12.2.2017 | 15:02
Hús dagsins: Hamarstígur 4
Oddeyrargötu tók ég fyrir hús fyrir hús á nýliðnu ári. Hún er frá fornu fari tenging Oddeyrar við Brekkuna þar sem hún skásker brekkuna ofan Miðbæjar. Upp frá götunni miðri, þ.e. milli húsa nr. 24 og 26 liggur Hamarstígur upp á Brekkuna og nær sú gata upp á Mýrarveg. Gatan er byggð á löngum tíma, milli 1930-60 en elsti hluti hennar er á milli Þórunnarstrætis og Oddeyrargötu. Sá kafli er snarbrattur og stundum heldur óskemmtilegur yfirferðar, gangandi og akandi, í mikilli hálku. En húsin þar eru síður en svo óskemmtileg en þar standa reisuleg og glæst steinhús frá 4.áratug 20.aldar, þ.á.m. Hamarstígur 4.
Síðla sumars árið 1929 fengu þeir Steinþór Jóhannsson og Halldór Halldórsson byggingafulltrúi og húsateiknari leigða lóð norðan Hamarstígs fyrir enda Hlíðargötu. Þeir fengu jafnframt leyfi til að byggja þar steinsteypuhús skv. meðfylgjandi teikningu sem Halldór gerði. Teikningin Skyldi það vera 8x14,60m að stærð, ein hæð á kjallara með háu. Byggingarleyfið var veitt með því skilyrði, að kvistur yrði settur á suðurhlið hússins [þ.e. framhlið þess], í síðasta lagi um leið og Hlíðargata byggðist. Húsið var parhús sem skiptist að miðju og reisti Steinþór eystri hlutann (4a) og Halldór þann vestari (4b). Árið 1935 fékk Halldór leyfi til að setja kvist á norðurhlið hússins, en skv. Húsakönnun 2015 kom hann ekki fyrr en tuttugu árum síðar og á sama tíma var gefið út leyfi fyrir viðbyggingu. Á teikningu, sem dagsett er 29.sept 1959 er ekki að sjá að kvistur sé kominn á suðurhlið, en mögulega er þarna um að ræða endurskoðaða, upprunalega teikningu. Mynd sem sjá má á bls. 94 í Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs tekur hins vegar af öll tvímæli um það, að kvistur hefur verið á suðurhlið frá upphafi. Því sú mynd er tekin sumarið 1931 og sýnir Gilið og Miðbæinn. Ofarlega í hægri jaðri þeirrar myndar má sjá Hamarstíg 4, sem þá stendur einna hæst húsa innan þéttbýlis á Akureyri. Þar má greinilega sjá kvistinn mikla, en hann er einnig skrýddur byggingarári hússins, 1930.
Hamarstígur 4 er stórt og reisulegt steinsteypuhús, í anda steinsteypuklassíkur þess tíma, einlyft með háu risi og stórum miðjukvisti og stendur á háum kjallara. Á bakhlið hússins er einlyft viðbygging, að öllum líkindum sú sem leyfi var gefið fyrir árið 1955 og stór kvistur með einhalla þaki sem nær að vesturgafli og yfir miðju hússins. Kvistur á framhlið er með stölluðum kanti og efst upp undir mæni hans er bogadreginn smágluggi. Byggingarárið 1930 er einnig múrað framan á kvistinn en ófá hús á Akureyri skarta því ártali á kvistum sínum. Þetta hefur því greinilega verið e.k. tíska um þetta leyti en einnig má finna ártölin 1926-29 á kvistum en 1930 er sýnu algengast. Húsið er sem áður segir byggt sem parhús og eru tvær inngöngudyr nærri miðju og steyptar tröppur upp að þeim. Á þeim er enn upprunalegt steypt skrauthandrið. Inngöngudyr standa eilítið lægra en neðri hæð og ofan þeirra eru póstlausir gluggar sem veita birta á stigahol upp á hæð. Fyrir miðri framhlið eru gluggar á hverri hæð og framhliðin samhverf um þá. Krosspóstar eru í gluggum hússins, en hafa mögulega verið margskiptir í upphafi og bárujárn er á þaki. Veggir eru múrhúðaðir með svokölluðum spænskum múr, en ég hef stundum líkt áferð þess konar múrs við krem á djöflatertu eða gulrótartertu.
Halldór Halldórsson, sá er reisti vesturhluta hússins var einn ötulasti hönnuður bygginga á Akureyri á áratugunum milli 1920-1940. Hann var fæddur 4.mars árið 1900 í Garðsvík á Svalbarðsströnd og lauk prófi í byggingarfræði í Hildisheim í Þýskalandi árið 1924. Hann var byggingafulltrúi og byggingameistari hér í bæ til ársins 1944 en fluttist þá suður og hóf störf hjá Skipulagi ríkis og bæja. Síðar varð hann forstjóri Húsnæðismálastofnunar ríkisins við stofnun hennar, 1957 og gegndi hann því starfi til dánardægurs. Hér má sjá minningargrein Magnúsar Inga Ingvarssonar um Halldór, sem lést 23.ágúst 1969. Halldór bjó hér ásamt konu sinni, Sigurlaugu Ólafsdóttur frá Krossum á fjórða áratug 20.aldar- og mögulega hafa einhver húsa hans verið teiknuð hér. Meðal húsa sem Halldór teiknaði má t.d. nefna hús nr. 12,14,16 og 22 við Oddeyrargötu, Brekkugötu 27a, 43 og 45 en innan könnunarsvæðis Húsakönnunnar 2015 á Neðri Brekkunni má finna 21 hús eftir Halldór. Á Oddeyri standa einnig fjölmörg hús eftir Halldór, s.s. Eiðsvallagata 20, Fjólugata 7 og 9 en auk þeirra teiknaði hann fyrsta skipulagða fjölbýlishús Akureyrar, Gránufélagsgötu 39-41 (kölluð Sambyggingin í daglegu tali margra).
Í þessu húsi bjó einnig annar byggingamestar nokkru síðar eða um miðja 20.öld, þá komin á efri ár, Jónas Gunnarsson frá Syðri Bægisá. Hann var fæddur 1873 og var umsvifamikill í húsbyggingum á Akureyri á fyrstu árum 20.aldar. Reisti hann vegleg timburhús í Miðbæ Akureyrar, Jerúsalem og Rotterdam en þar var um að ræða stór og vegleg timburhús sem bæði urðu eldi að bráð fyrir rúmum 70 árum. En Jónas stóð einnig fyrir byggingu hinnar stórmerku timburhúsaraðar við Hafnarstræti 33-41 í félagi við Sigtrygg Jóhannesson. Jónas lést árið 1954 og var þá búsettur hér. Margir hafa búið í húsinu þessa tæpu níu tugi ára sem það hefur staðið. Íbúðir voru tvær frá upphafi en ekki ólíklegt að húshlutunum hafi verið skipt í smærri íbúðir eða leiguherbergi, enda húsið nokkuð stórt í sniðum. Hér er tveggja herbergja íbúð auglýst á efri hæð hússins, árið 1967.
Hamarstígur 4 er reisulegt og traustlegt hús og í góðu standi. Múráferðin, kantaður kvistur og bogadreginn gluggi setja skemmtilegan svip á húsið. Það er ekki ósvipað að gerð og næstu hús, Hamarstígur 2 og 6 og samkvæmt Húsakönnun 2015 eru Hamarstígur 4 og 6 samstæð hús sem mynda sterka heild og hafa varðveislugildi sem slík. Húsið stendur hátt, líklega einum 2-3metrum ofan götubrúnar og er því býsna áberandi og lóðin er stór og vel gróin.
Á lóðinni stendur mjög gróskumikil Alaskaösp, a.m.k. 16 m há með stórri og breiðri krónu, skv. bæklingnum Merk Tré , sem Skógræktarfélag Eyfirðinga gaf út 2005.
Þá er tréð sagt um 16m hátt en ekki er ólíklegt, að það sé orðið nær 20 metrum þegar þetta er ritað, rúmum ellefu árum síðar. Hef ég heyrt hana nefnda Hamarstígsöspina og einhvern tíma skildist mér að nærri helmingur allra Alaskaaspa á Akureyri væru komnar út af þessari miklu ösp- hinn helmingurinn út af vegar annarri svipaðri sem stendur við Grænugötu á Oddeyri. Sel það ekki dýrara en ég keypti. Myndina af húsinu tók ég í vorblíðu og hláku þann 21.janúar 2017 en myndina af öspinni miklu tók ég í trjágöngu um Neðri Brekku sem Skógræktarfélagið stóð fyrir þann 31.ágúst 2013.
Heimildir:
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1921-30. Fundur 634, 29.júlí 1929.
Fundargerðir 1930-35. Fundur 744, 24.maí 1935.
Jón Sveinsson. 1955. Jónsbók. (Skrá yfir upprunasögu húsa sem stóðu á Akureyri um 1935, tekin saman 1945-55).
Tvær ofantaldar heimildir eru óprentaðar og óútgefnar og varðveittar á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Steindór Steindórsson. 1993. Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík. Örn og Örlygur.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 17
- Sl. sólarhring: 35
- Sl. viku: 466
- Frá upphafi: 436805
Annað
- Innlit í dag: 11
- Innlit sl. viku: 297
- Gestir í dag: 11
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.