Hús dagsins: Fjólugata 18

 

 

Árið 1943 fékk Valtýr Þorsteinsson útgerðarmaður frá Rauðuvík á Árskógsströnd leyfi til að reisa hús á leigulóð sinni við Fjólugötu. P1070727Lóðina hafði hann fengið haustinu áður, var hún sögð næst sunnan við hús Gunnars Jónssonar, þ.e. Fjólugata 16. Valtýr fékk leyfi til að reisa hús samkvæmt framlagðri teikningu, sem undirrituð er af honum sjálfum. Húsið yrði tvær hæðir með flötu þaki, gólf og veggir úr steinsteypu og stærð 13x5,3 + 10x4,2m. Húsið er þannig byggt í tveimur álmum, sú fremri (syðri) styttri og í kverkum milli álma eru annars vegar svalir til suðvesturs og inngöngudyr í suðaustri.Valtýr Þorsteinsson var umsvifamikill útgerðarmaður og mun hafa starfrækt skrifstofur og framkvæmdastjórn fyrirtækis síns héðan um tíma. Hann stundaði einnig síldarsöltun, ásamt Hreiðari syni sínum setti hann á stofn Norðursíld á Raufarhöfn 1950. Hann byggði vélbátinn Gylfa EA 628 árið 1939 en hafði áður stundað veiðar á opnum bátum en Valtýr Þorsteinsson hf gerði út mörg fengsæl fiskiskip gegn um tíðina, m.a. Þórð Jónasson.

Húsin 16 og 18 við Fjólugötu voru í upphafi ekki óáþekk, nokkuð dæmigerð funkis-hús með flötum þökum. En síðar fékk nr. 16 valmaþak en á Fjólugötu 18 var þriðja hæðin byggð ofan á. Árið 1958 byggt var e.k. upphækkað valmaþak, eftir teikningum Mikaels Jóhannessonar. Þriðja hæðin er þannig nokkurs konar millistig þakhæðar og fullgerðar hæðar, en en nokkur dæmi eru um svona viðbætur á hús hér í bæ; t.d. Munkaþverárstræti 12, sem ég hef ég tekið fyrir á þessum vef. Þessi þakgerð er nokkuð sérstæð, e.k. mansard valmaþaki. Mansardþök eru að því leytinu til sniðug, að undir þeim nýtist gólfflötur mikið betur heldur en undir hefðbundnum ris – og valmaþökum. Á sama tíma var byggt við húsið, álma með lágu þaki að norðan og vestan og þar var þvottahús, eitt fyrir hvora hæð, auk miðstöðvarrýmis í kjallara. Árið 2006 skemmdust efri hæðir hússins í bruna en voru í kjölfarið voru þær endurnýjaðar frá grunni.

Fjólugata 18 er þrílyft steinshús með lágu valmaþaki (telja má þakhæð sem fullgilda hæð). Járn er á þaki en gluggapóstar 1. og 2. hæðar flestir þrískiptir lóðrétt með opnanlegu þverfagi í miðju en á þriðju hæð eru gluggar póstalausur með lóðréttu opnanlegu fagi, rúðulausum. Horngluggar til suðvesturs og svalir á þeim hornum, í kverkum milli fram og bakálmu. Húsið er í mjög góðri hirðu og lítur vel út. Þakhæðin gefur húsinu óneitanlega sérstakan svip. Myndin er tekin þann 7.janúar 2018, fyrir réttum og sléttum tveimur mánuðum þegar þetta er birt.

 

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar. Fundagerðir 1941-48. Fundur nr. 924, 4.sept. 1942. Fundur nr. 945, 11.júní 1943. Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Arnór.  Það hafa verið fréttir um nýtt Hagahverfi á Akureyri og mynd af götuskiltinu Nonnahagi. En loftkortið sem tengist símaskránni á Já.is er orðið nokkurra ára gamalt, og nýjar byggingar og götur eru ekki komnar inn á kortið.

Hins vegar er Google Street View nýendurnýjað, í sumar+haust, bæði hér f. sunnan og á Akureyri. Nú langar mig að biðja þig að segja mér hvaða götu er best að fara með Google-farartækinu á vefnum til að komast að þessu nýja hverfi á Akureyri. Á ég að fara í norður, suður eða í vesturátt að fjallinu? Ég vissi ekki af þessu í sumar, og auk þess viðraði engan veginn til ferða í úthverfin.

Með kveðju og fyrirfram þökk, Ingibjörg

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 7.3.2018 kl. 16:51

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl og blessuð.

Ég verð að viðurkenna, að Naustahverfi þekki ég einna síst af hverfum Akureyrar og hef meira að segja lent í því að villast þar embarassed. En hvað varðar nýjasta hlutan, Hagahverfi er líklega best að taka stefnuna í suðarátt. Finna Kjarnagötu og fylgja henni út fyrir trjábeltið, eins og leiðin liggi upp á Hamra, og þar ættirðu að finna götur sem liggja að Högunum. Eins og er, er að ég held aðeins tvær-þrjár fullbyggðar blokkir þar en þó nokkur hús í byggingu. Vona að þessar upplýsingar komi þér að notum.

Bestu kveðjur, Arnór Bliki. 

Arnór Bliki Hallmundsson, 8.3.2018 kl. 22:48

3 identicon

Sæll aftur. Takk f. þetta. Ég vissi alls ekki hvort þetta væri við Naustahverfi, eða kannski við Hörgárbraut.  Kjarnagata veit ég hvar er, og get prófað að fara út frá henni. Kveðja, Ingibjörg. 

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 9.3.2018 kl. 00:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • PA040027
  • IMG 1503
  • IMG 1501
  • IMG 1500
  • P8291011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 74
  • Sl. sólarhring: 88
  • Sl. viku: 550
  • Frá upphafi: 417771

Annað

  • Innlit í dag: 21
  • Innlit sl. viku: 349
  • Gestir í dag: 21
  • IP-tölur í dag: 21

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband