Hús dagsins: Eyrarvegur 6

Eyrarveg 6 reisti Tryggvi Gunnlaugsson árið 1942. P6220994Hann fékk þriðju lóð sunnan Eyrarvegar ásamt byggingaleyfi fyrir húsi, 8,15x10,5m að stærð, byggt úr r-steini með járnklæddu valmaþaki. Upprunalegar teikningar að húsinu liggja ekki fyrir á kortavef.

Eyrarvegur 6 er einlyft r-steinhús á lágum grunni, með lágu valmaþaki. Bílskúr er áfastur austan og sunnanmegin og sunnan úr húsinu er bakálma 5x4,50m að stærð. Er sú einnig steypt og valmaþaki. Þar er um að ræða viðbyggingu frá 1961, eftir teikningum Mikaels Jóhannessonar. Veggir eru múrsléttaðir, bárujarn á þaki og einfaldir, lóðréttir póstar með opnanlegum þverfögum í flestum gluggum.

Tryggvi Zophonías Gunnlaugsson var fæddur árið 1908 á Ytra Hvarfi í Svarfaðardal en uppalinn á Akureyri. Hann starfaði m.a. sem vélstjóri á sjó en einnig sem bifreiðastjóri, ók m.a. flutningabíl milli Akureyrar og Reykjavíkur um miðja síðustu öld. Hann var kvæntur Jóhönnu Soffíu Jónsdóttur en hún var frá Bakka í Viðvíkursveit í Skagafirði. Tryggvi og Jóhanna munu hafa búið hér í áratug en þau fluttu til Reykjavíkur árið 1953 og bjuggu þar alla tíð síðan. Jóhanna lést langt fyrir aldur fram árið 1956 en Tryggvi lést 1994. Ef skoðuð eru gögn af timarit.is, sést að árið 1946 er Jón B. Jónsson múrarameistari búsettur að Eyrarveg 6. Jón Bakkmann Jónsson var bróðir Jóhönnu Soffíu og bjó hann hjá þeim um nokkurra ára skeið. Hann stundaði nám í múrverki hjá Gaston Ásmundssyni og lauk prófi í þeirri iðn árið 1942- sama ár og Tryggvi mágur hans fékk byggingarleyfið fyrir Eyrarvegi. Það er alls ekki ólíklegt, að Jón hafi komið að eða stýrt byggingu hússins. Margir hafa búið á Eyrarvegi 6 eftir tíð Tryggva, Jóhönnu og Jóns en öllum auðnast að halda húsinu vel við. Lengst af bjuggu hér þau Magnús Jónsson bifvélavirki og Sigríður Loftsdóttir, eða í tæpa hálfa öld. Magnús var Akureyringur en Sigríður var frá Böggvisstöðum í Svarfaðardal. Eignuðust þau húsið 1953 og bjuggu hér allt þar til Magnús lést, en Sigríður seldi húsið ári síðar. 

Eyrarvegur 6 er látlaust en glæst og reisulegt hús í mjög góðri hirðu og til mikillar prýði. Það virðist nýlega hafa hlotið verulegar endurbætur, þak nýtt sem og gluggar, sem og múr á veggjum og frágangur allur hinn snyrtilegasti. Það er hluti langrar og heilsteyptrar götumyndar áþekkra hús við sunnanverðan Eyrarvegar. Eyrarvegurinn er ein af mörgum skemmtilegum og áhugaverðum götumyndum eldri hverfa Akureyrar. Hún er eiginlega tvískipt; sunnanmegin eru funkishús með valmaþökum, áþekk húsum við Ægisgötu en norðanmegin er þyrping verkamannabústaða með sérstæðu lagi. Að sjálfsögðu verðskulda öll þessi hús varðveislugildi að mati síðuhafa. Myndin er tekin þann 22. júní 2021

Heimildir: Bygginganefnd Akureyrar: Fundargerðir 1941-48. Fundur nr. 908, 5. maí 1942, nr. 909, 8. maí 1942. Óprentað, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.


Bloggfærslur 10. febrúar 2022

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Skjámynd 2025 06 06 102451
  • Skjámynd 2025 06 06 102436
  • Friðbjarnarhús
  • P7100132
  • P7100133

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 53
  • Sl. viku: 355
  • Frá upphafi: 448662

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 271
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband