Hús dagsins: Gránufélagshúsin, Strandgata 49

P5060007Strandgata 49 mun vera elsta hús sem enn stendur á Oddeyri. En miðað er við að byggingarár hússins sé 1873 þegar vestasti hlutinn var reistur, en það er hlutinn sem er næst á myndinni. Þar var raunar um að ræða eldra hús sem var reist á Vestdalseyri við Seyðisfjörð en tekið niður og reist aftur hér. Húsið mun hafa risið í áföngum og verið fullklárað um 1885. Raunar eru þetta þrjú hús hver með sínum einkennum eins og sjá má. Ef vel er að gáð má sjá að risið á austurhlutanum er portbyggt* , en ekki á þeim vestasta og á honum er stór miðjukvistur. Austurhlutinn mun vera yngstur þessara bygginga. Miðhlutinn, tveggja hæða bygging með brotnu risi er sennilega sá sem gefur húsinu mestan svip. Sá hluti var kallaður Mikla bygging, enda var þetta hæsta hús á Oddeyrinni þegar það var byggt. Þetta hús var í eigu Gránufélagsins, sem var verslunarfélag, stofnsett 1870. Helstu forvígismenn þess voru Tryggvi Gunnarsson og sr. Arnljótur Ólafsson. Ári síðar keypti félagið Oddeyrina eins og hún lagði sig af Þorsteini Daníelssyni á Skipalóni og sá félagið um lóðasölu þegar byggð hófst á Oddeyrinni á 8. og 9. tug 19. aldar. Gránufélagið var afar umsvifamikið á áratugunum 1870-1900 en tók að halla undan fæti upp úr aldamótum og 1912 komst það í eigu Hinna sameinuðu Íslenskra Verslana, sem hafði skrifstofur í þessu húsi til 1926. Kannski er það dæmi um hversu ráðandi Gránufélagið var að gata á Oddeyrinni heitir eftir því. Húsið var alla tíð iðnaðar- og verslunarhúsnæði og veit ég ekki til þess að búið hafi verið í því, en það getur hins vegar meira en vel verið. Um 1990 var þetta hús orðið nokkuð hrörlegt. Það var einnig gjörbreytt að innan frá fyrstu gerð, enda starfandi vélsmiðja í því. Þá hafði einhvern tíma verið byggt mikil steinsteypubygging; renniverkstæði við húsið aftan til. En haustið 1993 lauk endurgerð hússins og þar opnaði skemmtistaðurinn við Pollinn. Síðan hefur verið veitingastarfsemi í húsinu og nú er hér skemmtistaðurinn Vélsmiðjan, en það heiti hefur beina skírskotun í fyrra hlutverk hússins.

*Portbyggt ris: Portbyggt merkir að risið er "upphækkað" Þ.e. í stað þess að súðin myndi horn við gólfflöt, kemur eins konar framlenging eða upphækkun á fyrstu hæðinni ( eða hæðinni undir risinu ).

PS. Ég segi hérna efst að Gránufélagshúsin sé elsta hús á Oddeyri. En bíðum við,P6050028við Eiðsvallagötu 14 stendur hús sem  kallað er Gamli Lundur. Það mun byggt 1858. En hins vegar var hinn upprunalegi Lundur rifin til grunna um 1980 og nýtt hús, nákvæm eftirlíking reist í staðinn. Þannig er Gamli Lundur sem nú stendur ekki nema 25-30 ára. Hins vegar má alltaf tína til með mörg gömul hús sem gerð hafa verið upp, að kannski eru ekki nema örfáir bjálkar eftir frá upphafi; margsinnis búið að skipta um haus og hamar þannig að ekki er kannski allt sem sýnist í þeim efnum.

Myndirnar í þessari færslu eru teknar í maí og júní 2006.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • PA040027
  • IMG 1503
  • IMG 1501
  • IMG 1500
  • P8291011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 58
  • Sl. sólarhring: 86
  • Sl. viku: 534
  • Frá upphafi: 417755

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 340
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband