18.10.2016 | 10:19
Hús dagsins: Oddeyrargata 8
Fjögur elstu húsin sem enn standa við Oddeyrargötu standa neðst við götuna. Það elsta er 108 ára , húsin sem skipa annað og þriðja sætið, 4 og 6, eiga aldarafmæli í ár en hið fjórða elsta er hin 97 ára Oddeyrargata 8.
Vorið 1919 falaðist Trausti Reykdal fiskmatsmaður eftir því við Bygginganefnd Akureyrar að kaupa lóð, 20x20m vegna lóðar sem hann átti fyrir við Oddeyrargötu. En þar er auðvitað um að ræða lóðina Oddeyrargötu 6 þar sem Trausti hafði reist veglegt steinhús þremur árum áður. Síðar sama ár er honum leyft að reisa tvílyft steinhús á lóðinni sem hann hafði fengið keypta um vorið. Nefndin setti ákveðin skilyrði. Vesturgafl skyldi vera 5 álnir frá lóðarmörkum (5 álnir eru u.þ.b. 3,15m). Tröppur skyldu annaðhvort koma á gafl norðaustan við eða teknar inn í kjallara- svo ekki kæmu tröppur fram úr húsalínunni. Sjá má, að fyrrnefnda leiðin hefur verið farin við byggingu Oddeyrargötu 4 og 6, þar eru tröppur á göflum. Hér voru tröppurnar hins vegar teknar inn í kjallara. Fram kemur í bókun bygginganefndar að uppdráttur, dagsettur 20.sept 1919 fylgi. Sá uppdráttur hefur hins vegar hvorki varðveist, né heldur er þess getið hver teiknaði og því er hönnuður Oddeyrargötu 8 ókunnur. Mögulega hefur sami maður teiknað bæði hús nr. 6 og 8, þau eru byggð af sama manni og eru raunar ekki óáþekk- svona í stórum dráttum.
Oddeyrargata 8 er tvílyft steinsteypuhús með lágu risi og á lágum kjallara. Á framhlið er inngangur og tröppur uppá hæð innbyggðar samkvæmt skilyrðum Bygginganefndar fyrir tæpri öld. Á bakhlið er stigabygging. Krosspóstar eru í gluggum og bárujárn á þaki. Líkast til er húsið að stærstum hluta óbreytt frá fyrstu gerð, a.m.k. að ytra byrði. Húsið er af klassískri gerð, en á upphafsárum steinsteypunnar var tilhneigingin sú, að útlit steinhúsa tæki mið af timburhúsum. Oddeyrargata 8 er t.d. ekki ósvipað húsunum við Hafnarstræti 33-41. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús en árið 1920 þegar húsið er nýbyggt búa þarna 15 manns, þrenn hjón ásamt börnum, Sigurður Pétursson og María Konráðsdóttir, Ólafur Eiríksson og Björg Halldórsdóttir og Jón Jóhannesson Sólrún Oddsdóttir. Auk þess er Elínborg Helgadóttir, einhleyp húsmóðir skráð þarna til heimilis. Ekki fylgir sögunni á hvorri hæð eða hluta hæðar hver býr. Fjöldi íbúa hússins gegn um tíðina hleypur eflaust á hundruðum, líkt og gengur og gerist þegar í hlut eiga nærri aldargömul hús. Ekki gat ég fundið heimildir um verslun eða atvinnustarfsemi nokkurs konar við leit á timarit.is, en það er óbrigðult ráð að kanna slíkt með því að slá heimilisfangið (í þágufalli, innan gæsalappa vel að merkja) inn í leitarvél. Hafi einhver starfsemi verið auglýst í blöðum má sjá það í niðurstöðunum. Oddeyrargata 8 er látlaust hús að gerð og sómir sér vel í götumyndinni. Húsið er hornhús, en undir suðurgafli hússins sveigir gatan Krabbastígur stuttan spöl upp að Munkaþverárstræti. Tvær íbúðir eru í húsinu, hvor á sinni hæð. Myndin er tekin þann 3.maí 2015.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarkaupstaðar. Fundargerðir 1902-21. Fundur nr. 457, 20.maí 1919, nr. 464 þ.24.sept. 1919. Óprentað, varðveitt á Héraðskjalasafninu.
Manntal 1920. (sjá tengil í texta)
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 422
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 329
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.