Hús dagsins: Munkaþverárstræti 6

 

Árið 1933 fékk Jón Þorláksson lóð sunnan við Adam Magnússon og lagði hann um leið fram uppdrátt af húsi því, er hann hugðist reisa þar. P5250530Ekki var hægt að samþykkja uppdráttinn, af ástæðum sem ekki eru kunnar en rúmum mánuði síðar fengust teikningar samþykktar. Þær gerði Tryggvi Jónatansson. Hvergi virðist húsinu lýst í bókunum Bygginganefndar en húsið er mjög reglulegt í lögun nokkurn vegin ferningslaga að grunnfleti, einlyft steinsteypuhús með flötu þaki og steyptum þakkanti og nokkuð stórum gluggum hlutfallslega- ekki ósvipað næsta húsi sunnan við. Á hverri hlið hæðar eru tveir gluggar, utan norðurhlið en þar er inngöngudyr og steyptar tröppur að þeim. Gluggapóstar á hæð og nokkrir á kjallara eru margskiptir, þrískiptir lóðréttir að neðanverðu en tvískiptur þverpóstur ofanvert. Veggir eru múrsléttaðir en þakdúkur á þaki.

Á teikningum er gert ráð fyrir vinnustofu í kjallara hússins. Mögulega var þar bókbandstofa, en Jón var bókbindari og seldi stundum bækur hér. Margir hafa búið í húsinu, sem hefur líkast til lengst af verið einbýlishús. Húsið er einföld steinsteypuklassík og skemmtilegt í laginu að því leytinu til, að fljótt á litið virðist það nokkurn veginn ferningslaga; reglulegur og látlaust. Ekki prýðir húsið mikið skraut eða prjál en líkt og mörg áþekk hús glæst í einfaldleika sínum. Það er ekki ósvipað næsta húsi sunnan við, Munkaþverárstræti 4 og mynda þessi hús skemmtilega samstæðu- svo sem segir í Húsakönnun 2015. Húsið er líkast til alveg óbreytt frá upphafi að ytra byrði og viðhald og frágangur til fyrirmyndar. Lóðin er einnig vel gróin og ber þar mikið á álmi miklum, þeim hæsta á Akureyri, sunnan við húsið. Hér til hliðar sést það í fullum skrúða, en sú mynd er tekin í trjágöngu P8310019Skógræktarfélagsins í ágústlok 2013. Ein íbúð er í húsinu. Myndin efst er tekin að kvöldi Uppstigningadags, 25.maí 2017.

 

Heimildir:

Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf

Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1930-35. Fundur nr. , 16.sept 1933. nr. 25.okt.1933

Jón Sveinsson. 1955. „Jónsbók“. (Skrá yfir upprunasögu húsa sem stóðu á Akureyri um 1935, tekin saman 1945-55). Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Tvær ofantaldar heimildir eru óprentaðar og óútgefnar; varðveittar á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fjölskylda mín bjó í Munkaþverárstr.6 frá því í maí 1960 - 2005. Tréð sunnan við húsið er ekki reyniviður heldur álmur og er hæsta álmtré á Akureyri. Af þessu tré kom faðir minn, Hróar B Laufdal, upp fjölmörgum trjám og stendur eitt þeirra neðst í garðinum við rafveituskúrinn. Svo stendur eitt þeirra við heimili mitt að Helgamagrastræti 51 á Akureyri orðið stórt og fallegt. Kveðja Birna Laufdal Hróarsdóttir

Birna Laufdal Hróarsdóttir (IP-tala skráð) 1.8.2017 kl. 01:18

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl Birna.

Kærar þakkir fyrir þetta fróðlega og skemmtilega innlegg. Hef leiðrétt þetta með trjátegundina - því rétt skal vera rétt :)

Bestu kveðjur, Arnór Bliki.

Arnór Bliki Hallmundsson, 2.8.2017 kl. 12:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 174
  • Sl. sólarhring: 202
  • Sl. viku: 783
  • Frá upphafi: 419874

Annað

  • Innlit í dag: 132
  • Innlit sl. viku: 620
  • Gestir í dag: 129
  • IP-tölur í dag: 126

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband