Hús dagsins: Brunná

Lítið eitt ofan Eyjafjarðarbrautar, við afleggjarann upp í Kjarnaskóg stendur Brunná.P2260985 Húsið, sem er líkast til syðsta íbúðarhús Akureyrar, reistu þau Árni Böðvarsson og Hólmfríður Stefánsdóttir sumarið 1946, en byggingaleyfi fengu þau veturinn eftir, eða í mars 1947. Sunnan við húsið rennur Brunná (sjá mynd hér að neðan) en hún á upptök sín á Súlumýrum og fellur niður Löngukletta gegnum Hamrasvæðið og Kjarnaskóg og í Eyjafjarðará við flugbrautina.

Brunná er einlyft steinhús með lágu valmaþaki, með útskot á miðri framhlið. Veggir eru með sléttum múr og bárujárn á þaki en krosspóstar í gluggum. Aðrar byggingar á Brunná  eru m.a. útihús og lítill geymsluskúr úr timbri og bárujárni um 50 metrum norðan íbúðarhússins.  Frá Brunná eru rúmir 4km að Miðbæ Akureyrar, en um 500m að mörkum Akureyrar og Eyjafjarðarsveitar.

                Upprunalega var byggt á Brunná, sem byggð er úr landi Kjarna, árið 1889 en þá lá jörðin undir Hrafnagilshrepp. Þar var að verki Baldvin Jónatansson, eigandi og ábúandi Kjarna, sem þarna hugðist starfrækja eins konar „vegasjoppu“, P2260986þ.e. selja ferðalöngum greiða, kaffi og vindla. Enda staðurinn í alfaraleið Upprunalega bæjarstæðið var nokkuð neðar og vestar en núverandi hús, á Brunnáreyri, mögulega á svipuðum slóðum og nú eru öryggismörk Akureyrarflugvallar. Brunná er ekki landmikil jörð en náði þó að framfleyta einhverjum tugum kinda, fáeinum kúm og hrossum á fyrri hluta 20. aldar. Árið 1930 fór Brunná í eyði og var það í hálfan annan áratug. 

Árið 1946 eignuðust þau Árni Böðvarsson og Hólmfríður Stefánsdóttir Brunnárlandið. Höfðu þau búið á Melum, sem stendur spölkorn norðan og ofan Brunnár. Munu þau hafa búið í tjöldum á enginu við gamla bæjarstæðið meðan húsið var í byggingu (sbr. Guðmundur, Jóhannes  og Kristján 1990: 716). Í Byggðum Eyjafjarðar kemur    fram, að Brunnárhúsið sé byggt 1946. Það er hins vegar ekki fyrr en 7. mars 1947, sem Bygginganefnd Akureyrar heimilar Árna Böðvarssyni að „reisa íbúðarhús á erfðafestulandi sínu, skv. meðfylgjandi uppdrætti“.   Réttum tveimur vikum fær Árni lóð undir hús sitt, sem hann hefur þegar reist á erfðafestulandi sínu. Þannig er ljóst, að húsið var risið. Óskaði Árni eftir lóð ca. 80 – 100m  á lengd meðfram þjóðvegi og lóðarréttindi undir veg að húsinu. Fékk hann lóðina en nefndin féllst ekki á, að hann fengi sérstaka lóð undir veg en tók fram, að „húsi þeirra verði séð fyrir vegi, er landið verður skipulagt til bygginga.“ Mögulega hafa verið einhverjar hugmyndir um uppbyggingu þéttbýlis á þessum slóðum síðar meir- þetta var fyrir tíma Kjarnaskógar.

                 Árni og Hólmfríður bjuggu á Brunná til ársins 1957 og keyptu þá Gústaf Jónsson og Hlín Jónsdóttir býlið. Árni stundaði kartöflurækt og hafði tvö hross og tólf kindur, en bústofn Brunnárbænda mun ekki hafa orðið mikið stærri en hjá honum, þó ábúendur hafi löngum haft hross, hænsni og fáeinar aðrar skepnur. Árið 1963 var byggt við húsið til norðurs eftir teikningum Hauks Árnasonar og fékk húsið þá það lag sem það síðan hefur. Að öðru leyti mun húsið lítið breytt frá upphafi. Húsið, sem er einfalt og látlaust er til mikillar prýði og má segja, að hið geðþekka steinhús „heilsi“ öllum gestum Kjarnaskógar, sem þangað leggja leið sína frá Eyjafjarðarbraut. Á lóðinni er mikill trjágróður, m.a. belti af stæðilegum grenitrjám framan við húsið en trjágróðurinn sunnan og ofan hússins renna nokkurn veginn saman við Kjarnaskóg. Norðan og ofan hússins er beitarhólf hrossa. Myndirnar eru teknar þann 26. febrúar 2021.

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir  1941-48. Fundur nr. 1073, 7. mars 1947, nr. 1075, 21. mars 1947. Óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Guðmundur Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon. 1993. Byggðir Eyjafjarðar 1990. II bindi. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 170
  • Sl. sólarhring: 205
  • Sl. viku: 779
  • Frá upphafi: 419870

Annað

  • Innlit í dag: 128
  • Innlit sl. viku: 616
  • Gestir í dag: 125
  • IP-tölur í dag: 122

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband