byggt var skv. lögum um verkamannabústaði en þau tóku gildi árið 1929, sama ár og byggingaleyfi var veitt fyrir húsinu. Hér má lesa frumvarp Héðins Valdimarssonar til laga um verkamannabústaði frá fyrstu hendi af vef Alþingis. Líklega eru þekktustu húsin, sem reist voru eftir þessum lögum Verkamannabústaðirnir við Hringbraut og við Vallagöturnar í Vesturbæ Reykjavíkur. Það myndi líklega ekki veita af sambærilegum lögum og aðgerðum í húsnæðismálum í dag og farið var í þarna, fyrir tæpum 90 árum! En nóg um það.

Ég nota vefinn timarit.is mikið til að kanna , hvort einhver verslun eða þjónusta hafi verið starfrækt í húsunum sem skrifað er um. Hafi slíkt verið auglýst í blöðum er má að öllum líkindum finna þær auglýsingar þar. Þegar heimilisfanginu “Krabbastíg 1” er flett upp á timarit.is birtast 62 niðurstöður, m.a. um herbergi til leigu, tilkynningar um stórafmæli o.þ.h. Ein elsta heimildin sem timarit.is finnur um Krabbastíg 1 er í skátablaðinu Akurliljunni, sem skátaflokkurinn Fálkar gaf út árið 1932. Þar er auglýst til sölu rúm með fjaðradýnu og borðstofuborð.

Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús, og íbúðaskipan líklega lítt breytt frá upphafi. Að ytra byrði er húsið svo til óbreytt frá upphafi a.m.k. miðað vikrabb1ð upprunalegar teikningar- þar eru að vísu margskiptir gluggapóstar en krosspóstar nú en gluggasetning og staðsetning dyra er óbreytt sem og þak. Húsið er í mjög góðri hirðu, m.a. hefur þak nýlega verið endurnýjað. Húsið stendur alveg út við götubrún og á húsinu má, þegar þetta er ritað síðla vetrar 2017, sjá miða sem varar við snjó og klakahruni af þaki.(sjá til hliðar) Frábært framtak íbúa Krabbastígs 1 því þetta er hætta sem ég hef grun um að margir vanmeti. Því blautur snjór og grýlukerti eru býsna massamikil og verða raunar eins og fallbyssukúlur við fall af háum þakbrúnum. Húsakönnun 2015 metur húsið með varðveislugildi 1 þ.e. miðlungs enda er Krabbastígur 1 hið glæsilegasta hús og til prýði í umhverfinu. Myndin er tekin þann 18.mars 2017.

 

Heimildir:

Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf

Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1921-30. Fundur 636, 20.ágúst 1929.

Jón Sveinsson. 1955. „Jónsbók“. (Skrá yfir upprunasögu húsa sem stóðu á Akureyri um 1935, tekin saman 1945-55).

Tvö ofantalin rit eru óprentaðar og óútgefnar heimildir, varðveittar á Héraðskjalasafninu á Akureyri.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 161
  • Sl. sólarhring: 205
  • Sl. viku: 770
  • Frá upphafi: 419861

Annað

  • Innlit í dag: 122
  • Innlit sl. viku: 610
  • Gestir í dag: 119
  • IP-tölur í dag: 117

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband