Hús dagsins: Hvassafell

Sunnan hæsta fjalls Eyjafjarðar, Kerlingar, standa einnig há og brött fjöll eða fjallabálkar og milli þeirra djúpir dalir sem liggja þvert á Eyjafjörðinn, eða austur-vestur. Næst sunnan Kerlingar er Finnastaðadalur og Möðrufellsfjall en sunnan þess er Skjóldalur og Hvassafellsfjall. Fjöll þessi tengjast hinu mikla fjalllendi, er tengist Glerárdal í norðri og Öxnadal í vestri og ná allt að 1400 metra hæð. Á þessu svæði hafa einhver ósköpin öll gengið á í fyrndinni, gífurleg eldvirkni í milljónir ára  hefur hlaðið upp margra tuga laga víðáttumiklum hraunstafla. Löngu síðar, á hundruðum þúsunda eða milljónum ára hafa ísaldarjöklar grafið og tálgað hina stórskornu dali í jarðlagastaflann  mikla og þegar þeir hopuðu hafa sumar hlíðarnar gefið sig með ofsafengnum berghlaupum. Reginöfl þessi hafa skapað sérlega geðþekka og fallega sveit, sem undir Hvassafellsfjalli og þar suður af kallast Undir fjöllum. Þar má m.a. finna bæinn Hvassafell sem Hvassafellsfjallið heitir eftir og þar stendur sérlega reisulegt, tæplega aldargamalt steinhús.

    Íbúðarhúsið í Hvassafelli er einlyft steinhús, byggt 1926, á háumP7030972 kjallara og með háu risi og miðjukvisti. Veggir eru múrhúðaðir og bárujárn á þaki. Margskiptir krosspóstar eru í gluggum en þeir eru nýlegir og væntanlega í samræmi við upphaflegt útlit hússins, en lengi vel voru þverpóstar í gluggum. Húsið, sem er í eðli sínu einföld og látlaus steinsteypuklassík, prýðir nokkuð skraut. Undir rjáfri á stöfnum og kvisti eru einnig bogalaga smágluggar, smáatriði sem engu að síður hafa mikið að segja um heildarútlit og svip hússins. Á stöfnum og kvisti eru bogadregnir steyptir kantar og toppar, áhrif frá svokölluðum nýbarrokkstíl  og var nokkuð algengt í steinhúsum þess tíma sem húsið er byggt. Grunnflötur hússins er nálægt 12x9m auk 2x2m útskots á bakhlið.

    Hvassafell stendur sem fyrr segir undir Hvassafellsfjalli, í langri og aflíðandi hlíð neðan fjallsins. P4230964Bærinn stendur nokkurn veginn beint neðan við fremsta hnjúk Hvassafellsfjall, sem kallast Hestur og er um 1200m hár. Hæstu hlutar fjallabálksins vestur af Hvassafellsfjalli ná yfir 1300 metra hæð ofan Nautárdals, langt inni á Skjóldal. Að heimreiðinni, sem er um 190 metra löng, eru um 4 kílómetrar að Eyjafjarðarbraut vestri um Dalsveg en sé farinn Finnastaðavegur er vegalengdin að sama vegi 7,5km. Frá miðbæ Akureyrar eru um 27 kílómetrar að hlaðinu á Hvassafelli.  Sögu Hvassafells, sem löngum var og er stórbýli má rekja til fyrstu aldar Íslandsbyggðar, þar var bænhús á miðöldum og árið 1712 var jörðin eign Munkaþverárklausturs. Í fyrndinni tilheyrði Hvassafelli skógur í Núpufellsskógum en heimildir eru um það frá lokum 14. aldar (sbr. Adolf Friðriksson, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Orri Vésteinsson og  Sædís Gunnarsdóttir [án árs]:82). Jónas Hallgrímsson var á barnsaldri settur í fóstur á Hvassafelli hjá móðursystur sinni, Guðrúnu Jónsdóttur, eftir sviplegt fráfall föður hans. Móðir hans, Rannveig Jónsdóttir var fædd í Hvassafelli og var af hinni valinkunnu ætt, sem kennd er við bæinn. Þúsundir, ef ekki tugþúsundir Íslendinga auk þó nokkurra Bandaríkjamanna og Kanadabúa (afkomendur vesturfara) eru af Hvassafellsætt og þar með skyldir Jónasi Hallgrímssyni og móðurfólki hans.  

    Förum nú hratt yfir sögu, til fyrsta áratugs 20. aldar, en þá voru ábúendur þau Júlíus Gunnlaugsson frá Draflastöðum og Hólmfríður Árnadóttir, fædd á Melum í Fnjóskadal. Samkvæmt Byggðum Eyjafjarðar hófu þau búskap að Hvassafelli árið 1907 (Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon 1993:823) en foreldrar HólmfríðarEyrarlandsvegur 20, Árni Guðnason og Kristbjörg Benediktsdóttir höfðu búið að Hvassafelli frá árinu 1900. Í upphafi búskapartíðar Júlíusar og Hólmfríður að Hvassafelli stóð þar torfbær eins og víðast hvar í sveitum landsins. Í honum mun hafa verið m.a. þríhólfa baðstofa 10,8x3,7m að stærð, og tvær stofur 5,8x3,2m hvor ásamt skemmum undir alls fjórum burstum (sbr. Jónas Rafnar 1975:52). Um var að ræða nokkuð veglegt hús, af torfbæ að vera, enda Hvassafell löngum stórbýli. En þegar leið á 20. öldina þótti einsýnt, að framtíðin lægi í steinsteypu eða timbri fremur en torfbæjum og um 1926 reistu þau Júlíus og Hólmfríður og synir þeirra, Pálmi og Benedikt nýtt og veglegt steinhús, sem var á pari við veglegustu hús Akureyrar. Hver teiknaði húsið er greinarhöfundi ekki kunnugt um en það má Eyrarlandsvegur 22„leika sér“ með tilgátur þess efnis.  Hvassafellshúsið er nokkuð sviplíkt húsum á svipuðum  aldri við t.d. Eyrarlandsveg og Brekkugötu. Húsið við Eyrarlandsveg 20, sem Tryggvi Jónatansson múrarameistari teiknaði (sbr. Hanna Rósa Sveinsdóttir 2016:41), er t.d. nokkuð sviplíkt Hvassafelli en Tryggvi var einn af ötulustu húsahönnuðum á þessum tíma og teiknaði fjölmörg, svo kannski má segja, að „tölfræðilega“ séu mestar líkur á að Tryggvi hafi teiknað hús frá þessum tíma. Þá má einnig sjá ákveðin líkindi við Eyrarlandsveg 22 og Strandgötu 33 en þau hús teiknaði Ólafur Ágústsson húsgagnasmiður (sbr. Hanna Rósa Sveinsdóttir 2016:42 og Bjarki Jóhannesson 2021:57). Þessi byggingarstíll, nýklassík undir áhrifum frá nýbarrok var hins vegar ekki óalgengur í steinhúsum þess tíP5211005ma og þó nokkrir sem teiknuðu slík hús, svo tilgátur á borð við framangreindar eru afar hæpnar og skal auðvitað tekið með öllum hugsanlegum fyrirvörum.  Hvassafells er ekki getið í verkaskrá Guðjóns Samúelssonar í veglegri ævisögu hans (Pétur H. Ármannsson, 2020) svo ólíklegt er, að húsið sé eitt af verkum hans.  Greinarhöfundur þiggur að sjálfsögðu með þökkum allar ábendingar um hönnuð Hvassafellshússins (og aðrar ábendingar frá lesendum yfirleitt).

