Hús dagsins: Lækjargata 4

Þeir sem kynnt hafa sér sögur Jóns Sveinssonar, Nonna, eða farið í sögugöngur Minjasafnsins um Nonnaslóð kannast við söguna um það, þegar Nonni, þá 12 ára, hugleiddi sína örlagaríkustu og stærstu ákvörðun á lífsleiðinni á göngu um brekkubrúninar ofan Fjörunnar. Hann mun hafa sest á stóran stein og hugleitt tilboð um inngöngu í kaþólskan skóla í Frakklandi. Virti hann fyrir sér Eyjafjörðinn á fögru sumarkvöldi og minnist m.a. skipa og báta á firðinum. Á þessari leið sinni gæti hann hafa séð húsaþyrpinguna neðst í Búðargilinu og þar á meðal nýbyggða hlöðu (eða á byggingarstigi) ofan við hús Stephans Thorarensen. Löngu síðar var þeirri hlöðu breytt í verslun og síðar íbúðarhús og fékk númerið 4 við Lækjargötu.  

Það var sumarið 1870 sem Nonni fór í þennan sögufræga göngutúr umP6171005 Naustahöfða. Fyrr um vorið, 30. apríl, hafði Stephan Thorarensen sýslumaður, sem búsettur var í Aðalstræti 6 (götunafn og númer kom síðar) fengið „að setja heyhlöðu á balann vestan við íbúðarhús hans“ og bygginganefnd ekki séð neitt því til fyrirstöðu. Ekki fylgja neinar lýsingar en hlaðan var byggð úr timbri, vegghæð samsvarandi einni hæð og með háu risi. Hugtakið einlyft á nefnilega tæplega við um hlöðu, sem er einn geymur, því til þess að hús sé einlyft þarf væntanlega að vera milliloft.

Lækjargata 4 er tvílyft timburhús með á lágum steingrunni og  með háu risi. Skv. Húsakönnun 2012 er húsið bindingsverkshús (Hjörleifur Stefánsson, Hanna Rósa Sveinsdóttir 2012:124), þ.e. grindin full af steini eða steypu. Á risi eru smáir kvistir fyrir miðju og á vesturstafni er steinsteypt viðbygging, tvílyft með lágu risi. Veggir eru klæddir panel eða vatnsklæðningu, sexrúðupóstar í gluggum og bárujárn á þaki. Að austan er áfast húsið Lækjargata 2b. Grunnflötur hússins mælist 6,28x9,61m skv. teikningum Þrastar Sigurðssonar en viðbygging mun 4,59x1,9m að sunnan en 4,59x2,51m að vestan. M.ö.o. byggingin er breiðari að norðan og er grunnflötur því ekki hornréttur. Fylgir viðbygging þannig stefnu Spítalavegar, sem liggur þarna á milli stafna húsa nr. 4 og 6 við Lækjargötu.

Velti lesendur því fyrir sér, hvort Stephan Thorarensen, sem byggði Lækjargötu 4 og Þórður Thorarensen, sem byggði næsta hús ofan við, Lækjargötu 6, hafi verið feðgar upplýsist hér, að það voru þeir ekki. Börn Stephans, eða Stefáns Thorarensen og hinnar dönsku Oliviu Juby, hétu Sólveig, Oddur, Jóhann og Emma. Stephan var fæddur árið 1825 að Nesi við Seltjörn. Lögfræði nam hann í Danmörku og tók við embætti sýslumanns Eyjafjarðarsýslu árið 1859. Gegndi hann því í röska þrjá áratugi eða til 1891. Þegar Akureyri fékk kaupstaðarréttindi árið 1862 varð hann einnig bæjarfógeti. Stephan tók m.a. þátt í stofnun Gránufélagsins og sparisjóðs, sem og fyrsta leikfélags bæjarins. Um Stephan, sem lést í nóvember 1901, segir m.a. í minningargrein Skapta Jósepssonar í Austra: „Sáttfús maður var Stefán sýslumaður fyrir sjálfan sig og aðra, og eru ótalin þau mál, er hann sætti milli sýslubúa sinna, til friðar og einingar fyrir héraðs- og bæjarbúa. Eptir því sem dómar hans stóðu sig vel að öllum jafnaði fyrir hæstarétti, þá hefir Stefán sýslumaður hlotið að vera góður lagamaður, enda mun enginn héraðsbúa hans hafa nokkru sinni ætlað honum, að hann hafi dæmt eptir öðru en sanni og rétti.“ Þá orti Matthías Jochumsson langan minningarbálk eftir Stephan, sem hófst á erindunum:

Hví birtir hjá blinds manns rúmi?

hví brosir hér skrúð og rós?

Því hann er nú burt úr húmi,

sem hrópaði: Meira ljós!

 

En hjá oss er hryggð í ranni,

og hnípin er bæjarþjóð,

því föður og fyrirmanni

vér flytjum vor hinnstu ljóð.   

Stephan seldi hús sitt, Aðalstræti 6, um svipað leyti og hann byggði hlöðuna, sem nú er Lækjargata 4. Væntanlega hefur hlaðan fylgt með í kaupunum en engu að síður er það svo, að þegar lóðin Lækjargata 6 var útmæld fimmtán árum síðar, miðaðist hún við „hlöðu sýslumannsins.“ E.t.v. hefur hlaðan verið kölluð því nafni, enda þótt hún hafi löngu skipt um eiganda. Sá sem keypti af Stephan var danski bakarinn Hendrik Schiöth. Hann breytti hlöðunni í sölubúð og hefur þá væntanlega sett inngöngudyr að Lækjargötu og gluggasetningu, sem þjónaði sem búðargluggar. Þ.e. tveir samliggjandi gluggar hægra megin dyra og aðrir tveir með mjög stuttu bili vinstra megin. Síðar tók Carl, sonur Hendriks, við eignunum.  

Árið 1916 var húsið virt til brunabóta og þá lýst á eftirfarandi hátt: „Skrifstofu- og vörugeymslubygging, einlyft á kjallara, með háu risi. Á gólfi er ein skrifstofa og tvö vörugeymsluherbergi. Á lofti ósundurþiljað geymslupláss fyrir vörulager. Kjallari tvíhólfaður notaður til geymslu. [...] Við vesturenda hússins er skúr" (Brunabótafjelag Íslands 1916:102). Enn fremur kemur fram, að húsið sé 9,2x6,3m að grunnfleti, 5,2m hátt og á því átta gluggar. Veggir eru timburklæddir og þak járnklætt.

Árið 1920 fékk Carl Schiöth leyfi til þess að byggja aðra hæð ofan á húsið. Var honum leyft það, svo fremi sem byggingin stæðist brunamálalög. Þá fékk hann leyfi til að reisa steinsteypta viðbyggingu, inngöngu og stigabyggingu,  á vesturstafn hússins árið 1923. Var leyfið veitt með því skilyrði, að byggingin næði ekki meira en 3,5 álnir frá suðvesturhorni. Af Manntölum  ráða, að ekki hafi verið flutt inn í húsið fyrr en 1924, en þá eru búsett í húsinu téður Carl F. og Jónína Schiöth, fjögur börn þeirra og fósturdóttir og vinnukona.  Þann 17. mars 1927 auglýsir Carl Schiöth húsið til sölu og ekki nóg með það, heldur fylgir nákvæm lýsing á herbergjum og búnaði hússins ásamt því að hann rekur framkvæmdir sínar við húsið síðustu ár á undan. Líklega var um að ræða eina ítarlegustu fasteignaauglýsingu sem birst hafði á síðum blaða hérlendis. Raunar er hún á pari við, eða jafnvel ítarlegri, en eignalýsingar sem birtast í auglýsingum. Carl segir „Hús þetta er að mestu nýbygt, og með öllum nútíma þægindum“. Ennfremur að það sé [...]raflýst hátt og lágt, og í göngum og við tröppur er tvöföld leiðsla svo hægt er að kveikja og slökkva á víxl, hvert sem maður fer upp eða ofan, allaleið frá götudyrum og upp á háaloft“. Þá segir hann „Breyting sú, er eg gerði á húsinu, sem var vörulagerhus áður, er í því innifólginn að eg setti í húsið miðstöð, vatnsleiðslu, rafleiðslu, skorstein og bygði vestan við húsið steinhús, með kjallara og tvær hæðir þar ofan á, þiljaði sundur húsið hátt og lágt til íbúðar, þar, sem það áður að mestu leiti voru stórir salir, vatnslaust, ljóslaust og eldstæðislaust“ (Carl Schiöth, Íslendingur 17. mars 1927). Svo fátt eitt sé nefnt. Húsið bauð hann til sölu á 16-18 þúsund og taldi ódýrt, sem það vissulega var, því breytingarnar kostuðu hann 17-19 þúsund og húsið var virt á 29.400 kr.

Hver var svo heppinn, að tryggja sér þetta nýuppgerða glæsihýsi, á slíkum kostakjörum? Það var Jakob Kristinsson sjómaður. Bjuggu hann og Filippía Valdemarsdóttir og börn þeirra hér um langt árabil. Í þeirra tíð hér,  þann 13. febrúar 1936, kom upp eldur í húsinu og mun tæpt hafa staðið, að það brynni til grunna. Barðist allt slökkvilið bæjarins, 40 manns, við eldinn í þrjá tíma (Jón Hjaltason 2016: 100). Kom fram í mjög stuttri frétt Íslendings að húsið hafi brunnið allmikið að innan áður en tókst að slökkva. Engum sögum virðist fara af afdrifum fólks í bruna þessum en ljóst að engan sakaði.  Jakob og Filippía byggðu húsið upp aftur og munu hafa búið hér allt til ársins 1967 og ári síðar fluttust á Hrafnistu. Hafa síðan margir átt og búið í húsinu um lengri og skemmri tíma og lengst af voru tvær íbúðir í húsinu.

Húsinu hefur verið mjög vel við haldið síðustu áratugi, klæðningar að utan, gluggar og þak er allt tiltölulega nýlegt. Árin 2012-16 P3190002fóru fram gagngerar endurbætur á húsinu að innan jafnt sem utan, eftir teikningum Þrastar Sigurðssonar. Á þeim teikningum var gert ráð fyrir stórum miðjukvistum.  Er húsið nú allt í fyrirtaks hirðu og frágangur allur hinn snyrtilegasti. Er það til mikillar prýði og svo sannarlega eitt af mörgum perlum Innbæjarins. Það er hluti einnar elstu og merkustu húsaþyrpingar bæjarins neðst í Búðargili og hefur þannig óskorað varðveislugildi og er vitaskuld aldursfriðað. Húsið myndar, ásamt næstu húsum afar skemmtilegar heildir, stafn Lækjargötu 2b „gægist“ framfyrir vesturgafl hússins. Og þessir tveir vinalegu öldungar, nr. 4 og 6 við Lækjargötu má segja, að myndi einhvers konar „hlið“ inn í Innbæinn þar sem Spítalavegurinn greinist frá götunni um örmjótt sundið milli gafla þeirra. Ein íbúð er í Lækjargötu 4. Myndirnar eru teknar 17. júní 2021 og 19. mars 2020. 

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1857-1902. Fundur nr. 38, 30. apríl 1870. Fundargerðir 1902-21. Fundur nr. 472, 12. Mars 1920. Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 537, 2. Júní 1923. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri. Elstu fundargerðabækur Bygginganefndar eru aðgengilegar á vef Héraðsskjalasafnsins.

Brunabótamat 1916-17. Varðveitt á Héraðsskjalafninu á Akureyri, aðgengilegt á vefnum: Virðingabók Brunabótafélags Íslands, Akureyrarumboð 1916-1917 by Héraðsskjalasafnið á Akureyri - Issuu

Fasteignamat 1918. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Hjörleifur Stefánsson, Hanna Rósa Sveinsdóttir. 2012. Húsakönnun- Fjaran og Innbærinn. Minjasafnið á Akureyri. Pdf-skjal á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/Fjaran-og-Innbaerinn-2012.pdf

Jón Hjaltason. 2016. Bærinn brennur. Akureyri: Völuspá útgáfa

Ýmis manntöl og gögn á vef Héraðsskjalasafns og manntal.is,  greinar á timarit.is; sjá tengla í texta.


100 ár frá rafvæðingu Akureyrar

30. september 1922 var svo sannarlega stór dagur í sögu Akureyrar en þá birti mjög til og það í bókstaflegri merkingu; þá var nefnilega í fyrsta skipti hleypt á bæinn rafmagni frá rafveitu, nánar tiltekið Rafveitu Akureyrar. Á einstaka stöðum höfðu fram að því verið rafstöðvar en þarna var tekin í notkun rafveita til almennings.

Þeim sem rýnir í samtímaheimildir t.d. á timarit.is kynni að þykja lítið fjallað um þennan stórviðburð; hefði þetta ekki á vera forsíðufrétt í bæjarblöðunum. Ef við rýnum t.d. í DagÍslending og Verkamanninn eru þessi frétt aðeins ein af stuttum fréttum á meginopnum blaðanna, í sama dálki og fréttir af bátum, landbúnað og ekkert endilega efst á listanum. Tilkynningar um skólasetningar, hjúskap og skipaferðir eru t.d. ofar á blaði í tveimur blaðanna. Þetta kann okkur, sem ekki geta hugsað okkur daglegt líf án rafmagns, kannski einkennilegt; þvílík bylting og straumhvörf sem þetta hljóta að hafa verið. En það er nú ekki eins og bæjarbúar fyrir einni öld hafi beðið í ofvæni eftir því að stinga sjónvörpum, hljómflutningstækjum, kaffivélum, tölvum eða hárþurrkum í samband, eða að hlaða síma eða spjaldtölvur. En auðvitað var mikil bylting fólgin í því, að geta kveikt rafljós.

Það dró líka e.t.v. úr hátíðleika þessa merku tímamóta, að ekki nutu allir rafljósa þetta fyrsta kvöld og einhver vandræði höfðu skapast varðandi ljósaperur og íhluti í rafbúnað. Það vill nefnilega svo til, að á forsíðu Dags tæpum tveimur vikum síðar er frétt um rafveituna, enn viðameiri en fréttirnar af fyrstu straumhleypingunni. Svo virðist sem röð mistaka og misskilnings hafi leitt til þess, að afleitir kaupsamningar hafi verið gerðir við birgja hinnar nýju rafveitu, íhlutir, búnaður og mælar hafi verið of fáir, af röngum gerðum og ekki borist í tæka tíð. Því hafi sárafáir geta notið rafmagnsins þessa fyrstu daga og enn löng bið. Eða eins og segir orðrétt: Afleiðingar þessa alls eru þær, að fyrirtækið verður af tekjum sínum, fjöldi bæjarbúa er óánægður, svo að bærinn er fullur af öfund og ljótum munnsöfnuði og í stað þess að umbót þessi veki almenna hrifningu og að á móti henni væri tekið með tilhlýðilegri viðhöfn, er enn ekki búið, að leggja inn í Samkomuhús bæjarins og rafmagnið kemur hægt og drattandi eins og íslenzkur framkvæmdahugur. (Dagur 5. árg, 41. tbl. 12. okt 1922. Ekkert nafn) 

En Bandaríkjamaðurinn James Normann Hall, sem var einmitt staddur á Akureyri þennan merka dag í septemberlok hafði aðra sögu að segja, svo sem sjá má hér, á vef Grenndargralsins. Hann lýsir mikilli hrifningu og fögnuði bæjarbúa og talar um, að hvarvetna hafi logað rafljós í gluggum. (Hann virðist alltént ekki hafa orðið var við öfund og ljótan munnsöfnuð bæjarbúa).  Það er ástæða til þess, að vera þakklátur fyrir blessaða raforkuna, sem er algjör grundvallarforsenda nútíma lífshátta. Flest tökum við henni sem sjálfgefinni og erum stundum minnt á það, að það er hún alls ekki. T.d. þegar  flutningskerfi hennar verða fyrir skakkaföllum vegna veðurs eða annarra utanaðkomandi þátta

P7040025

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

UPPHAFIÐ. Glerárstífla var reist árin 1921-22. Þaðan kom fyrsta rafmagnið, sem hleypt var á Akureyri. Byggingunni stýrði sænskur verkfræðingur, Olof Sandell. Hann þótti harður í horn að taka, stýrði mannskapnum með heraga og rak menn miskunnarlaust fyrir minnstu yfirsjónir.  Glerárvirkjun dugaði þó sívaxandi bæjarfélaginu skammt og ekki mörgum árum síðar fóru menn að horfa til frekara virkjanakosta t.d. í Þingeyjarsýslum. Fyrsta Laxárvirkjunin var tekin í notkun 1938. Þessi mynd er tekin í júlí 2009. Greinilega eru leysingar í ánni. 

 

084

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

RAFORKUMANNVIRKI. Endastöð háspennulínu. Þessi er reyndar komin ofan í jörð fyrir nokkrum árum síðan en þessi lá upp að borholuskúrum neðarlega á Glerárdal, norðan og við Fálkafell. Myndin er tekin í júní 2004. 

 

P4140723

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

RAFLÝST AKUREYRI. Uppljómaður Akureyrarbær á síðvetrarkvöldi, apríl 2018. 


Hús dagsins: Lækjargata 2b

Á horni Aðalstrætis og Lækjargötu er að finna eina elstu og áhugaverðustu húsaþyrpingu bæjarins. Hús þessi eru flest frá 5. – 8. áratug 19. aldar. P4030996Eitt þessara húsa er Lækjargata 2b. Lega hússins er sérlega skemmtileg, stafninn skagar út í götuna á milli húsa nr. 2 og 4 og er húsið áfast því síðarnefnda. Á milli húsa 2 og 2b er örmjótt sund, á að giska um 2m breitt. Á bak við þessa staðsetningu hússins er sérstök saga.

Lækjargötu 2b reisti Edvald Eilert Möller verslunarstjóri, mögulega árið 1871, sem heyhlöðu á baklóð sinni en hús hans stóð þar sem nú er Aðalstræti 8. Það hús, sem byggt var 1836, var kallað Möllershús og var eitt margra húsa sem eyddist í bæjarbrunanum í desember 1901. Hlaðan (þ.e. Lækjargata 2b) mun hafa staðið nokkurn veginn þar sem nú eru mót Aðalstrætis og Lækjargötu. Þannig var mál með vexti, að þegar ráðist var í lagningu í nýrrar götu upp Búðargil, var upprunalega hugmyndin að miða legu hennar við heyhlöðu þessa. En árið 1884 var ákveðið að rífa hlöðuna sunnan við hús St. Stephenssens (Lækjargata 2a). Í stað þess að rífa hana var hún hins vegar dregin inn á lóð Lækjargötu 2, áfast annarri hlöðu sem síðar varð Lækjargata 4. Hvers vegna húsið var flutt norður á lóð Lækjargötu 2, en ekki nær Möllershúsinu við Aðalstræti, virðist ekki liggja fyrir en bærinn hafði keypt hana til niðurrifs, svo hún tilheyrði ekki eigendum lóðarinnar. Mögulega hefur eigandi Lækjargötu 2 (nú 2a) Stephan Stephansson, keypt hana af bænum.  

Það er í raun ekki vitað með vissu hvenær húsið var byggt, en í bókunum bygginganefndar má finna byggingaleyfi dagsett 22. júní árið 1871 til handa Factor E. Möller, þar sem hann fær að reisa „heyhlöðu úr timbri sunnan við bakarísins grunn“ og skyldi austurgafl hennar er sneri til götunnar halda stefnu og línu „með plankverki því sem reist er fyrir austan pakkhús bakarans“. Umrætt bakarí  er væntanlega Aðalstræti 6 en þar bjó á þessum tíma Hendrik Schiöth bakari. Það er nokkuð freistandi að leiða líkur að því að umrædd heyhlaða sé sú, sem tæplega hálfum öðrum áratug síðar stóð, í bókstaflegri merkingu, í vegi fyrir lagningu Lækjargötu. Það er, Lækjargata 2b.

Lækjargata 2b er einlyft timburhús á lágum grunni, með porti og háu risi. Sexrúðupóstar eru í gluggum og bárujárn er á veggjum og þaki. Grunnflötur hússins er um 5,7x5,9m en vesturhlið er eilítið lengri en austurhlið, stafninn sunnanmegin m.ö.o. ekki hornréttur. Húsið er áfast næsta húsi vestan við, Lækjargötu 4 en sundið austan við er líklega aðeins um tveir metrar.

Um Edvard Eilert Möller er það að segja, að hann var fæddur árið 1812 á Akureyri. Um hann segir í Íslendingabók, að hann hafi verið verslunarstjóri á Siglufirði 1832-40 og á Akureyri eftir það. Hann var verslunarstjóri í 50 ár, tók mikinn þátt í atvinnulífi á Akureyri og Eyjafirði, m.a. síldveiðum og hákarlaveiðum. Um hann segir Steindór Steindórsson ennfremur: „Hann þótti áreiðanlegur í viðskiptum og ákaflega húsbóndahollur. Hann skoraðist undan að taka sæti í bæjarstjórn þegar hann var kjörinn til þess, taldi það ekki hæfa verslunarstjóra sem þyrfti að hafa margs konar viðskipti við bæinn“ (Steindór Steindórsson 1993: 24). Þá gróðursetti hann fyrstur manna eplatré á Akureyri, en það var árið 1884. Edvard var náskyldur síðasta einokunarverslunarkaupmanni bæjarins. En móðurafi Edvards var Rasmuss Lynge, bróðir Friðriks Lynge, sem síðastur veitti einokunarversluninni forstöðu. Friðrik Lynge þessi átti heiðurinn af byggingu fyrsta íbúðarhúss Akureyrar, 1777, en það hús var eitt þeirra sem eyddist í bæjarbrunanum 1901.

Það er raunar góðar líkur á því, að hefði hlaða Möllers  hvorki verið rifin né flutt hefði hún einnig orðið bæjarbrunanum 1901 að bráð. Möllershús brann til ösku og miklar skemmdir urðu á nýlegu húsi Stephans Stephanssonar, sem nú er Lækjargata 2, en þarna á milli stóð hlaðan upprunalega. Óljóst er hvort hlaðan gegndi áfram hlutverki hlöðu eftir flutninginn en síðar varð það geymsla. Í brunabótamati síðla árs 1916 er því lýst sem geymsluhúsi, einlyftu með háu risi á lágum steingrunni. Á „gólfi“ eru sögð tvö geymsluherbergi og loft ósundurþiljað byggt úr timbri með járnklæddu þaki. Mál hússins eru 5,7x5,9m og hæð sögð 5 metrar. Í fasteignamati 1918 er því lýst á svipaðan hátt; geymsluhús úr timbri á lágum steingrunni, 5,7x5,8m.

Árið 1920 var eiganda hússins, Karli Magnússyni, heimilað að breyta útliti hússins og innrétta þar íbúð samkvæmt uppdrætti. Umræddur uppdráttur hefur varðveist en teikningin er óundirrituð. E.t.v. hefur Karl gert teikningarnar sjálfur. Og þegar Manntal er tekið sama ár er eigandi hússins Eggert Stefánsson símritari, sem þarna býr ásamt konu sinni, Yrsu Stefánsson og syni þeirra Stefáni. Einnig er búsett þarna Sesselja Theódórsdóttir vetrarstúlka. Skiptist húsið í tvö íbúðarrými og í öðru þeirra býr Karl Ásgeirsson, sem einnig er símritari. Þegar flest var munu hafa búið hér tólf manns. Í manntölum síðar á þriðja áratugnum og á þeim fjórða virðist húsið hins vegar teljast einbýlishús. Árið 2016 segja þáverandi eigendur og íbúar hússins, Patricia Huld Ryan og Sylvain Franck Zaffini svo frá, að húsið sé mjög skakkt og það valdi stöðugum höfuðverk. Einnig að við endurbætur á húsinu hafi þau fundið m.a. barnaskó, kindahorn, dagblöð frá 1899 á milli veggja. Einnig fannst tunnubotn í kjallaranum frá því að hér bjó beykir. (sbr. Kristín Aðalsteinsdóttir 2017: 136).

Lækjargata 2b er snoturt og látlaust hús og í mjög góðri hirðu. Útlit og kannski ekki síst staðsetning hússins er mjög skemmtileg og ekki síst sagan á þar á bak við; Hlaða sem átti að rífa en var mjakað á næstu lóð og stendur þar enn, 140 árum síðar. Lækjargata 2b er að sjálfsögðu aldursfriðað hús og talið í Húsakönnun 2012 hluti varðveisluverðrar og einstakrar húsaþyrpingar.  Myndin er tekin 3. apríl 2022.

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1857-1902. Fundur nr. 32, 22. júní 1871. Fundur nr. 59, 15. apríl 1884. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri. Elstu fundargerðabækur Bygginganefndar eru aðgengilegar á vef Héraðsskjalasafnsins.

Brunabótamat 1916-17. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri, aðgengilegt á vefnum: Virðingabók Brunabótafélags Íslands, Akureyrarumboð 1916-1917 by Héraðsskjalasafnið á Akureyri - Issuu

Fasteignamat 1918. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.

Hjörleifur Stefánsson, Hanna Rósa Sveinsdóttir. 2012. Húsakönnun- Fjaran og Innbærinn. Minjasafnið á Akureyri. Pdf-skjal á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/Fjaran-og-Innbaerinn-2012.pdf

Kristín Aðalsteinsdóttir. 2017. Innbær. Húsin og Fólkið. (Viðtal við Patriciu Huld Ryan og Sylvain Franck Zaffini). Akureyri: Höfundur.

Steindór Steindórsson. 1993. Akureyri höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur

Ýmis manntöl og gögn á vef Héraðsskjalasafns og manntal.is,  greinar á timarit.is; sjá tengla í texta. Upplýsingar af ættfræðigagnagrunninum islendingabok.is. 


Löng bið á milli greina

"Það líður víst langt á milli fría / og löng og stundum erfið verður bið". Svo orti Jónas Friðrik og Ríó Tríó söng inn á plötu fyrir um hálfri öld síðan.

Lesendur hafa e.t.v. tekið eftir því, að lengra líður á milli pistla en oft áður hjá mér. Fyrir því er einföld ástæða. Samhliða ritun pistla á akureyri.net tók ég upp á því, að endurskrifa um eldri hús, sem ég birti áður í stuttu máli í árdaga þessarar síðu. Þessir pistlar eru lengri og ítarlegri en margir fyrri pistlar og segir sig sjálft, að þeir eru lengur í bígerð. Ég er stundum spurður að því hvað ég eyði löngum tíma í þessi skrif en staðreyndin er sú, að ég hef ekki hugmynd um það. Því fyrir mér er þetta bara eins og hvert annað áhugamál; fæstir halda neina skrá yfir það hvað þeir eyða löngum tíma í sjónvarpsáhorf, tölvuleiki, golf eða slíkt.  En lesendur þurfa ekki að örvænta þó kannski líði meira en tvær vikur og löng bið verði á milli Húsapistla...ég er ekkert að dala í þessu heldur þvert á móti! smile

 

PS: það er nú ekkert varið í það, að vitna í dægurlagatexta, án þess að birta umrætt lag í heild sinni:


Hús dagsins: Lundargata 15

Snemma sumars árið 1998 var sá sem þetta ritar á meðal þátttakenda í sögugöngu um Oddeyri. Hafandi árið áður komist í bókina um Oddeyri og drukkið í sig fróðleikinn um byggingarár húsanna og sögu þeirra en einnig rekist einhvers staðar á ævisögu Jóhannesar Jósefssonar á Borg. Þegar staldrað var við Lundargötu 15 fullyrti einn þátttakenda, roskinn maður, að Jóhannes á Borg væri fæddur í þessu húsi. Höfundi er það sérstaklega minnisstætt, hvað hann dauðlangaði til þess að koma því á framfæri, að þetta stæðist engan veginn, því Jóhannes var fæddur 1883 en húsið byggt 1898! En ákvað að láta það ógert; var fullviss um, að enginn þarna tæki mark á strák sem var rétt að verða 13 ára; svona athugasemd yrði jafnvel álitin framhleypni og dónaskapur! (En þetta var nú ekki alveg út í hött hjá karlinum, því faðir téðs Jóhannesar byggði jú húsið).

Haustið 1898 afgreiddi Bygginganefnd Akureyrar umsóknP2240881 Jósefs Jónssonar í Lundi um hús sem hann hugðist byggja. Ætlaði hann að byggja hús, 10 álna (6,3m) langt og 8-9 álnir (u.þ.b 5,5m) á grunnfleti. Bygginganefnd ákvað hins vegar að fresta þessari ákvörðun þar til fyrir lægi uppdráttur. Það fylgir hins vegar ekki sögunni hvort sá uppdráttur hefur borist og hvað þá, að hann hafi varðveist. Hver gerði umræddan uppdrátt liggur heldur ekki fyrir, en höfundi þykir freistandi að giska á, að Snorri Jónsson, sérlegur húsasmíðameistari Oddeyrar á þessum árum, hafi verið þar að verki. En húsið reisti Jósef og fjórum árum síðar, 16. júní 1902, var honum leyft að lengja það um 6 álnir (3,7m) til norðurs. Í upphafi var húsið ein hæð og hátt ris.

Lundargata 15 er tvílyft timburhús með lágu risi og stendur á háum steyptum kjallara. Veggir eru klæddir steinblikki, bárujárn á þaki og þverpóstar í flestum gluggum, tvískiptir efri póstar á gluggum neðri hæðar. Undir rjáfri á suðurstafni er tígullaga smágluggi undir hanabjálka. Húsið mun 5,6x10,4m á grunnfleti.

Það er orðin viðtekin venja undirritaðs að segja örlítið frá húsbyggjendum, hvaðan þeir voru og hvað þeir störfuðu o.s.frv. Í tilfelli þeirra Jósefs Jónssonar frá Borgarhóli í Öngulsstaðahreppi og Kristínar Einarsdóttur, er líklega nærtakast að gefa syni þeirra, Jóhannesi, orðið. Kristín var „komin austan úr Þingeyjarsýslu og átti uppruna á Geirþjófsstöðum og Sandi, komin af harðduglegu myndarfólki, en fátæku“ (Jóhannes Jósefsson 1964: 15).  Jósef er öllu fyrirferðarmeiri í frásögn sonar hans: „Jósef faðir minn var Eyfirðingur í báðar ættir. [...] Faðir minn var hár maður og þrekinn og rammur að afli, en enginn áflogamaður þrátt fyrir óskaplegan geðofsa. Kristín kona hans var hins vegar [...]þýðlynd kona og svo skapstillt í visku sinni að undrun sætti“ (Jóhannes Jósefsson 1964: 15). Jósef „[...]var talinn duglegasti verkamaður við Eyjafjörð. Við slátt var hann meira en tveggja manna maki og var ávallt goldið tvöfalt kaup. Í grjótvinnu fór hann hamförum og var svo laginn að honum nýttist þetta heljarafl sitt margfaldlega„ (Jóhannes Jósefsson 1964: 15). Var Jósef orðlagður fyrir dugnað og harðfylgi og svo mjög, að ekki þótti nema eðlilegt, að hann fengi tvöfalt kaup á við aðra í sömu störfum! Jósef gerðist síðar ökumaður eða keyrari, fyrstur manna við Eyjafjörð og ók þá ýmsum hlössum á vögnum; þetta var löngu fyrir bílaöld. Síðar hóf Jósef verslunarrekstur.

Jóhannes, sonur þeirra Jósefs og Kristínar, var auðvitað glímukappinn og athafnamaðurinn sem löngum var og er kenndur við Hótel Borg. Hann átti glæstan feril sem glímukappi, hvort tveggja sem íþróttamaður og sem skemmtikraftur í fjölleikahúsum. Hann mun hafa keppt fyrstur Íslendinga á Ólympíuleikum, 25. júlí 1908 í London en hann var fyrirliði glímuliðs Íslendinga. Tveimur árum fyrr, í ársbyrjun 1906, stofnaði hann ásamt fleirum Ungmennafélag Akureyrar og fór sá stofnfundur einmitt fram á heimili hans hér í Lundargötu 15. Eftir áratuga feril sem glímukappi og skemmtikraftur byggði hann Hótel Borg í Reykjavík árið 1930 og rak það í röska þrjá áratugi. Sá sem þetta ritar mælir eindregið með ævisögu Jóhannesar, sem heitir einfaldlega Jóhannes á Borg og er skráð af Stefáni Jónssyni. Frásögn af ótrúlegu lífshlaupi hans er í senn skemmtileg, átakanleg en fyrst og fremst afar áhugaverð. Þá er hún með betri heimildum um mannlífið og samfélagið á Oddeyrinni um og fyrir aldamótin 1900 og hefur reynst greinarhöfundi mjög gagnlegt í húsasögugrúskinu. Bókin var gefin út af Ægisútgáfunni árið 1964 og er sjálfsagt að finna á flestum bókasöfnum eða fornbókabúðum. Ævisögu Jóhannesar mætti að ósekju endurprenta og gefa út. Kannski er tilefni sumarið 2023, þegar liðin verða 140 ár frá fæðingu hans. Þessari hugmynd er hér með komið á framfæri til bókaútgefenda.

Í upphafi var húsið aðeins um ein hæð og hátt ris 6,3x5,6m eða um 35 fermetrar að grunnfleti en Jósep fékk að stækka það um 3,7m (6 álnir) til norðurs árið 1902, sem fyrr segir.  Ef gluggað er í Manntal frá 1901 er hægt að ímynda sér, að sú þörf hafi verið nokkuð brýn, en þá eru búsettir í húsinu 16 manns! Jósef Jónsson stundaði auk ökumennskunnar, verslunarrekstur. Byggði hann verslunarhús, eitt það stærsta á Oddeyri fyrr og síðar, Turnhúsið við Strandgötu 7, árin 1905-06. Þangað fluttist fjölskyldan árið 1906 en Jósef átti Lundargötu 15 áfram og leigði húsið út. Árið 1907 eru þau hins vegar flutt aftur í Lundargötu, en hin nýreista, glæsta og turni prýdda höll Jósefs við Strandgötu, eyddist í Oddeyrarbrunanum haustið 1906. Árið 1917 var húsið brunabótavirt og þá sagt einlyft með porti og háu risi á kjallara. Á gólfi við framhlið 2 stofur og forstofa, við bakhlið stofa, eldhús og búr. Geymsla var á lofti og kjallara skipt í tvennt og tveir skorsteinar á húsinu. Mál hússins voru 10,4x5,6m, húsið 6,3m á hæð og því 22 gluggar. Þá stóð á baklóð gripahús, einlyft með porti og háu risi og „þiljað fyrir gripi o.fl.“ Gripahúsið er löngu horfið, hefur hugsanlega vikið fyrir húsinu Fróðasundi 4, sem byggt var 1943. Þá er Kristín, ekki Jósef, skráð eigandi hússins.

Það var hins vegar Jósef sem sótti um leyfi til þess að byggja hæð ofan á húsið. Var leyfið veitt með því skilyrði, „[...]að gamla húsið, að dómi fagfróðra manna, sé nægilega sterkt“ (Bygg.nefnd. Ak. nr. 571, 1925). Við þá framkvæmd, sem fram fór 1925-26, fékk húsið núverandi lag og ekki ósennilegt, að steinblikkið hafi verið sett á húsið um svipað leyti. Jósef og Kristín bjuggu hér til æviloka en Jósef lést 1927 en Kristín árið 1929. Hafa síðan fjölmargir búið í eða átt Lundargötu 15 og öllum auðnast að halda húsinu vel við. Síðustu áratugi hafa tvær íbúðir verið í húsinu.

Lundargata 15 er reisulegt hús og í góðri hirðu og til mikillar prýði. Sömu sögu er að segja af lóð. Húsið er hluti af götumynd Lundargötu, sem er að mestu skipuð smáum timburhúsum frá lokum 19. aldar. Brunar og ekki síst niðurrif hafa því miður höggvið stór skörð í þessa einu áhugaverðustu götu Oddeyrar en flest húsin sem enn standa eru í góðri hirðu og til prýði. Þegar Húsakönnun var unnin um Oddeyrina um 1990 fékk Lundargata 15 umsögnina „Húsið sem er látlaust og einfalt, fellur vel að götumynd og hefur varðveislugildi sem hluti af henni“. (Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson 1995:60). Húsakönnun 2020 staðfestir þetta og metur varðveislugildi hússins hátt. Þá er húsið aldursfriðað þar eð það var orðið 114 ára þegar lög um aldursfriðun húsa 100 ára og eldri tóku gildi árið 2012. Myndin er tekin 24. febrúar 2019 en hér er einnig meðfylgjandi, til gamans, tilgátuteikning höfundar að útliti Lundargötu 15 á ýmsum tímum. Byggjast þær á ljósmyndum og lýsingum en fyrst og fremst getgátum höfundar út frá þeim upplýsingum.

Image (10)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Heimildir: Bjarki Jóhannesson. 2021. Húsakönnun fyrir Oddeyri 2020. Akureyrarbær. Aðgengilegt á pdf-formi á slóðinni Husaskra-Oddeyrar-Merged2-.pdf (minjastofnun.is)

Byggingarnefnd Akureyrarkaupstaðar. Fundargerðir 1857-1902. Fundur nr. 170, 26. sept. 1898. Fundur nr. 224, 16. júní 1902. Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 571, 25. ágúst 1925. Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri. Aðgengilegt á vef Héraðsskjalafsafnsins: Fundargerðabók bygginganefndar Akureyrar 1857-1902 by Héraðsskjalasafnið á Akureyri - Issuu

Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri. Aðgengileg á pdf-formi á slóðinni:  http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/Husakonnun_Oddeyri.pdf

Jóhannes Jósefsson. 1964. Jóhannes á Borg. Minningar glímukappans. Stefán Jónsson skráði. Reykjavík: Ægisútgáfan

Ýmis manntöl á vef Héraðsskjalasafns og manntal.is,  greinar á timarit.is; sjá tengla í texta.


Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Sept. 2022
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30  

Nýjustu myndir

  • IMG_2970
  • P4290537
  • P4290523
  • IMG 2974   afrit
  • IMG 2983

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.6.): 15
  • Sl. sólarhring: 31
  • Sl. viku: 366
  • Frá upphafi: 448290

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 271
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband