Hús dagsins: Norðurgata 2 og Strandgata 23. Steinskífuklæðning.

Hús dagsins eru tvö að þessu sinni, en þau eiga eitt atriði sameiginlegt, fyrir utan að vera timburhús og standa á Oddeyri.P2110016 Þau eru eftir því sem ég best veit einu húsin sem enn standa á Akureyri sem klædd eru steinskífu. Þessi sérstaka klæðning mun hafa verið algeng upp úr aldamótum en fá hús standa orðið eftir með þessari klæðningu. Þetta eru rúnnaðar grjótflögur, ca. tomma að þykkt og eru þær negldar á vegg. Skífan hefur þann kost að vera "viðhaldsfrí", þ.e. hún ryðgar ekki og ekki þarf að mála hana. En að sjálfsögðu endist hún ekki að eilífu og á tímanum geta þær farið að losna. Grjótflögurnar eru einnig brothættar. Úr fjarlægð líkist þessi klæðning fiskhreistri. Munu þessar skífur vera ættaðar frá Noregi og í einni sögugöngu um Oddeyri heyrði ég að þetta hefði verið unnið í námum nálægt Bergen. Ekki er mér kunnugt um hvaða bergtegund er í þessari skífu en mér dettur í hug að þetta sé skylt graníti. Eins og áður segir eru þetta einu húsin sem enn standa með steinskífu. Fyrir um 20 árum var rifið eitt mesta stórhýsi Oddeyrar fyrr og síðar, Snorrahús, Strandgata 29. Það hús var allt skífuklætt. Stóð Norðurgata 2 á bakvið það. Þá stóð steinskífuklætt hús í göngugötunni, undir norðurgafli Amarohússins. Var það skóverslun M.H. Lyngdal, Hafnarstræti 103,P6050019 en það hús var rifið á vordögum 1998. Þá munu fleiri hús hafa verið skífuklædd en skífunni seinna skipt út fyrir aðra klæðningu. En að húsunum sjálfum.

Strandgata 23 ( efri mynd ) var byggt 1906 af kaupmanninum Metúsalem Jóhannssyni. Er það undir sterkum áhrifum frá norska Sveiser stílnum en hann var ráðandi í húsagerð efnafólks upp úr 1900. Ýmis starfsemi hefur verið í húsinu en nú er samkomusalur á efri hæð, íbúðir á neðri hæð auk þess sem Ferðafélag Akureyrar hefur sínar bækistöðvar þar. Það var um árabil í bakbyggingu við þetta sama hús en hún var rifin um 1998.

Norðurgata 2 lætur nokkuð minna yfir sér en það er byggt 1897. Hefur alla tíð verið íbúðarhús, nú mun það vera einbýli en sjálfsagt hafa íbúðir verið fleiri einhvern tíma. Sérstök uppganga á efri hæð á bakhlið hússins bendir til að þar hafi verið sérstök íbúð, en risi hefur einnig verið lyft að aftan. Myndirnar í þessari færslu voru teknar í feb. 2007 (Strandgata 23) og júní 2006. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ragnheiður

Húsið við Norðurgötu er óskaplega fallegt hús..nema hvað þessi blái litur kannski.

Ég les hjá þér og mér sárnar nánast þegar þú telur upp það sem hefur verið rifið..það á ekki að rífa allt og eyðileggja, ég bendi á Stykkishólm ..

Takk fyrir færslu

Ragnheiður , 2.10.2009 kl. 13:29

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Algjörlega sammála þessu með að oft er farið of geist í niðurrif. Af þeim húsum sem ég nefni í færslunni er sérstaklega mikil eftirsjá af Snorrahúsi. Það var ekki ósvipað Strandgötu 23 að stærð og lögun, jafnvel háreistara ef eitthvað er. Það hafði að vísu staðið ónotað áratugum saman en mér skilst að við niðurrifið hafi komið í ljós að það var næsta ófúið og í fínu lagi. M.H. Lyngdal var líka glæsilegt hús og hefði getað verið mikil prýði í miðbænum. Stykkishólmur er mjög fallegur bær. Þar kom ég sumarið´93 og gisti í einu af eldri húsum staðarins, Egilshúsi.

Arnór Bliki Hallmundsson, 2.10.2009 kl. 22:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • PA040027
  • IMG 1503
  • IMG 1501
  • IMG 1500
  • P8291011

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 21
  • Sl. sólarhring: 58
  • Sl. viku: 497
  • Frá upphafi: 417718

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 338
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 10

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband