17.9.2016 | 10:43
Hús dagsins: Oddeyrargata 14
Um daginn tók ég fyrir tvö hús við Oddeyrargötu, sem áttu það sameiginlegt, að byggingarleyfin fyrir þeim voru gefin út á fundi Bygginganefndar þann 17.september 1928. Það er fyrir réttum 88 árum þegar þetta er ritað. Alls fengu fimm aðilar húsbyggingarleyfi á þessum fundi nefndarinnar, og rötuðu þessi afköst nefndarinnar í blöð. Ég hef þegar tekið fyrir fjögur þessara húsa á þessum vettvangi og ekki úr vegi að taka það fimmta fyrir í dag, 17.september; á 88ára "byggingarleyfisafmæli" þess og hinna fjögurra.
Á fundi bygginganefndar þann 17.september 1928 voru gefin út byggingaleyfi fyrir fimm húsum sem enn standa. Þar af voru þrjú hús við Oddeyrargötu, hús Elínar Einarsdóttur og Þorsteins Thorlacius auk þess sem Pálmi nokkur Halldórsson fékk leyfi til að reisa tveggja hæða steinhús að ummáli 8,1x9 (þ.e. 73 fermetrar að grunnfleti). Þar er um ræða Oddeyrargötu 14, sem er eitt nokkurra sviplíkra húsa á vestanverðri Oddeyrargötu. Teikningarnar af húsi Pálma Halldórssonar gerði Halldór Halldórsson. Húsið er tvílyft steinsteypuhús með valmaþaki á lágum grunni, fullbyggt 1929. Á upprunalegum teikningum eru sexrúðupóstar í gluggum en nú eru krosspóstar á efri hæð en einfaldir póstar á neðri hæð, fög ýmist lárétt eða lóðrétt. Bárujárn er á þaki og inngangur á norðausturhorni. Húsið virðist að mestu óbreytt frá upphafi að yrta byrði.
En húsið er ekki eina húsið á lóðinni því þar stendur einnig bakhús, einlyft timburhús með háu risi. Veggir bakhúss eru panelklæddir og pappi á þaki, og er það nýtt sem geymsla. Árið 1932 fékk Pálmi leyfi til að reisa bráðabirgðaskúr á lóð sinni með þeirri kvöð að húsið skuli rifið hvenær sem bærinn krefst þess, bænum að kostnaðarlausu (Jónsbók, bls. 242). Þessi bókun er gerð í mars, en í október 1932 er bókað að risinn sé skúr úr timbri með miklu risi sem fari í bága við bæði skipulags- og brunamálareglur. Og fyrst minnst er inn á brunamálareglur, má geta þess að eldur kom upp í bakhúsi þessu snemma árs 1977. og skall þar hurð nærri hælum. Oddeyrargata 14 þ.e. Framhúsið hefur alla tíð verið tvíbýlishús, ein íbúð á hvorri hæð þó einstaka herbergi hafi verið leigð út til fjölskyldna og einstaklinga á fyrstu árum og áratugum. Húsið er næsta lítið breytt frá upphafi og lítur vel út. Það er hluti mjög skemmtilegrar heildar sem í Húsakönnun 2015 er sögð varðveisluverð heild. Þessi húsaröð spannar númerin 10-22 og um er að ræða röð samstæðra (en ólíkra þó) tveggja hæða húsa með valmaþaki, byggð árin 1927-31. Bakhúsið virðist einnig í ágætu standi, en ekki fylgir sögunni hvort það hús hafi varðveislugildi. Lóðin er vel gróin líkt og gengur og gerist á þessum slóðum en þar sem er tekin 10.janúar (2016) sést sá gróandi ekki á henni.
Heimildir:
Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar: Fundargerðir 1921-30. Fundur nr. 619. 17. sept. 1928. Óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri
Jón Sveinsson. 1955. Jónsbók. Upplýsingar um upprunasögu húsa á Akureyri skráð 1945-55.Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 508
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 354
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.