15.6.2018 | 14:35
Hús dagsins: Munkaþverárstræti 24
Munkaþverárstræti 24 mun Gísli Sigurjónsson bifreiðarstjóri hafa reist árið 1938, en hann fékk lóð norðan við Bjarna Rósantsson þ.e. Munkaþverárstræti 22. Gísli fékk leyfi til að reisa hús á lóðinni, 10x8,4m að stærð, á einni hæð á kjallara og með flötu þaki. Teikningarnar að húsinu, eins og svo mörgum öðrum á Akureyri á þessum tíma gerði Tryggvi Jónatansson. Árið 1999 var byggt á húsið lágt valmaþak eftir teikningum Bjarna Reykjalín en að öðrum leyti mun húsið lítt breytt frá upphafi.
Munkaþverárstræti 24 er einlyft r- steinhús í funkisstíl. Það stendur á háum kjallara og er með bárujárnsklæddu valmaþaki en veggir eru múrsléttaðir. Í gluggum eru lóðréttir póstar með opnanlegum fögum þvert yfir. Horngluggar eru á suðurhlið. Inngöngudyr og steyptar tröppur að götu eru á norðurhlið og svalir til austurs og verönd neðan við þær. Þak slúttir yfir inngöngutröppur og svalir. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús, og bjó Gísli Sigurjónsson hér alla sína tíð, en hann lést í ársbyrjun 1987. Eiginkona Gísla, Sigríður Baldvinsson frá Steindyrum í Svarfaðardal gegndi stöðu framkvæmdastjóra Pöntunarfélags Verkalýðsins á fimmta áratugnum. Það var trúlega ekki algengt um og fyrir miðja 20.öld að konur væru forstjórar félaga og samtaka á borð við Pöntunarfélagið. Sigríður var einnig ein af stofnfélögum Húsmæðrafélags Akureyrar, en einnig var hún í stjórn Húsmæðraskólafélagsins sem hafði m.a. veg og vanda af byggingu Húsmæðraskólans við Þórunnarstræti, sem tekinn var í notkun 1945. Sigríður lést í janúar 1951, langt fyrir aldur fram eða 46 ára.
En Munkaþverárstræti er reisulegt hús og í góðri hirðu, með tiltölulega nýlegu þaki. Það er hluti langrar og heillegrar raðar funkishúsa við Munkaþverárstræti og mun hafa 1.stigs varðveislugildi sem hluti af heild skv. Húsakönnun 2015. Myndin er tekin þ. 18. feb 2018.
Gamli Húsmæðraskólinn að Þórunnarstræti 99 var byggður árin 1942-45 en Sigríður Baldvinsdóttir forstjóri í Munkaþverárstræti 24 var einn stjórnarmeðlima Húsmæðraskólafélags Akureyrar. Í tenglinum í textanum hér að ofan þakkar hún f.h. stjórnarinnar fyrir gjafir til byggingarinnar árið 1943. Húsið hefur hýst ýmsa starfsemi þessi rúmu 70 ár, Skammtímavistun hefur verið á efri hæðum frá 2013 en í maí 2016 voru nýjar höfuðstöðvar Skátafélagsins Klakks vígðar í húsinu. Á þessari mynd eru skátar að búa sig í hátíðarskrúðgöngu á Sumardaginn fyrsta sl. 19.apríl.
Heimildir: Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr.811, 19. Feb 1938. Fundur nr. 814, 2. apríl 1937.
Óprentað og óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 422
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 329
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.