     Nýja húsið var reist austan við gamla bæinn og mun um  tíma hafa verið búið í báðum húsum samtímis (sbr. Adolf Friðriksson, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Orri Vésteinsson og  Sædís Gunnarsdóttir [ár árs]:82). Á rafræna ljósmyndasafninu Sarpinum má sjá mynd af Hvassafellshúsinu, líkast til nýreistu, og glittir þar í eina burst gamla bæjarins. Skömmu eftir byggingu nýja hússins, eða árið 1930, tóku þeir bræður, Benedikt og Pálmi við búskap af foreldrum sínum og virðist þannig hafa verið tvíbýlt. Íbúðarhúsið skiptist í tvo eignarhluta, væntanlega eftir miðju, og bjuggu þeir bræður og fjölskyldur þeirra í hvorum hluta fyrir sig. Árið 1934 var nýja húsið í Hvassafelli metið til brunabóta og lýst á eftirfarandi hátt: Íbúðarhús úr steinsteypu með járnþaki. Veggir eru einfaldir með innþiljum og steypt á milli. Steypt gólf í kjallara og skilrúm úr timbri með steinvegg eftir endilöngu húsinu í kjallara og á stofuhæð og lofthæð. Á stofuhæð fjórar stofur og tvö eldhús og á lofthæð sex herbergi [Af þessu má ráða, að húsið hafi skipst í eignarhluta eftir miðju fremur en að hvor hæð hafi verið eignarhluti, þ.e.a.s. tvö eldhús eru á neðri hæð]. Stærð hússins var sögð 12x9m og hæð 7,3m, miðstöð til upphitunar og steinolía til ljósa. Eignarhlutar þeirra Benedikts og Pálma Júlíussona voru metnir á 8750 krónur hvor um sig og heildarmat hússins þannig 17.500 krónur. (Sbr. Brunabótafélag Íslands 6. mars 1934)

    Þegar Byggðum Eyjafjarðar voru fyrst gerð skil á prenti árið 1970 voru þau Einar Benediktsson og Álfheiður Karlsdóttir búsett að Hvassafelli og búa hér félagsbúi ásamt Hauki Benediktssyni (bróður Einars) og Rögnu Rósberg Hauksdóttur. Kemur fram, að þau hafi tekið við búinu þegar faðir þeirra bræðra féll frá árið 1962. Faðir þeirra var téður Benedikt Júlíusson, sem hér hafði stundað búskap frá 1930. Bústofninn árið 1970 taldi alls 67 nautgripi (32 kýr og 35 geldneyti), 240 fjár og 10 hross. Túnstærð er þá sögð 39,24 hektarar og töðufengur um 2000 hestar af heyi (Ármann Dalmannsson, Eggert Davíðsson, Sveinn Jónsson 1973:305). Álfheiður og Einar bjuggu hér til ársins 1982 er Sigmundur Sigurjónsson og Margrét Jósefsdóttir fluttust hingað. Árið 1990 var Tryggvi  Jóhannsson frá Krónustöðum fluttur að Hvassafelli en fyrrnefnd Einar og Álfheiður áttu jörðina, svo enn var hún í eigu afkomenda Júlíusar Gunnlaugssonar og Hólmfríðar Árnadóttur. Taldi þá bústofninn 82 nautgripi (34 kýr) og 10 fjár en ræktað land taldist tæpir 60 hektarar (Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon 1993:822). Árið 2010 eiga þau býlið og búa þar núverandi (2023) eigendur og íbúar, téður Tryggvi Jóhannsson og Guðrún Harðardóttir. Þá eru nautgripirnir orðnir 237, þar af 60 kýr. Auk þeirra voru 15 alifuglar en fjárbúskap hafði þá verið hætt. Nýtt, tæplega 1000 fermetra fjós hafði þá verið reist þremur árum fyrr. Ræktað land mældist þá 67,7 hektarar (Sbr. Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson. 2013: 455).

     Íbúðarhúsið í Hvassafelli er reisulegt, skrautlegt og myndarlegt hús á hinu prýðilegasta bæjarstæði. Það er í mjög góðri hirðu, gluggar og þak virðast t.d. nýleg.  Húsið,  ásamt nærliggjandi byggingum, mynda skemmtilega heild sem er til mikillar prýði í gróskumikilli og fallegri sveit. Aðrar byggingar í Hvassafelli eru m.a. geldneytahús sem reist var árið 1945 sem fjárhús, hlaða frá sama ári, geymslur byggðar 1950 og 1976 og fjós frá 1954 og 1968. Þá er einnig súrheysturn frá árinu 1950 en  greinarhöfundi þykja þau alltaf skemmtileg mannvirki, sem hvort tveggja setja svip á umhverfi og sjónræna heild sveita og eru minjar um búskaparhætti fyrri tíma. Nýjast af stærri Hvassafellsbyggingum, fulltrúi 21. aldar er svo veglegt  nýtísku fjós sem byggt var 2007. Myndin af Hvassafelli er tekin 3. júlí 2020 en myndirnar af húsunum við Eyrarlandsveg teknar í febrúar 2013 og myndin af Strandgötu 33 er tekin 21. maí 2022. Myndin af Hvassafellsfjalli er tekin 23. apríl 2020.

Heimildir: Adolf Friðriksson, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Orri Vésteinsson og  Sædís Gunnarsdóttir. [Án árs]. Fornleifaskráning í Eyjafirði IX: Fornleifar í Grundarplássi og undir Fjöllum. Minjasafnið á Akureyri Fornleifastofnun Íslands FS037-94015 pdf-útgáfa: Fornleifaskráning í Eyjafirði IX. Fornleifar í Grundarplássi og undir Fjöllum (minjastofnun.is)  

Ármann Dalmannsson, Eggert Davíðsson, Sveinn Jónsson. 1973. Byggðir Eyjafjarðar II. bindi Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðarsveit.

Bjarki Jóhannesson. 2021. Húsakönnun fyrir Oddeyri 2020. Akureyrarbær. Aðgengilegt á pdf-formi á slóðinni husakannanir.minjastofnun.is/Husakonnun_147.pdf

Brunabótafélag Íslands. 1934. Hvassafell. Í Virðingabók Brunabótafélags Íslands Saurbæjarhreppsumboð, bók I. 1933-1944. Varðveitt á Héraðsskjalsafninu á Akureyri. HsksjAk. H11/41

Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon. 1993. Byggðir Eyjafjarðar 1990. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.

Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson. 2013. Byggðir Eyjafjarðar 2010. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.

Minjasafnið á Akureyri, Hanna Rósa Sveinsdóttir. 2016. Akureyrarbær; Menntaskólinn á Akureyri og nærliggjandi íbúðarsvæði. Húsakönnun. Pdf-skjal á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Menntaskolinn_og_ibudasvaedi/husakonnun_ma.pdf

Jónas Rafnar. 1975. Bæjalýsingar og teikningar. Akureyri: Sögufélag Eyfirðinga.

Pétur H. Ármannsson. 2020. Guðjón Samúelsson húsameistari. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag.

ES. Greinarhöfundi bárust eftirfarandi ábendingar frá Gunnari Jónssyni vegna umfjöllunar um Saurbæ og skal þeim komið á framfæri hér:

sr. Gunnar Benediktsson kom að Saurbæ árið 1920 (ekki 1921).

Íbúðarhúsið í Saurbæ er nokkuð örugglega byggt 1927 og fjósið 1929. 

Þá var ranglega farið með nafn Sigrúnar Þuríðardóttur, konu Sveinbjarnar Sigtryggssonar, á einum stað og hún kölluð Sigríður Þorsteinsdóttir.

Er þessu hér með komið á framfæri, beðist velvirðingar og Gunnar Jónssyni þakkað kærlega fyrir. Þetta hefur verið leiðrétt á vefsíðu undirritaðs, arnorbl.blog.is. 


Hús dagsins: Leifsstaðir

Umfjallanir um íbúðarhús Guðjóns Samúelssonar í Eyjafjarðarsveit áttu að mynda nokkurs konar þríleik hér. Eins og öllum góðum þríleikjum sæmir, er hann í fjórum þáttum (wink) og hér kemur sá fjórði, Leifsstaðir. 

Hátt uppi í hlíðum (100m y.s.) sunnanverðrar Vaðlaheiðar stendur bújörðin Leifsstaðir. Neðan við Leifsstaði eru svokallaðar Leifsstaðabrúnir,  að mestu klæddar myndarlegum skógi. Ekki er þeim sem þetta ritar kunnugt um hversu langt má rekja sögu jarðarinnar, eða heldur við hvaða Leif bærinn er kenndur. Núverandi hús á jörðinni er hartnær aldargamalt en það reisti Bergsteinn Kolbeinsson á árunum 1928-30. Hann hafði áður búið í Kaupangi og reist þar veglegt steinhús eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar. Líkt og í Kaupangi tæpum áratug fyrr, leitaði Bergsteinn í smiðju Húsameistara ríkisins, sem teiknaði fyrir hann reisulegt steinhús með áföstu gripahúsi.  

Leifsstaðahúsinu mætti skipta í tvær álmur.IMG_0751 Sú syðri er íbúðarhús,  einlyft steinhús á háum kjallara með háu risi og smáum miðjukvisti.  Áfast húsinu, þ.e. norðurálman er mikil steinsteypt, tveggja hæða bygging með háu valmaþaki, áður fjós og hlaða en mun nú gistirými. Veggir eru múrsléttaðir og stallað bárujárn á þaki. Krosspóstar eru í flestum gluggum hússins. Grunnflötur syðra húss er  nærri 9x11m en norðurálman nærri 20x11m. Útskot er á norðausturhorni norðurálmu. Leifsstaðir standa á brún eða hól norðan við Kúalæk, um 1,5km frá Eyjafjarðarbraut eystri og liggur að húsinu um 150m heimreið frá Leifsstaðavegi (sem liggur raunar að Króksstöðum). Frá Akureyri eru um 7 kílómetrar að hlaðinu á Leifsstöðum.

 Þegar þau Bergsteinn Kolbeinsson og Ingibjörg Sölvadóttir fluttu að Leifsstöðum úr Kaupangi, árið 1928 gæti hafa staðið þar torfbær sá er lýst er í Bæjalýsingum og teikningum Jónasar Rafnar.  Sá bær sneri A-V og samanstóð af bæjardyrum (inngöngurými, n.k. forstofa) og stofu en til austurs lágu löng og mjó bæjargöng að baðstofu, sem var austast. Inn af göngunum var eldhús norðanmegin og búr sunnanmegin vestast en áfast henni á vesturhlið var skemma (sbr. Jónas Rafnar 1975:158). Þessi lýsing á reyndar við Leifsstaðabæinn eins og hann var fjörutíu árum fyrr, mögulega hafði hann verið stækkaður eða breytt í millitíðinni. Þegar Bergsteinn og Ingibjörg fluttu að Leifsstöðum höfðu þau nokkrum árum fyrr reist nýtt steinhús í Kaupangi og hófust fljótlega handa við byggingu slíks húss á Leifsstöðum. Leitaði Bergsteinn sem fyrr til Guðjóns Samúelssonar varðandi hönnun hússins. Árið áður, 1927, hafði Jónas frá Hriflu skrifað um nýja húsið á Kaupangi og meðal annars lýst þeirri skoðun sinni, að aðalhlið hússins hefði betur snúið í sólarátt fremur en til vesturs. Hvort þeir Guðjón og Bergsteinn bóndi hafi tekið þetta sérstaklega til greina skal ósagt látið hér, en á Leifsstöðum snúa stafnar í vestur og austur og aðalhliðin mót suðri. IMG_0753Stafninn ber óneitanlega skemmtilega við hlíðar Vaðlaheiðar þar sem bærinn trónir hátt yfir nærliggjandi byggð. Upprunalega teiknaði Guðjón Leifsstaði með tveimur misháum burstum. Var það svipaður stíll og prestsetrið á Saurbæ sem hann teiknaði á svipuðum tíma. Ekki gerði hann ráð fyrir torfþaki í þetta skiptið, líkt og á Möðrufelli og Kaupangi átta árum fyrr. Undir lægri burst Leifsstaðahússins gerði Guðjón ráð fyrir hlöðu en fjósið myndi vera í kjallara íbúðarhússins. Var það löngum alþekkt ráð til upphitunar híbýla til sveita, að íbúðarrými og baðsstofur væru ofan við fjósið þar sem fólkið naut varmans frá kúnum. Að þessu leyti greindi þá á, Guðjón Samúelsson og Guðmund Hannesson héraðslækni sem báðir voru miklir hugsjónamenn fyrir bættum híbýlum landsmanna. Sá síðarnefndi var ekki hrifinn af sambýli manna og skepna undir sama þaki (sbr. Pétur H. Ármannsson 2020:115).  

Húsin á Leifsstöðum munu hafa verið fullbyggð árið 1931, íbúðarhúsið 1930 og fjós og hlaða ári síðar. Hvort húsið var byggt með tveimur burstum í upphafi en breytt síðar er höfundi ókunnugt um, en líklega hefur norðurálma hússins, hlaða og fjós, verið byggð með valmaþaki í upphafi. Á Héraðsskjalasafninu er að finna skjöl frá 1934 annars vegar og 1956-67 hins vegar, þar sem finna má lýsingar á flestum bæjarhúsum Öngulsstaðahrepps vegna mats til brunabóta. Flestum, ekki öllum, er þarna lykilorð, því þar er ekki að finna neina lýsingu á Leifsstaðahúsinu. Er það auðvitað miður en stundum er það svo, að heimildir sem leitað er að, finnast ekki eða eru hreinlega ekki til. Það er auðvitað niðurstaða út af fyrir sig. En höfundur telur þó líklegast að íbúðarhúsið sé að mestu óbreytt frá upphafi, þ.e. að ytra byrði. Innra skipulagi hefur væntanlega verið breytt þó nokkuð vegna breyttrar notkunar. Hins vegar er ljóst, að húsið hefur verið raflýst frá upphafi en rafmagn var ekki sjálfsgefið til sveita hérlendis um 1930. Í Degi 6. desember 1928 (52. tbl. 10. árg.) birtist nefnilega eftirfarandi frétt: Þrír bæir í Kaupangssveit, Leifsstaðir, Fífilgerði og Króksstaðir, hafa nýlega komið sér upp rafveitu. Hefir Bíldsá verið virkjuð, og hefir stöðin 20 hestafla kraft. Rafmagnið var notað til ljósa, hitunar og suðu. Var það Bjarni Runólfsson frá Hólmi í Landbroti sem annaðist þessar virkjanaframkvæmdir í Bíldsá en hann byggði margar  smærri rafveitur víða um land á þriðja og fjórða áratug síðustu aldar.

Bergsteinn Kolbeinsson og Ingibjörg Sölvadóttir bjuggu hér til æviloka,IMG_0757 Ingibjörg lést árið 1942 en Bergsteinn árið 1948. Seinni kona Bergsteins, Þóra Sólveig Rögnvaldsdóttir  frá Grjótárgerði í Fnjóskadal bjó áfram á Leifsstöðum til ársins 1968.  Þá fluttust hingað þau Sigurgeir Elías Ágústsson og Rut Konráðsdóttir og eru þau búsett hér tveimur árum síðar, þegar Byggðum Eyjafjarðar voru gerð skil í ritverki, sem út kom 1973. Árið 1970 var bústofn Leifsstaða eftirfarandi: Þrjár kýr og eitt geldneyti, 53 fjár og fjögur hross. Þá eru ræktaðar kartöflur á einum hektara lands, töðufengur 600 hestar og ræktað land 11,38 hektarar (sbr. Ármann Dalmannsson, Eggert Davíðsson, Sveinn Jónsson 1973:408). Þá er ljóst, að fyrstu ábúendur nýja Leifsstaðahússins hafa verið ötulir við trjáplöntun, því ræktarlegur trjálundur er sunnan við húsið. Árið 1970 var hann kominn vel á legg, svo trén gætu verið frá fjórða og fimmta áratug aldarinnar. Árið 1990 telur bústofn Leifsstaða 15 hross og ræktað land er 12,6 hektarar. IMG_0755Bergsteinn Eiríkur Gíslason og Halldóra Hafdís Karen Halldórsdóttir eru eigendur jarðarinnar árið 1990 og  ábúendur Birgir Stefánsson og Heiða Hrönn Jóhannsdóttir (sbr. Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon 1993:1066). Hefðbundinn búskapur mun hafa lagst af á Leifsstöðum á 10. áratug síðustu aldar en um 1995 fór fram annars konar uppbygging á staðnum. Var þá byggt við norðurálmuna og húsunum breytt í gistiheimili, túnum breytt í golfvöll og síðar risu smærri gistiskálar og hús norðan við bæjarhúsin. Árið 2010 eru eigendur og ábúendur þau Árný Petra Sveinsdóttir og Gunnar Thorarensen Gunnarsson. Þá kallast jörðin Leifsstaðir II en jörðinni mun hafa verið skipt árið 1991 og Leifsstaðir II gert að lögbýli. Ekki kemur fram hver stærð ræktaða lands Leifsstaða er, en fram kemur að túnin hafi að mestu verið lögð undir golfvöll. Byggingar eru, auk íbúðarhússins frá 1930, gistihús byggð 1994-95 og 2005 (sbr. Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson 2013:593). Umrædd gistihús munu byggð upp úr fjósi og hlöðu frá 1931. Árið 1946 var býlið Brúarland byggt úr landi Leifsstaða, norðan og neðan bæjarins við Leifsstaðabrúnir. Þar hefur á síðustu áratugum risið dágóð íbúðarhúsaþyrping sem kallast Brúnahlíð og enn er byggt á Brúarlandstúnum. Þá eru margir sumarbústaðir og orlofshús í landi Leifsstaða og Brúarlands.P3310963

Leifsstaðahúsið er reisulegt en látlaust hús. Þríhyrndur smágluggi upp undir rjáfri setur á það ákveðinn svip, smáatriði sem þó hefur mikið að segja sem svipauki glæsts húss. Það er í mjög góðri hirðu og í raun sem nýtt að sjá. Síðari tíma viðbætur og byggingaframkvæmdir spilla ekki heildarmynd hússins enda hafa þær verið í samræmi við upprunalega samsetningu.  Bæjarstæðið er einnig sérstaklega skemmtilegt, hátt uppi í brekkunum með útsýni svo að segja um gjörvallan Eyjafjörð. Suðurhlið hússins sést þó trauðla um langan veg, en þar er mikill skógarlundur, sem einnig er til mikillar prýði. Á Leifsstöðum hefur sl. áratugi verið rekin ferðaþjónusta, IMG_0759gisting, veitingar o.fl. nú undir merkjum Hotel North og eflaust verður enginn svikinn af því, að gista þessar glæstu byggingar í dásamlegu umhverfi. Hvað varðar varðveislugildi eða friðun Leifsstaða er það að segja, að húsið er fáeinum árum yngra en svo, að það teljist aldursfriðað (byggt eftir 1923) en það telst hins vegar umsagnarskylt. Umsagnarskyldum húsum má hvorki breyta né rífa án undangenginnar umsagnar minjaverndaraðila og á þetta ákvæði við um hús byggð bilinu á 1924-40. Þá er húsið auðvitað eitt verka Guðjóns Samúelssonar. Meðfylgjandi myndir af Leifsstöðum eru teknar 17. júlí 2023 en myndin af Brúarlandi þann 31. mars 2020.

ATH. Það kom fram í fyrri grein undirritaðs um Kaupang, að Bergsteinn Kolbeinsson og Ingibjörg Sölvadóttir hafi flust að Kaupangi árið 1905. Það er í raun ekki alls kostar rétt, því hið rétta er, að Ingibjörg fluttist að Kaupangi árið 1902 með foreldrum sínum, Sölva Magnússyni og Steinunni Einarsdóttur. Bergsteinn fluttist hins vegar að Kaupangi, er hann giftist Ingibjörgu árið 1905. Þessar upplýsingar fann höfundur í minningargrein Jóns H. Þorvaldssonar um Ingibjörgu í tímaritinu Hlín frá árinu 1946. Er þessu hér með komið á framfæri.

Heimildir: Ármann Dalmannsson, Eggert Davíðsson, Sveinn Jónsson. 1973. Byggðir Eyjafjarðar II. bindi Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðarsveitar.

Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason, Kristján Sigfússon. 1993. Byggðir Eyjafjarðar 1990. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.

Guðmundur Páll Steindórsson, Jóhann Ólafur Halldórsson og Valdimar Gunnarsson. 2013. Byggðir Eyjafjarðar 2010. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar.

Jónas Jónsson. 1927. Byggingar. Í Samvinnunni 2. tbl. 20. árgangur 1. júní 1927. (Af timarit.is)

Jónas Rafnar. 1975. Bæjalýsingar og teikningar. Akureyri: Sögufélag Eyfirðinga.

Pétur H. Ármannsson. 2020. Guðjón Samúelsson húsameistari. Reykjavík: Hið íslenska bókmenntafélag.


Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Ágúst 2023
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • P4290537
  • P4290523
  • IMG 2974   afrit
  • IMG 2983
  • IMG 2975

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.5.): 16
  • Sl. sólarhring: 42
  • Sl. viku: 329
  • Frá upphafi: 447838

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 183
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 11

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband