Hús dagsins: Hafnarstræti 57, Samkomuhúsið

P6050022Hafnarstræti 57 eða Samkomuhúsið var reist árið 1906 af félagsskap sem kallaðist Góðtemplarar, og var jafnan kallað Góðtemplarahúsið eða Gúttó. Húsið hefur mörg einkenni norskra Sveitser húsa, þ.e. stórbrotið útskorið þakskraut og mjög sérstæðir gluggapóstar og jafnvel er talið að það hafi komið tilhöggvið frá Noregi. Byggingarmeistarar hússins voru þeir Björn Björnsson, Guðbjörn Björnsson og Guðmundur Ólafsson, en smíði hússins tók aðeins sex mánuði. Er það næsta ótrúlegt, þegar það er haft í huga að á þeim tíma þekktist ekkert sem hét byggingarkrani, steypuhrærivél, vélsög eða nokkur rafmagnsverkfæri. Góðtemplarar áttu húsið í áratug en Akureyrarbær eignaðist það 1917. Sama ár var Leikfélag Akureyrar en það hafði frá upphafi aðsetur í húsinu og hefur enn. Auk þess að hafa þjónað sem leikhús og samkomuhús Akureyringa í 103 ár hefur ýmisleg önnur starfsemi verið í húsinu. Amstbókasafnið var þarna til húsa í 23 ár, til 1930 einnig bæjarskrifstofur og póstafgreiðsla um tíma. Þá hefur einnig búið í húsinu. Húsinu hefur oftsinnis verið breytt og endurskipulagt að innan en hefur að mestu haldið einkennum sínum að utan. Sal var gjörbreytt um 1950 en færður sem næst upprunalegu horfi 1997. Á árunum 2002-2005 var húsið tekið algerlega í gegn bæði að utan og innan enda aðstaðan löngu orðin úrelt og uppfyllti engan vegin þær kröfur sem nútíma leikhús starfsemi gerir. Þá var m.a. reist steypt viðbygging bak við húsið sem hýsir búningsaðstöðu, og kemur hún í stað skúrabyggingar  sem reist var um 1950. Nýja viðbyggingin fellur mun betur að húsinu og hefur eflaust stórbætt aðstöðuna sem var ansi þröng. Einnig var umhverfi hússins tekið í gegn og "skipt um brekku" bæði ofan og neðan við. En brekkan á bakvið húsið hefði sennilega endað með því að sópa húsinu niður á flöt vegna gífurlegs framskriðs. Samkomuhúsið er eitt af helstu kennileitum Akureyrar, enda stórt og á áberandi stað. Einhvern tíma hlýtur að koma að því að Leikfélagið sprengi þetta hús endanlega utan af sér og þurfi að flytjast annað. Þá er ég með það alveg á hreinu hvert gæti verið næsta hlutverk hússins. Ég hefði sagt að þetta hús væri kjörið sem  félagsmiðstöð hvers konar þar sem salur gæti nýst sem tónleikahalds eða funda og ýmis aðstaða í mörgum minni sölum og herbergjum til félagsstarfsemi. Þá held ég að þetta gæti orðið fyrirtaks kvikmyndahús.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hallmundur Kristinsson

Að sjálfsögðu hefur breytingin bætt aðstöðuna, en hafandi unnið í þessu húsi í þrjátíu ár var ég hissa á hversu mjög viðbyggingin var skorin við nögl. Raunar var leikhúsfólki sagt þegar verið var að sætta það við teikningar að henni að þetta væri nú ekki til svo   langs tíma, nýja menningarhúsið væri í farvatninu og auðvitað flytti leikfélagið þangað. Það breyttist svo síðar og leikfélaginu sagt að aðsetur þess yrði í samkomuhúsinu um ókomna framtíð. En að sjálfsögðu gæti það komið með eina og eina sýningu inn í menningarhúsið.
En það er þó annað sem hneykslar mig öllu meir, og það er að ekki skuli hafa verið réttur af mænirinn á þakinu þegar skipt var um járn á þakinu. Að sjá þetta slöður á nýklæddu þaki er hreint og beint hræðilegt!

Hallmundur Kristinsson, 10.8.2009 kl. 22:34

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Já, mig rekur minni til þess að þú hafir verið að tala um það, hvað þessi viðbygging væri nú fáránlega lítil. Enda er það rétt að hún er varla nema örfáir metrar á breiddina.

Arnór Bliki Hallmundsson, 10.8.2009 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 47
  • Sl. viku: 747
  • Frá upphafi: 420033

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 598
  • Gestir í dag: 8
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband