7.7.2023 | 16:42
Hús dagsins: Saurbær
Fremstur hinna þriggja hreppa, sem sameinuðust undir nafni Eyjafjarðarsveitar í ársbyrjun 1991, er Saurbæjarhreppur. Hann dregur nafn sitt af kirkjustaðnum Saurbæ. Bæjarhúsin og kirkjan standa á hól nokkrum við ystu rætur Hleiðargarðsfjalls, heitir þar Saurbæjarháls ofan við. Undir hólnum neðan við Saurbæ er fyrrum félagsheimilið Sólgarður, nú aðsetur Smámunasafnsins. Að bænum liggur um 170 m heimreið, nokkuð brött, af Eyjafjarðarbraut vestri en að Saurbæ eru um 28 kílómetrar frá Akureyri. Á Saurbæ stendur snotur torfkirkja frá 1858 (verður til umfjöllunar hér innan tíðar) en þar stendur einnig tæplega aldargamalt steinsteypt íbúðarhús með áföstum gripahúsum. Þau mannvirki eru reist eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar en fyrir þeim framkvæmdum stóð sr. Gunnar Benediktsson.
Íbúðarhúsið á Saurbæ er tvílyft steinsteypuhús á háum kjallara með háu valmaþaki, múrhúðuðum veggjum, bárujárni á þaki og krosspóstum í flestum gluggum. Á framhlið (austurhlið) eru steyptar tröppur með voldugu dyraskýli og ofan á því svalir. Áfast húsinu norðanmegin eru fyrrum gripahús og hlaða. Munu þau hús byggð í áföngum, fyrst fjósið norðan við og síðar hlaða. Fjósið er með lágu risi en hlaðan valmaþaki. Yngri fjárhús eru einnig áföst hlöðunni, sú bygging með mænisþaki og snýr stafni í norður. Grunnflötur íbúðarhúss er um 8x12m.
Saga Saurbæjar nær allt til landnámsaldar, og verður ekki rakin hér svo nokkru nemi, en þar bjuggu fyrst þau Auðunn rotinn og Helga, dóttir Helga magra. Líklega hefur staðurinn orðið kirkjustaður skömmu eftir kristnitöku, en hér var klaustur um aldamótin 1200. Auk kirkjustaðar var Saurbær prestsetur fram á 20. öld. Núverandi steinhús var einmitt byggt sem slíkt, en þjónaði aðeins sem prestssetur í örfá ár. Leysti það af hólmi torfbæ, sem á sinni tíð var einn sá stærsti í hreppnum.
Það var árið 1920, að sr. Gunnar Benediktsson kom að Saurbæ. Gunnar var fæddur að Viðborði á Mýrum í A-Skaftafellssýslu, kvæntur Sigríði Gróu Þorsteinsdóttur, en hún var úr Reykjavík. Þegar þau komu hingað mun torfbærinn mikli hafa verið orðinn hrörlegur og ekki liðið á löngu, að hugað var að byggingu nýs prestsseturs. Var það enginn annar en Guðjón Samúelsson sem fenginn var til að teikna nýtt prestssetur. Guðjón hafði numið í Danmörku og þar kynnst m.a. hönnun búgarða og var mjög hugleikið, að bæta húsakost í íslenskum sveitum. Á sama tíma sótti hann í íslenskar hefðir og var prestssetrið á Saurbæ gott dæmi um það. Húsin teiknaði hann í burstabæjarstíl, íbúðarhúsið með tveimur burstum en áfastar fjósbyggingar með þremur smærri. Á svipuðum tíma teiknaði hann auk Saurbæjarhússins tvö önnur burstabæjarprestssetur", á Holti undir Eyjafjöllum og Bergþórshvoli. Íbúðarhúsið var líkrar gerðar og hin fyrrnefndu [Holt, Bergþórshvoll] auk áfastra útihúsa með þremur göflum fram að hlaði. Saurbæjarhúsinu var valinn staður við andspænis torfkirkjunni frá 1858. Byrjað var að byggja húsið samkvæmt teikningu Guðjóns en því ekki lokið. Leifar þess mynda neðri hæð í núverandi tvílyftu staðarhúsi" (Pétur H. Ármannsson 2020:115). Varðveist hafa tvær teikningar af Saurbæ, önnur dagsett í janúar 1927 (Pétur H. Ármannsson 2020:116) en hin í apríl 1929. Helsti munurinn á þeim er sá, að á eldri teikningunni eru fjósburstirnar tvær og út frá þeim álma með lágu risi, sem snýr stafni í norður. Á yngri teikningunni eru útihúsin þrjár burstir. Áföst gripahús voru þó ekki byggð með burstalagi, heldur með lágu risi og valmaþaki.
Líkast til var nýja prestsetrið fullbyggt 1929, sbr. dagsetningu yngri teikninga en í Byggðum Eyjafjarðar er byggingarár sagt 1926 og er það í samræmi við Fasteignaskrá. Íbúðarhúsið mun hafa verið byggt 1927 og fjósið 1929 (ábending frá Gunnari Jónssyni, tölvupóstur 12. ágúst 2023). Byggingarframkvæmdir gætu hafa hafist þá, en nokkurt ósamræmi mun hafa verið í fjárveitingum ríkisvaldsins og byggingaráforma Gunnars, þ.e. byggingarhraða. Oft þurfti sverar úttektir hjá KEA til að brúa það bil, svo séra Gunnar safnaði þannig miklum skuldum (Sbr. Gísli Sigurgeirsson, 2022). Hann naut þó nýja hússins ekki lengi, því hann fluttist héðan árið 1931. Lauk þar með hlutverki Saurbæjar sem prestssetur. Sigríður Gróa mun hins vegar hafa búið hér áfram í tvö ár eftir það eða til 1933. Seinni maður hennar var Tryggvi Helgason, en þau bjuggu um áratugaskeið að Eyrarvegi 13 á Akureyri. Sigríður Gróa var þó ekki ein á jörðinni því á þessu árabil bjuggu tvenn hjón önnur hér, þau Þórólfur Sigurðsson og Þórey Ingibjörg Friðriksdóttir sem og Eiríkur Elíasson og Fjóla Stefánsdóttir. Um svipað leyti og nýja húsið var fullbyggt, 1929, var sett upp símstöð á Saurbæ, sem þjónaði hreppnum í rúma hálfa öld, eða til 1981.
Þann 21. febrúar árið 1934 voru húsin í Saurbæ metin til brunabóta. Var þeim þá lýst á eftirfarandi hátt: Íbúðarhús, steinsteypt með járnþaki, kjallari með steinsteyptum skilrúmum. Tvöfaldir útveggir á stofuhæð, skilrúm og gólf úr steini, en timburgafl. Á lofti eru skilrúm úr timbri. Eldstæði og reykháfur voru sögð fullnægja skilyrðum brunamálalaga (Sbr. Brunabótafélag Íslands 1934:nr.41a). Ábúendur voru þau Sveinbjörn Sigtryggsson og Sigrún Þuríður Jónsdóttir, bæði úr Saurbæjarhreppi, hann fæddur á Hólum en hún í Ytra Dalsgerði. Þau fluttust hingað árið 1933. Hér að framan kemur fram, að leifar upprunalegu burstabæjarbyggingar myndi neðri hæð í núverandi tvílyftu húsi. En það skýrist af því, að húsið skemmdist í miklum bruna snemma árs 1945. Laust eftir hádegi þann 31. janúar kviknaði í bæjarhúsinu og mun það allt hafa brunnið að steinsteyptri kjallarahæð. Engu var bjargað af efri hæð en nokkru af neðri hæð, skv. frásögn Dags 1. feb. 1945 og ekki segir af slysum á fólki. Talið var að kviknað hefði í út frá skorsteini (sem engu að síður fullnægði skilyrðum brunamálalaga í brunabótamati). En bærinn var endurbyggður og nú í breyttri mynd, í stað burstana var byggð heil hæð og hátt valmaþak ofan á. Fékk húsið þá það lag sem það síðan hefur.
Tæplega hálfu öðru ári eftir brunann á Saurbæ var endurbyggingu lokið og þann 25. júlí 1946 heimsóttu fulltrúar Brunabótafélagsins bæinn og lýstu húsinu á eftirfarandi hátt: Íbúðarhús úr steinsteypu, tvær hæðir með kjallara. Á húsinu er valmaþak. Útveggir tvöfaldir með tróði. Gólf og skilrúm úr steini. Loft á efri hæð úr timbri. Húsið allt málað og gólf dúklögð. Á neðri hæð: 3 stofur, eldhús og tvær forstofur. Á efri hæð 5 svefnherbergi og baðherbergi. Eigandi var kirkjujarðarsjóður (Brunabótafélag Íslands 1946:nr.101). Ábúendur voru þau Daníel Sveinbjörnsson og Gunnhildur Kristinsdóttir, en Daníel var sonur téðs Sveinbjarnar Sigtryggssonar og Sigrúnar Þuríðar Jónsdóttur. Kúabúskapur var löngum aðalsmerki Saurbæjar á 20. öld en þar voru einnig sauðfé og aðrar skepnur. Árið 1970, þegar skrásettar voru Byggðir Eyjafjarðar, voru alls 40 nautgripir á Saurbæ, 25 kýr og 15 geldneyti en einnig 213 fjár og 14 hross. Fjós er þá fyrir 32 kýr og fjárhús fyrir 270 fjár, hlöður rúma 1600 hesta af heyi og votheysgryfja fyrir 100 hesta (Ath. hestar er gömul mælieining fyrir hey, 1 hestur jafngildir um 100 kílóum af heyi). Túnstærð er þá 40,58 hektarar og töðufengur mælist um 2000 hestar (þ.e. 200 tonn af heyi). Þá er Sveinbjörn Daníelsson nýlega (1966) tekinn við búinu af foreldrum sínum ásamt Ingu Sigrúnu Ólafsdóttur (sbr. Ármann Dalmannsson, Eggert Davíðsson, Sveinn Jónsson 1973:312).
Þau Sveinbjörn og Inga Sigrún eru ábúendur á Saurbæ árið 1990 þegar Byggðir Eyjafjarðar voru teknar saman annað sinnið. Þá voru aðeins fjögur geldneyti á Saurbæ, 12 hross en ágætt safn af fé, eða 218 fjár. Ræktað land var þá 41,2 hektarar (sbr. Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon 1993:834). Þegar Eyjafjarðarbyggðum voru gerð skil þriðja sinnið, árið 2010, var Saurbær í kaflanum Gömul býli í Eyjafjarðarsveit en býlið mun hafa farið í eyði árið 2000. Síðasti skráði ábúandi var Hafdís Dögg Sveinbjarnardóttir dóttir þeirra Sveinbjarnar og Ingu Sigrúnar. Það er nú tilfellið, að töluvert mörg býli virðast hafa farið í eyði á síðasta áratug 20. aldar og fyrsta áratug þeirrar 21. Hluti jarðarinnar 5 hektarar (árið 2010, gæti verið meira nú) er hins vegar lagður undir skógrækt (Sbr. Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson 2013:626).
En er það þá tilfellið, að hin glæstu hús Guðjóns Samúelssonar standi auð og yfirgefin án viðhalds og bíði þess einfaldlega, að verða vindi, veðri og tímans tönn að bráð? Svo er nú aldeilis ekki, því í húsunum hafa samtökin Búsaga, félagsskapur áhugamanna um varðveislu búskaparminja, véla og tækja fengið aðstöðu og eiga þar athvarf í íbúðarhúsinu. Gripahús og hlöður eru nú skjólshús fyrir aldna bensín- og díselknúna gæðinga úr stáli. Búsögumenn hafa sinnt nauðsynlegu viðhaldi á húsum, svo ekki er að sjá, að bærinn hafi verið í eyði í tæpan aldarfjórðung. Saurbæjarhúsin hljóta að hafa umtalsvert varðveislugildi, ættu hreinlega að vera friðuð, þegar litið er til sögu þeirra og staðarins í heild. Húsin eru fáeinum árum of ung til þess að teljast aldursfriðuð. Haustið 2022 birti Gísli Sigurgeirsson áhugaverða grein á akureyri.net undir yfirskriftinni Sverrir, Sólgarður og Saurbær. Rétt er að mæla með þeirri grein hér. En þar leggur hann til, að bæjarhúsin á Saurbæ verði gerð upp og þar verði komið upp eins konar lifandi safni um búnaðarsögu Eyjafjarðar. Þá væri eflaust hægt að hugsa sér húsakost sem veglegan sýningarsal fyrir gömul landbúnaðartæki. Kannski segir umfjöllun Byggða Eyjafjarðar árið 2030 um Saurbæ frá glæsilegum húsa- og safnkosti Búsögusafns...
Meðfylgjandi myndir eru teknar 11. ágúst 2021. Hér eru einnig nokkrar myndir af tækjum á vegum Búsögu á Saurbæ, teknar 27. júlí 2019.
Heimildir:
Ármann Dalmannsson, Eggert Davíðsson, Sveinn Jónsson. 1973. Byggðir Eyjafjarðar II. bindi. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðarsveit.
Brunabótafélag Íslands. 1934. Saurbær, virðing nr. 41a, blað 52. Í Virðingabók Brunabótafélags Íslands Saurbæjarhreppsumboð, bók I. 1933-1944. Varðveitt á Héraðsskjalsafninu á Akureyri. HsksjAk. H11/41
Brunabótafélag Íslands. 1946. Saurbær virðing nr. 101, blað 17. Í Virðingabók Brunabótafélags Íslands, bók II 1944-1951. Varðveitt á Héraðsskjalsafninu á Akureyri. HsksjAk. H11/42
Gísli Sigurgeirsson. 2022. Sverrir, Sólgarður og Saurbær. Grein á vefmiðlinum Akureyri.net. Birtist 22. október 2022 á slóðinni https://www.akureyri.net/is/moya/news/sverrir-solgardur-og-saurbaer
Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon. 1993. Byggðir Eyjafjarðar 1990. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.
Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson. 2013. Byggðir Eyjafjarðar 2010. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.
Pétur H. Ármannsson. 2020. Guðjón Samúelsson húsameistari. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 21
- Sl. sólarhring: 53
- Sl. viku: 438
- Frá upphafi: 440795
Annað
- Innlit í dag: 15
- Innlit sl. viku: 212
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.