Hús dagsins: Strandgata 6

Árið 1929 fékk Síldareinkasalan lóð undir skrifstofubyggingu P6210890og óskaði eftir grunninum í norðausturhorni „byggingarreits nr. 40“. Umræddur byggingarreitur er væntanlega samkvæmt fyrsta Aðalskipulagi Akureyrar sem samþykkt var fáeinum misserum áður eða 1927. Fékk Síldareinkasalan lóð 14x12m að stærð og heimilt að reisa þarna bráðabirgðabyggingu 10x15m. Lóðarleiga var 200kr á ári og uppsegjanleg með 6 mánaða fyrirvara að hálfu beggja samningsaðila. Ekki er vitað hver teiknaði húsið.

En Strandgata 6 er einlyft timburhús á lágum grunni með valmaþaki. Steníplötur á veggjum og bárujárn á þaki, og „verslunargluggar“ á framhlið og gluggi á austurhlið með einföldum þverpósti. Húsið skiptist raunar í tvær álmur, vesturhluti er með flötu þaki og er hann áfastur Strandgötu 4 (Nýja Bíó). Í upphafi mun þak húsið hafa verið einhalla (skúrþak) en valmaþak byggt síðar, og er húsið töluvert breytt frá upprunalegri gerð.  

Síldareinkasala Íslands var stofnsett þann 1. maí 1928 eftir lögum frá Alþingi um „einkasölu á útfluttri síld“. Framkvæmdastjórar Síldareinkasölunnar voru þrír, þeir Einar Olgeirsson, Ingvar Pálmason og Pétur Á. Ólafsson. Sem áður segir fékk Síldareinkasalan að reisa þarna bráðabirgðabyggingu og skemmst er frá því að segja, að 90 árum síðar stendur bygging þessi enn og hefur þjónað hinum ýmsu hlutverkum. Síldareinkasalan varð raunar ekki langlíf, en hún varð gjalþrota í desember 1931. Eftir það var húsið nýtt til íbúðar en einnig undir ýmsa starfsemi, þ.e. vestari hluti hússins. Þarna hefur m.a. verið starfrækt fiskbúð, véla- og raftækjasala. Þá var þarna rakarastofa um áratugaskeið. Frá fyrri hluta tíunda áratugarins og fram til hausts 2017  starfrækt þarna Nætursalan, veitinga- og sælgætissala. Þá var húsið aðalbiðstöð Strætisvagna Akureyrar og vagnstjórar þarna með kaffistofu; þarna byrja og enda allar ferðir strætisvagnanna. Enn eru vagnstjórar með aðstöðu í hluta hússins, sem er að öðru leyti ónotað.

Eftir því sem síðuhafi kemst næst, gerir núgildandi skipulag ráð fyrir því, að Strandgata 6 víki. Þannig er líklegast að  Strandgata 6 verði rifin og að þar með ljúki a.m.k. 90 ára sögu „bráðabirgðabyggingar“ Síldareinkasölunnar. Hins vegar má geta þess, að mörg dæmi eru um að gömul timburhús séu flutt og hljóti „framhaldslíf“ á nýjum stað og er það e.t.v. ekki útilokað í þessu tilfelli. Myndin er tekin þann 21. júní 2019.

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 624, 31. jan. 1929. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Arnór. Leiðinlegt að ekki skuli lengur vera hægt að bíða þarna eftir strætó. Og svo er furðulegt að vagnarnir gangi alls ekki um helgar, þótt verslanir séu opnar. Ég lenti í því í sumar að þurfa í apótek á Akureyri og því í Hafnarstræti var lokað kl.17 á fös. Þá var ekki annað í stöðunni en að ganga á laugardagsmorgni frá Brekkugötu 6 til og frá GLERÁRTORGI í frekar slæmu veðri. En hvenær komu rauðir strætisvagnar til Akureyrar?

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 15.9.2019 kl. 16:30

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Já þetta er frekar bagaleg staða fyrir strætófarþega að komast ekki inn í hús, enda þótt aðstaðan úti hafi verið stórbætt með nýjum skýlum og bekkjum. Leiðakerfið mætti svo eflaust bæta á margan hátt. Sjálfur hefði ég t.d. viljað sjá strætó ganga  hringinn um Hamra - Kjarnaskóg- Flugvöll, og ég hef heyrt fleiri tala um stopulan helgarakstur. Á móti kemur að frítt er í strætó; sem er ótvíræður og stór kostur og hef ég vissan skilning á, að það setji þjónustustigi talsverðar skorður.

Enn sem komið er eru aðeins gulir strætisvagnar hér. Vagninn sem þarna sést er "dökk gulur" ef svo mætti segja; hann roðnar víst svona á myndinni vegna stillingar á myndavélinni wink

Kveðja, Arnór. 

Arnór Bliki Hallmundsson, 16.9.2019 kl. 20:14

3 identicon

Það er nú heldur ekki góð þjónusta f. allt ferðafólkið að eina apótekið í miðbænum sé lokað frá kl.17 á fös.til mán.morguns. En kannski túristar fari bara á Glerártorg. Þeir voru a.m.k. búnir að uppgötva Bakaríið við brúna (á Glerá) sem er opnað kl.7.

Ég vil heldur borga í strætó og fá betri þjónustu, en ég hef auðvitað ekki atkvæðisrétt á Akureyri. Ég er m.a.s. á móti því að ókeypis sé f. fólk 67+ hér f. sunnan, þótt ég sé sjálf komin í þann hóp. Fólk sem borgar ekki getur síður kvartað.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 16.9.2019 kl. 22:09

4 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Já tek undir það, dálítið stopul þjónusta að apótekið sé lokað alla helgina (fólk þarf jú líka á lyfjum að halda um helgar), en e.t.v. bót í máli að það eru fleiri apótek og flest opin um helgar- a.m.k. á laugardögum. Góður punktur já, að þeir sem fá frítt eru þá að vissu leyti settir í þá stöðu að geta síður kvartað, enda þótt mér finnist sjálfsagt að lífeyrisþegar fái frítt eða a.m.k. verulegan afslátt.    

Arnór Bliki Hallmundsson, 17.9.2019 kl. 20:13

5 identicon

Sæll  enn.  Það er til ágætur málsháttur á ensku: - Beggars can’t be choosers.- Það er verulegur afsláttur í strætó hér f. aldraða+öryrkja, en ég vil ekki vera gerð að ölmusumanneskju. - Það var líka stórsnjallt hjá Rvík að hætta að hafa ókeypis f. fólk yfir 67 í söfn borgarinnar og bjóða í staðinn ódýrt Menningarkort 67+. Þá þarf engin/n að standa í því að sanna aldur sinn í hvert skipti. Þetta var nú mest gert til að þurfa ekki að hleypa öllum EES-borgurum yfir 67 ókeypis inn líka, það er víst bannað að mismuna þeim.

Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 17.9.2019 kl. 21:24

6 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Já þessi enski málsháttur segir allt sem segja þarf. Þetta er nokkuð snjallt fyrirkomulag hjá söfnunum í Rvík (þekki svosem ekki alveg til safnanna hér í bæ). 

Arnór Bliki Hallmundsson, 18.9.2019 kl. 19:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 48
  • Sl. viku: 738
  • Frá upphafi: 420024

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 590
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband