Hús dagsins: Hafnarstræti 106

Þá er loksins komið að fyrstu Húsafærslu ársins 2013.PC080084 Næstu vikurnar mun ég taka fyrir nokkur hús neðarlega við Brekkugötuna, hef nú þegar tekið frá 1 til 6. En fyrir þá sem ekki vita liggur Brekkugatan til norðurs uppfrá Miðbænum, í beinu framhaldi af Hafnarstræti þar sem það endar við Ráðhústorg, og nær allt upp að Hamarkotsklöppum og sveigir þar að Þórunnarstræti. En áður en við höldum lengra upp Brekkugötuna skulum við færa okkur niður í göngugötuna en að næst efsta húsi hins rúmlega 2km langa Hafnarstrætis, Hafnarstræti 106.

En Hafnarstræti 106 hefur staðið á þessum stað í tæpa öld en húsið var flutt á þennan stað árið 1915. Var það flutt á tunnufleka hingað frá Hrísey, en þess má geta að á þessum tíma var þessi staður flæðarmálinu í krika Oddeyrar. Nú gæti ég trúað að það séu um 150m í sjávarmál frá húsinu stystu leið. Var það Ásgeir Pétursson sem stóð fyrir framkvæmdinni. Upprunalegt byggingarár hússins í Hrísey er mér ekki kunnugt um né heldur hvort húsið hafi verið stækkað á þessum stað. En Hafnarstræti 106 er tvílyft bárujárnsklætt timburhús á lágum grunni og með lágu risi. Það tengist næstu húsum með einlyftum viðbyggingum úr timbri með flötum þökum. Hvenær þær tengibyggingar voru reistar er mér ókunnugt um; miðað við gamlar myndir sem ég hef séð virðist það hafa verið nálægt miðri 20.öld. En húsið hefur alla tíð verið verslunar- og skrifstofuhús og íbúðarrými á efri hæð. Richard Braun verslunarmaður eignaðist húsið fljótlega eftir byggingu og opnaði þar verslun, nefnda eftir sér, Brauns verslun. Páll Sigurgeirsson keypti verslunina (sem þó hélt nafni sínu) uppúr 1930. Bræður hans voru Eðvarð og Vigfús Sigurgeirssynir og höfðu þeir ljósmyndastofur sínar í húsinu um árabil- fyrst Vigfús og svo seinna Eðvarð. Og framyfir árið 2000 var þarna ljósmyndabúð framköllunarstofa, Filmuhúsið. Elstu húsamyndina á þessum vef, myndin af Lækjargötu 6 frá 1998  lét ég einmitt framkalla þarna. (Hér má sjá myndina og umfjöllunina frá sumrinu 2009: http://arnorbl.blog.is/blog/arnorbl/entry/917847/ )   Nú er þarna barnafataverslunin Kitty og Co. Gallabuxnabúðin og segja má þar hafi starfsemin í húsinu færst nálægt upprunanum því Brauns verslun var klæðaverslun. Þessi mynd er tekin 8.des 2012.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleðilegt ár og þakka þér fyrir fróðlega síðu. Það er orðið ansi langt síðan ég hef gengið norður Brekkugöruna. Einhvern veginn finnst mér að ég hafi oftast gengið norður götuna.  Margt undarlegt.

Bið að heilsa í bæinn.

Bestu kveðjur,

Magga

Margrét Harðardóttir (IP-tala skráð) 10.1.2013 kl. 09:15

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Takk sömuleiðis, gleðilegt árið . Sjálfur geng ég Brekkugötuna oftar til norðurs, fer þá kannski í Miðbæinn eða Amtsbókasafnið og svo á Glerártorg. En ef ég tek þetta öfugan hring, þ.e. byrja á Glerártorginu þá er mér tamara að fara suður Glerárgötuna.

Bið að heilsa á móti í Borgina,

Kveðja, Arnór.

Arnór Bliki Hallmundsson, 14.1.2013 kl. 20:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 30
  • Sl. sólarhring: 49
  • Sl. viku: 765
  • Frá upphafi: 420051

Annað

  • Innlit í dag: 20
  • Innlit sl. viku: 608
  • Gestir í dag: 17
  • IP-tölur í dag: 16

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband