29.11.2010 | 18:19
Hús dagsins II: Fróðasund 10a
Fróðasund er stutt og yfirlætislaus gata á Oddeyrinni sem liggur gegn um Lundargötuna, samsíða Gránufélagsgötu og Eiðsvallagötu. Svona til útskýringar fyrir þá sem ekki þekkja til þá afmarkast elsti hluti Oddeyrar af Glerárgötunni sem er þjóðvegur nr.1 og liggur í N-S. Strandgata liggur síðan niðureftir eyrinni syðst og liggur í A-V. Norður úr henni ganga eftirfarandi þvergötur talið að ofan Lundargata, Norðurgata, Grundargata, Hríseyjargata og loks neðar er Hjalteyrargata. Samsíða Strandgötu er síðan Gránufélagsgatan og Eiðsvallagata. Fróðasund er semsagt götustubbur sem gengur gegn um Lundargötu á blettinum milli Gránufélagsgötu og Eiðsvallagötu.
Fróðasund 10a stendur neðst við götuna.
Það var Sigurður Sigurðarson verlsunarmaður hjá Gránufélaginu sem byggði húsið árið 1877. Þá mun húsið hafa verið einlyft timburhús með háu risi. Húsið mun vera þriðja elsta húsið, sem enn stendur á Oddeyri. Um 1890 er eigandi hússins Karl Kristjánsson. Árið 1917 voru öll hús á Akureyri brunabótavirt í fyrsta skipti. Eru þessar brunabótavirðingar mjög öflugar heimildir um byggingasögu húsa því þar kemur fram m.a. nákvæm lýsing húsa útlitslega séð og einnig eru þáverandi eigendur tilgreindir. Eigandi árið 1917 var Bjarni Hjaltalín og mun húsið hafa kallast Hjaltalínshús á þeim tíma. Það heiti fluttist raunar um eina götu neðar á Eyrina seinna en nú þekkja margir Grundargötu 6 sem Hjaltalínshús.
Árið 1945 var komið að þáttaskilum hjá tveimur gömlum timburhúsum við Norðurgötu, nefnilega þessu húsi, Norðurgötu 7 en einnig næsta húsi Norðurgötu 9. Bæði húsin voru flutt í heilu lagi á auðar lóðir milli Lundargötu og Norðurgötu við götustubbinn Fróðasund, á lóðir númer 10a og 11 og bæði húsin standa enn á þeim stöðum.
Fróðasund 10a er einlyft timburhús með háu risi á steyptum kjallara, klætt steinblikki. Lítill inngönguskúr er stendur austan á húsinu. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús líkast til lengst af einbýli líkt og síðustu áratugi en þó er ekki ólíklegt að einhvern tíma á fyrri hluta 20.aldar hafi búið þarna nokkrar fjölskyldur í einu. Þessi mynd er tekin í haustsólinni 10.október 2010.
Fróðasund 10b var annað hús sem stóð austan við þetta hús, eiginlega bakhús við Gránufélagsgötu. Það var rifið um 1998. Var það einnig flutt á lóðina á svipuðum tíma og 10a en hafði áður staðið neðar á Eyrinni, upprunalega byggt sem lítið iðnaðarhús. Það var einlyft, forskalað timburhús með risi sem var all sérstætt, þ.e. það var síðara og meira aflíðandi öðru megin.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 21
- Sl. sólarhring: 43
- Sl. viku: 492
- Frá upphafi: 436847
Annað
- Innlit í dag: 16
- Innlit sl. viku: 318
- Gestir í dag: 15
- IP-tölur í dag: 15
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Þetta tré sem flækist fyrir er nú ekki nýtt heldur :)
Ragnheiður , 30.11.2010 kl. 14:44
Reynirinn er örugglega kominn yfir miðjan aldur, já. En fallegur er hann í haustlitunum.
Arnór Bliki Hallmundsson, 2.12.2010 kl. 19:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.