Hús dagsins: Klapparstígur 3

Í síðustu færslu tók ég fyrir nokkrar helstu klappir Brekkunnar á Akureyrar. Sumar þeirra eru fáfarnar en líklega þekkja flestir Akureyringar- og aðrir staðkunnugir hér - Hamarkotsklappir norðan Akureyrarvallar, þar sem finna má styttuna af Helga magra og Þórunni Hyrnu og hringsjá og fánastöng. Klapparstígur liggur utan í hæðinni sunnan við Hamarkotsklöpp (sem raunar heitir Myllunef), ofan við Akureyrarvöll og dregur nafn sitt af klöppinni. Gatan sveigir til austurs af ofanverðri Brekkugötu. Einungis fjögur hús standa við Klapparstíg og mun ég taka þau fyrir eitt af öðru í næstu færslum. Klapparstíg 1 tók ég fyrir í síðustu færslu og hér er komið að næsta húsi nr. 3.

    Klapparstíg 3 reistu þeir Jón Ingimarsson og Aðalsteinn Tryggvason árið 1933.P1140487 Þeir fengu í lok júlí það ár leyfi til að reisa hús á leigulóð sinni og þá hugðust þeir reisa hús á einni hæð á kjallara með porti og kvistum. Líklega hefur því húsi átt að svipa til eina hússins sem þá var þegar risið á Klapparstíg, þ.e. nr. 1. Enda lagði Bygginganefnd það til, að þeir skyldu reisa hús svipað og þau sem fyrir væru á þessu svæði, þegar þeir fengu lóðina úthlutaða. En um mánuði eftir að þeir Aðalsteinn og Jón fengu byggingaleyfið sækja þeir um að fá byggingaleyfi breytt, þ.a. fyrirhugað hús verði tvílyft með flötu þaki, en Bygginganefnd vísar þeirri beiðni áfram til Skipulagsnefndar. Þá þegar voru tilbúnar teikningar að húsi með flötu þaki, en þær eru dagsettar 11.ágúst 1933. Það þarf kannski ekki að tíunda það hér hvert svar nefndanna var, það liggur nefnilega í augum uppi fyrir hvern þann sem ber húsið augum. En þann 16.september 1933 er þeim Aðalsteini og Jóni heimilað að reisa húsið með flötu þaki- með því skilyrði að þakbrík yrði ekki hærri en 50cm. Teikningarnar sem vísað er til hér að framan gerði Stefán Reykjalín en þarna var líklega um frumraun hönnuðarins að ræða, því Stefán var aðeins 19 ára þegar hann teiknar húsið (Sbr. Ak.bær, Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson o.fl. 2015: 22).

   Klapparstígur 3 er tvílyft steinsteypuhús í nýklassískum stíl, með flötu þaki og á lágum kjallara. Veggir eru klæddir spænskum múr, og breiðir krosspóstar með skiptum póstum í efri fögum í gluggum. Inngöngudyr á vesturhlið og steyptar tröppur að honum. Á þakbrún er steypt skrautkögur sem gefur húsinu skemmtilegan svip. Húsið er að því er virðast óbreytt frá upprunalegri gerð, borið saman við teikningarnar frá 1933, gluggapóstar eru samskonar og gluggasetning virðist fljótt á litið óbreytt frá upphafi. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús, ein íbúð á hvorri hæð og sjálfsagt ófáir búið hér í lengri eða skemmri tíma. Íbúar hússins hljóta að teljast vel í sveit settir hvað varðar íþróttaviðburði á Akureyrarvelli því við suðurgluggar hússins eru beint upp af áhorfendabekkjum vallarins og mætti eflaust líkja við “VIP” stúkusæti :) Húsinu er vel við haldið og til mikillar prýði á áberandi stað, og sömu sögu er að segja af lóð sem er vel gróin t.d. stendur gróskumikið reynitré á suðvesturhorni lóðarinnar. Myndin er tekin þann 14.janúar 2017.

Heimildir:

Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf

Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1930-35. Fundur nr.702, 29.júní 1933.

Fundur nr. 703, 27.júlí 1933. Fundur nr. 706, 26.ágúst 1933. Fundur nr. 707, 16.sept. 1933.

Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðskjalasafninu á Akureyri.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • PA040027
  • IMG 1503
  • IMG 1501
  • IMG 1500
  • P8291011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 75
  • Sl. sólarhring: 85
  • Sl. viku: 551
  • Frá upphafi: 417772

Annað

  • Innlit í dag: 22
  • Innlit sl. viku: 350
  • Gestir í dag: 22
  • IP-tölur í dag: 22

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband