Hús dagsins: Brekkugata 29

"Það gerist nú ekki á hverjum degi" er stundum haft á orði um atburði sem ekki eru sérlega algengir. Að í garð gangi hinn 29.febrúar gerist hins vegar ekki á hverju ári eins og alkunna er. Mér þykir upplagt, á þessum 29.degi febrúarmánaðar- hlaupársdegi- að birta hér umfjöllun um hús númer 29 smile

Dúe Benediktsson lögregluþjónn og Guðmundur Ólafsson byggingameistari fengu sumarið 1926 leyfi til að reisa steinsteypt hús,P1100318 2 hæðir á háum kjallara með burstum og ústkotum, að ummáli 13x8,5m,  eftir teikningum hins síðarnefnda. Húsið var byggt sem parhús og átti Due suðuðurhlutan en Guðmundur norðurpartinn. Brekkugata 29 er tvílyft steinsteypuhús á háum kjallara og með háu risi og tveimur burstum. Á milli bursta er milliálma, tvö gluggabil á breidd en risi milliálmu er lyft á bakhlið. Þar er einnig útskot með valmaþaki og svalir á annarri hæð sunnan megin við hana. Inngönguskúrar eru hvor á sínum stafni hússins og steyptar tröppur upp að þeim en einnig eru bakdyr á húsinu. Krosspóstar eru í gluggum en bárujárn á þaki en veggir múrsléttaðir. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús og þarna hafa líkast til hundruð manna búið gegn um þessi 90 ár sem það hefur staðið.

Lengi vel stóð húsið við þjóðbraut en framan af var Brekkugatan helsta umferðaræðin inn í bæinn að norðanverðu, eða uns Glerárgata leysti hana af hólmi um 1954. Brekkugata 29 er nokkuð sérstakt að gerð og áberandi kennileiti í þessari skemmtilegu götumynd. Það er í Húsakönnun sagt í þjóðernisrómantískum  stíl enda með sterka vísun í hinn íslenska burstabæ. Það var raunar tilfellið á fyrstu áratugum steinsteypunnar, að menn sóttu fyrirmyndir í þær húsagerði sem fyrir voru, timburhúsin og í tilfelli Brekkugötu 29, burstabæinn. Innan þéttbýlismarka Akureyrar man ég í svipinn ekki eftir mörgum -ef nokkru öðru- steinsteypuhúsi í svipinn með þessu burstalagi. Samkvæmt áðurnefndri húsakönnun hefur Brekkugata 29 varðveislugildi sem hluti af þeirri heild sem Brekkugöturöðin er. Húsið er reisulegt í góðri hirðu og til mikillar prýði í umhverfinu. Lóðin er einnig vel frágengið og vel gróin, sérstaklega bakatil þar sem nokkrar hávaxnir aspir standa. Nú eru í húsinu fjórar íbúðar, tvær í hvorum hluta- hver á sinni hæð. Myndin er tekin þ. 10.jan. 2016.

Heimildir

Bygginganefnd Akureyrar: Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 586, 7.ágúst 1926. Óprentað, varðaveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Jón Sveinsson. 1955. „Jónsbók“. Upplýsingar um upprunasögu hús á Akureyri árið 1933. Handritað skjal, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun.  Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 53
  • Sl. sólarhring: 56
  • Sl. viku: 460
  • Frá upphafi: 420160

Annað

  • Innlit í dag: 36
  • Innlit sl. viku: 333
  • Gestir í dag: 34
  • IP-tölur í dag: 33

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband