Hús dagsins: Bjarmastígur 5

 

Bjarmastíg 5 reistu þeir Hólmsteinn Egilsson og Egill Tómasson árið 1956. Þeir fengu vorið 1955 leyfi til að reisa hús á Bjarmastíg nr. 5 skv. “meðfylgjandi teikningu” PB110717en hana gerðu þeir Gísli Halldórsson og Ólafur Júlíusson. Hólmsteinn og Egill sóttu einnig um að fá spildu norðan við lóðina sem þeir og fengu, en lóðin liggur að Oddeyrargötu 13 norðanmegin. En Bjarmastígur 5 er tvílyft steinsteypuhús með einhalla aflíðandi þaki og stendur það á háum kjallara. Húsið stendur í brekku, líkt og öll húsin á Bjarmastíg og eru steyptar tröppur frá götu upp að húsi, bæði að norðurhlið og framhlið, sem snýr mót austri, og þar eru aðaldyr. Ofan þeirra eru svalir. Innbyggður bílskúr er í kjallara hússins. Á þaki er bárujárn en einfaldir póstar í gluggum. Frá upphafi voru tvær íbúðir í húsinu og líkast til hafa þeir Hólmsteinn og Egill búið hvor á sinni hæð ásamt fjölskyldum. Húsið mun alla tíð hafa verið íbúðarhús en árið 1989 var ætlunin að opna þarna Farfuglaheimili, er Bandalag Íslenskra Farfugla festi kaup á húsinu. Því var hinsvegar harðlega mótmælt af nágrönnum, svo ekkert varð úr þeim áformum. Bjarmastígur 5 er þó nokkuð yngra (15-25 árum) en næstu hús við vestanverðan Bjarmastíg. Svo vill til, að við götuna standa hús frá fjórða, fimmta, sjötta og sjöunda áratug 20.aldar og er húsið annað tveggja Bjarmastígshúsa frá 6.áratugnum. Húsið er traustlegt og reisulegt og í mjög góðu standi og mun nánast óbreytt frá upprunalegri gerð. Grjóthleðslumunstur á lóðarkanti og á hluta kjallara gefur hús og lóð sjarmerandi svip. PB110715Á lóðinni standa einnig þrjú há og gróskumikil grenitré sem vissulega setja líka svip á umhverfi sitt. Hæsta tréð er fremst á lóð, og mundi sá sem þetta ritar áætla, að það tré sé nær 20m en 15 á hæð. Myndirnar eru teknar þann 11.nóv. 2017.

 

Heimildir Bygginganefnd Akureyrarbæjar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr.1218, 27.maí 1955. Óprentað, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

 

Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Arnór, það er gaman að skoða allar fínu myndirnar þínar. Ég var í vor að skoða mynd af túni sem þú sagðir að hefði verið heilmikið notað fyrir boltaleiki o.fl. Er þetta ekki túnið milli Hamarsstígs og Bjarkarstígs? Ég fann myndina ekki aftur núna. Geturðu vísað mér á hana eða birt hana aftur?

Og hvernig er réttur ritháttur á nafninu: BJARKA- eða BJARKARstígur. Ég hef séð báðar útgáfur á kortum.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 14.11.2017 kl. 12:40

2 identicon

Sæll Arnór, það er gaman að skoða allar fínu myndirnar þínar. Ég var í vor að skoða mynd af túni sem þú sagðir að hefði verið heilmikið notað fyrir boltaleiki o.fl. Er þetta ekki túnið milli Hamarsstígs og Bjarkarstígs? Ég fann myndina ekki aftur núna. Geturðu vísað mér á hana eða birt hana aftur?

Og hvernig er réttur ritháttur á nafninu: BJARKA- eða BJARKARstígur. Ég hef séð báðar útgáfur á kortum.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 14.11.2017 kl. 15:11

3 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl og blessuð Ingibjörg. 

Þakka innlit og fyrirspurn. Það er rétt, það er túnið á milli Hamarstígs og Bjarkarstígs. Sælureitur mikill. Ég var að velta því fyrir mér hvað það heitir, eða hvort það heiti eitthvað, sjálfsagt hefur þetta gengið undir einhverju nafni í daglegu tali fólks í næsta nágrenni. Þarna voru um tíma leigðir út kartöflugarðar á vegum bæjarins (heimildir í bókunum Bygginganefndar frá 1935). Ég fjallaði lítillega um þetta tún í pistlinum um Munkaþverárstræti 7: http://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/2197653/ (ath. næ ekki að útbúa tengil í ummælakerfi :( þarf að afrits slóð upp í veffangsstiku). 

Einnig hér http://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/2192171/ í pistlinum um Hamarstíg 6.

Ég myndi telja BJARKARstíg réttan rithátt. Sá ritháttur er a.m.k. notaður í Húsakönnun 2015 (https://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf ) og einnig í bókinni Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs eftir Steindór Steindórsson. 

Kveðja, Arnór.

Arnór Bliki Hallmundsson, 17.11.2017 kl. 00:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 15
  • Sl. sólarhring: 135
  • Sl. viku: 754
  • Frá upphafi: 419890

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 596
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband