Hús dagsins: Gilsbakkavegur 13

Fjögur efstu húsin við Gilsbakkaveg eru öll reist árin 1945-46. PB110721Þar er um að ræða þrjú íbúðarhús og stórhýsi Frímúrarareglunnar sem stendur efst á horninu þar sem mætast Gilsbakkavegur, Kaupangsstræti, Þingvallastræti og Oddeyrargata. En efsta íbúðarhúsið á Gilsbakkavegi er hús nr. 13 en það hús reisti Tómas Björnsson kaupmaður árið 1946. Árið áður sótti hann um að fá leigðan hluta Akureyrarbæjar í efstu íbúðarhúsalóðinni við Gilsbakkaveg. En hann hafði þegar tryggt sér þann hluta sem KEA átti í lóðinni. Haustið 1945 var Tómasi leyft að reisa hús á lóðinni, ein hæð með valmaþaki út tré, járnklætt, 11,7m á breidd og 14,5m á lengd. Teikningarnar gerði Guðmundur Gunnarsson, en þær munu ekki aðgengilegar á Landupplýsingakerfinu. Þar má hins vegar sjá raflagnateikningar Haraldar Guðmundssonar frá júlí 1946. En Gilsbakkavegur 13 er einlyft steinsteypuhús með háu valmaþaki og á háum  kjallara. Austarlega á framhlið er kvistur og svalir út af honum. Útskot eru til vesturs og suðurs (austarhluti framhliðar skagar eilítið fram) en steypt verönd og inngöngudyr í horninu mill framskots og suðurhliðar. Þá er einnig bílskúr áfastur austurhlið og svalir ofan á. Einfaldir póstar eru í gluggum hússins og bárujárn á þaki. Húsið var frá upphafi íbúðarhús, en þarna var til heimilis snemma á 7.áratugnum umboðið fyrir Scania vörubíla. Það  starfrækti Árna Árnason. Húsið hefur nýverið hlotið miklar endurbætur og er allt sem nýtt en þó næsta lítið breytt frá upphaflegri gerð að ytra byrði. Húsið prýðir skemmtileg svalahandrið á kvisti og lóðin er innrömmuð af voldugum steyptum kanti sem myndar vissa heild með húsinu. Á þessum kafla er Gilsbakkavegur mjög brattur og hæðarmismunur lóðar því nokkur milli austurs og vesturs. Kantur þessi er meira en mannhæðar hár austast en e.t.v. 120-30cm vestast. Þá eru á lóðinni gróskumikil reynitré. Nú er starfrækt í húsinu gistiheimili sem kallast Hvítahúsið. Ekki ætti að væsa um þá ferðalanga sem gista hið glæsta hús Gilsbakkaveg 13. Myndin er tekin þ. 11.nóv. 2017.

Heimildir: 

Bygginganefnd Akureyrarbæjar. Fundargerðir 1941-48. Fundur nr.1022, 4.júní 1945. Fundur nr. 1034, 12.okt. 1945Óprentað, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll aftur Arnór og takk fyrir svarið þá, ég fann myndina af túninu aftur. Ég tók mynd af því 1999, var að fletta albúminu s.l. vor og velta fyrir mér hvar þetta væri.

Ég gisti þá einmitt í þessu húsi. Það var ágætt að vera þar, aðeins einn galli á því. Herbergin voru í kjallara, og þar var bara eitt bað með klósetti. Ef einhver var lengi í sturtu, komst enginn á kló á meðan. Það var hægt að fara upp og banka á hjá húsráðendum - ef þau voru heima. Annars var bara að hlaupa niður Gilið og á klósettin sem voru undir Hótel KEA - eða?

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 22.12.2017 kl. 18:55

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl og blessuð.

Ekkert að þakka, ánægjulegt að geta miðlað upplýsingum til gagns og gamans :)

Já, þetta er ákveðinn ókostur sem þú lýsir þarna, sérstaklega ef margir eru um aðstöðuna. Í mörgum eldri húsum (frá um eð fyrir miðja síðustu öld) var aðeins snyrting, þ.e. klósett og vaskur og sturta eða bað í eða inn af þvottahúsum. Hvað þetta varðar, var það ekki ósniðugt fyrirkomulag- en í flestum húsum hefur þessu verið breytt. Það er auðvitað ætíð grundvallaratriði í gistiaðstöðu að snyrtingamál séu í lagi, hversu heimilisleg eða vistleg aðstaðan er að öðru leyti.  

Bestu kveðjur- og gleðileg jólin :) 

Arnór Bliki. 

Arnór Bliki Hallmundsson, 24.12.2017 kl. 12:01

3 identicon

Sæll aftur.  Ég var að leita að þessu því ég ætlaði að koma við á Akureyri í júní á leið austur á Firði. Ég hafði ályktað að þetta væri rétta túnið, eins og þú ert búinn að staðfesta. Þegar ég kom norður, var stormur, súld og hiti 3°C, aðeins skárra næsta dag þegar ég skoðaði túnið, en samt rigning.

Það hlýtur að vera erfitt, einkum f. eldra fólk, að búa á Ak. að vetrarlagi, a.m.k. í sumum bæjarhlutum, ef það er ekki með bíl. Matarverslanir eru þannig staðsettar, engar litlar búðir lengur í og nálægt mið+innbænum, og strætóar á klukkutíma fresti! Og samt eru þeir kallaðir City Bus á túristakortum, sem virkar eins og grín á okkur hér í borginni. Nær væri að kalla þá Village Bus.

Gleðileg jól.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 24.12.2017 kl. 17:01

4 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl og blessuð.

Ég þekki það af eigin raun að ferðast um Akureyri gangandi og með strætó, allan ársins hring. Margt má betur fara en eins margt sem vel er gert - eins og gengur og gerist. Tek heilshugar undir með þér varðandi matvöruverslanirnar;  smáar hverfisverslanir ("kaupmaðurinn á horninu") hafa því miður allar lagst af, og ekki matvöruverslun hefur ekki verið starfrækt í Miðbænum síðan 10-11 í Hamborg var lokað fyrir 5-6 árum. (Það fæst að vísu ýmislegt í BSO s.s. kex og kaffi - svo því sé haldið til haga). Fyrir 15-20 árum voru a.m.k. tvær sjoppur í hverju hverfi s.s. Síða og HM-hornið í Glerárþorpi, Esja og Eyrarbúðin á Eyrinni, Garðshorn á Brekkunni, Hólabúðin í Miðbænum og Brynja í Innbænum. Sú síðastnefnda er auðvitað enn við lýði en aðeins sem ísbúð. Þetta hefur mér þótt sorgleg þróun; mikill sjarmi yfir þessum smáu hverfisverslunum og sjoppum- að ekki sé talað um hversu þægilegar svona hverfisverslanir eru fólki sem á erfitt með gang eða er bíllaust- eða hvort tveggja í senn. Það er af sem áður var. Þó má enn finna nokkrar "kaupmanns á horninu" verslanir á Höfuðborgarsvæðinu. 

Arnór Bliki Hallmundsson, 29.12.2017 kl. 00:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 32
  • Sl. viku: 412
  • Frá upphafi: 420112

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 302
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband