Hús dagsins: Munkaþverárstræti 40

Munkaþverárstræti 40 reisti Steindór Steindórsson P2180738frá Hlöðum, menntaskólakennari, síðar skólameistari MA  árið 1942. Teikningarnar gerði Tryggvi Jónatansson, en þau Steindór og kona hans Kristbjörg Dúadóttir gerðu uppkaststeikningar að herbergjaskipan.  Munkaþverárstræti 40 er einlyft steinsteypuhús á háum kjallara og með lágu valmaþaki, undir áhrifum frá funkisstíl líkt og flest nærliggjandi hús með horngluggum til suðausturs. Á norðurhlið er lítið forstofuútskot. Í gluggum eru einfaldir lóðréttir póstar með opnanlegum þverfögum, steining á veggjum og bárujárn á þaki.

 Ekki gat höfundur fundið byggingaleyfi til handa Steindóri í bókunum Byggingarnefndar, en lóðina fékk hann 5. maí 1942. Einhverra hluta vegna var það hins vegar lagt til á bygginganefndarfundi rúmum þremur vikum síðar, að honum yrði sagt upp lóðarleigu- og þar kom fram að lóðin væri óbyggð. Þannig má ráða, að byggingin hafi ekki gengið þrautalaust fyrir sig hvað varðar viðskiptin við Bygginganefnd. Steindór segir enda svo frá í sjálfsævisögu sinni Sól ég sá: „Ég átti  þá í ýmsu stríði við byggingarnefnd, og komst þá að raun um að byggingarnefndir eru ekki aðeins óþarfar, heldur oft og einatt til trafala.“ (Steindór Steindórsson 1983: 238). Fylgir sögunni, að hann lét þetta álit sitt óspart í ljós er hann settist í bæjarstjórn enda þá „oftast í stríði og andstöðu við byggingarnefnd“. Steindór segir í ævisögu húsið vera rúma 100 m2 á einni hæð með nokkru geymslurými í kjallara, og húsið byggt nákvæmlega eftir þeirra þörfum, hvorki of né van. Þau skipulögðu herbergjaskipan í uppkaststeikningum eftir þeirra þörfum og kemur fram að engu hefði verið breytt.P2180740

Steindór var afkastamikill fræðimaður á sviði náttúrufræði og grasafræði og liggja eftir hann fjölmargar greinar, rit og bækur. Eitt helsta uppflettirit þess sem þetta ritar í grúski um hús og götur er „Akureyrarbók“ Steindórs þ.e. bókin Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs, gefin út 1993. Um er að ræða ítarlegt uppflettirit þar sem hver einasta gata og mörg örnefni og náttúrufyrirbrigði í landi Akureyrar er uppsláttarorð. Ítarlegast er fjallað um elstu húsin í bænum, s.s. við Aðalstræti, Hafnarstræti, Strandgötu o.fl. Þá er einnig að finna í bókinni örnefnakort af Akureyri og nágrenni, auk ágrips af jarðfræði og vistfræði bæjarlandsins og nágrennis. Sannkallað öndvegisrit, eins og svo mörg önnur skrif eftir Steindór. Hér má sjá opnuviðtal við Steindór í Degi frá ágúst 1982, en þá fagnaði hann áttræðisafmæli sínu.   

Munkaþverárstræti 40 er sagt í upprunalegri mynd í Húsakönnun 2015, og hluti af hinni löngu og heilsteyptu heild funkishúsa við götuna og þá er einnig á lóðarmörkum upprunaleg, steypt girðing. Húsið er í góðu standi og lóðin vel hirt og gróin, en lítið fer fyrir gróanda á meðfylgjandi mynd þar eð hún er tekin í febrúar, nánar tiltekið þann 18. feb. 2018.   

Heimildir:

Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf

Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1941-48.  Fundur nr. 908, 5. maí 1942. Fundur nr. 912, 29.maí 1942.

Óprentað og óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Steindór Steindórsson. (1983). Sól ég sá. Sjálfsævisaga II.bindi. Reykjavík: Örn og Örlygur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 18
  • Sl. sólarhring: 43
  • Sl. viku: 753
  • Frá upphafi: 420039

Annað

  • Innlit í dag: 16
  • Innlit sl. viku: 604
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 13

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband