Hús dagsins: Oddeyrargata 4

Þann 15.maí sl.birti ég grein hér á síðunni um Oddeyrargötu 6. Sú dagsetning var engin tilviljun því þann dag voru 100 ár liðin frá útgáfu byggingarleyfis fyrir húsinu. Og þar eð ég hafði þann háttinn á varðandi Oddeyrargötu 6 er mér að sjálfsögðu ljúft og skylt að birta í dag, 7.júní pistil um næsta hús neðan við. (Strangt til tekið hefði þessi grein átt að birtast í fyrradag en þann 5.júní 1916 fékk Jón Ísfjörð leyfi til að byggja Oddeyrargötu 4- en dagsetningar eru ekki heilagar, nema e.t.v. hjá þeim er þetta ritar)

P5030001Það var fyrir réttri öld eða snemma sumars 1916 sem Jón Ísfjörð skósmiður fékk leyfi til að reisa hús einlyft á kjallara með lágu risi að við “framhald af Gránufélagsgötu”. Hann hafði falast eftir lóð á sama stað og Trausti Reykdal (Oddeyrargata 6) en fékk lóðina við hliðina. Í byggingarleyfi og eins Fasteignamati 1918 er húsið sagt 6,3x6,3m að stærð en það munu vera 10x10 álnir. Það er raunar ekki óalgengt í bókunum frá þessum tíma, að stærðir húsa séu gefnar upp sem margfeldi af 0,63 metrum. Dettur mér í hug, að þarna hafi menn nýlega innleitt metrakerfið í opinberu tali en hugsað í álnum. Í bókum Bygginganefndar eru álnirnar alls ráðandi fyrstu árin eftir 1900 en víkja smám saman fyrir metrunum upp úr 1910 en þó má lengi vel sjá eina og eina “alin á stangli” fram undir 1920. Eftir það víkja þær h.u.b. algjörlega fyrir metrunum. Nóg um það.

Oddeyrargata 4 er einlyft steinsteypuhús með lágu risi og stendur það á háum kjallara, raunar svo háum að kalla mætti jarðhæð. Húsið er raunar tvær álmur, önnur þ.e. Sá hluti hússins sem byggður er 1916 snýr NA-SV en hín gengur vestur úr húsinu bakatil. Þar er um að ræða viðbyggingu frá því um 1980. Á NA-gafli hússins er forstofubygging og steyptar tröppur upp að henni en inngangar á jarðhæð eru m.a. á framhlið hússins og undir tröppum. Á suðvesturhlið er sólpallur. Krosspóstar eru í gluggum og bárujárn á þaki en veggir hæðar eru múrsléttaðir en múrklæðning jarðhæðar með e.k. hraun áferð; í húsakönnun 2014 kallast það einfaldlega grófur múr. Upprunalegur hönnuður hússins er ekki þekktur en vitað er að Sveinbjörn Jónsson teiknaði viðbyggingu við húsið 1920, þ.e. skömmu eftir að það var byggt. Þar er að öllum líkindum um að ræða inngönguhúsið á gafli. Viðbygginguna vestan til teiknaði Tómas Búi Böðvarsson.

Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús en líkt og  margir iðnaðarmenn á öndverðri 20.öld stundaði Jón Ísfjörð iðju sína á heimili sínu. Hann starfrækti skóvinnustofu í þessu húsi og hér má sjá auglýsingu frá honum frá hausti 1919. Húsið er einfalt og látlaust að gerð; einföld steinsteypuklassík en engu að síður glæst og sjarmerandi. Eitt smáatriði, sem sá sem þetta ritar tekur eftir og þykir gefa húsinu sérstakan og einkennandi svip eru skrautlegir sperruendar sem standa út undir þakskeggi. Þetta er ekki óalgengt á “Sveitserum” eða “Katalóghúsunum” hinum glæstu norskættuðu timburhúsum frá upphafi 20.aldar mögulega arfur frá þeirri húsagerð. Steyptur kantur með sömu áferð á jarðhæð á lóðarmörkum gefur umhverfinu skemmtilegan svip. Húsinu er vel við haldið og virðist raunar sem nýtt að sjá, þrátt fyrir að bygging þess hafi hafist fyrir réttum 100 árum. Í húsakönnun er vel látið af húsinu og hefur það varðveislugildi sem hluti af götumynd Oddeyrargötu. Viðbygging þykir einnig sérlega vel heppnaðar og falla þær vel að húsinu, en slíkt er raunar alls ekki sjálfgefið þegar byggt er við eldri hús. Ein íbúð er í húsinu. Myndin er tekin þann 3.maí 2015.

 

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarbæjar. Fundargerðir 1902-21. Fundur nr. 428, 5.júní 1916. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 227
  • Sl. viku: 622
  • Frá upphafi: 419713

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 500
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband