Svipmyndir af Súlum

Einhverra hluta vegna á ég þónokkuð safn af myndum af Súlum eða Ytrisúlu. Enda afbragðs myndefni þar á ferð, hvort sem er vetur, sumar, vor eða haust. Hér koma nokkrar Súlumyndir.

P3050005 P6190023 P7290102 PC170022  P3310091 P6240011 P7040023

Efsta mynd t.v. er tekin 5.mars 2006 við Drekagil 28, næsta mynd er tekin af Höfðanum við Kirkjugarð Akureyrar á miðnætti 19.júní s.á., næsta mynd er tekin ofarlega norðvestast á Súlumýrum 29.júlí og þá berum við niður við Skíðastaði í Hlíðarfjalli, 17.desember. Þá er mynd tekin 31.mars 2007 austast á Súlumýrum, næsta mynd er tekin kl. 4 að nóttu 24.júní s.á. uppi á brekkunni, Akureyri. Neðsta myndin er tekin 4.júlí 2009 frá Glerárstíflu og í forgrunni eru Borgir, Rannsóknahús Háskólans á Akureyri.


Risarnir á Glerárdal

Tvö hæstu fjöll á Norðurlandi  liggja á sama svæðinu framarlega á Glerárdal. Eru þessi fjöll raunar sláandi lík í útliti frá vissum sjónarhornum, með þverhnípt hamrabelti og flata að ofan. Þetta eru fjöllin Kerling og Tröllafjall. Mér skilst að fyrr á tímum hafi menn verið alls ósammála um hvort fjallið væri hærra, en Kerling hefur vinninginn, 1538m y.s. á meðan Tröllafjall er 1483m. P7150093 Hér að neðan má sjá Tröllafjallið. Í fjallinu má vel sjá mismunandi hraunlög og skilin milli þeirra. Strýtulagaði tindurinn framan við fjallið kallast Tröllahyrna en heiðin neðan fjallsins mun kallast Tröllaskeið. Myndin er tekin 15.júlí 2006 neðan við Súlur.

 

 

 

 

 

Á hinni myndinni sem einnig er tekin 2006, þann 6.maí sést hinsvegar Kerling í öllu sínu veldi. 

 P5060003Hér er horft frá Akureyri, nánar tiltekið Giljahverfi. Norðvesturstall Súlumýra ber þarna í Kerlinguna. Ljósastaurinn ber í tind sem kallast Lambárdalsöxl. Um Kerlingu hef ég áður fjallað nokkuð ítarlega og er sú færsla hér.


Bloggfærslur 6. desember 2009

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Skjámynd 2025 06 06 102451
  • Skjámynd 2025 06 06 102436
  • Friðbjarnarhús
  • P7100132
  • P7100133

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.6.): 104
  • Sl. sólarhring: 104
  • Sl. viku: 454
  • Frá upphafi: 448804

Annað

  • Innlit í dag: 43
  • Innlit sl. viku: 315
  • Gestir í dag: 40
  • IP-tölur í dag: 40

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband