20.7.2012 | 21:51
Hús dagsins (nr.155): Nokkur hús í Miðbænum
Hér eru nokkur hús sem standa í og við Miðbæ Akureyrar, myndir sem ég tók sl. vetur en hef ekki komið að.
Fyrst er það Turninn, Hafnarstræti 100b sem stendur dálítið skemmtilega í porti á milli 4 hæða steinsteypuhúsa, Hafnarstræti 100 og 102. Er þetta söluturn í orðsins fyllstu merkingu því efst trónir þessi skemmtilegi turn. Turninn er byggður 1927 og er agnarlítið einlyft timburhús, (kannski 4x5m á grunnfleti)með valmaþaki og klæddur steinblikki. Þarna var sælgætisverslun að ég held frá upphafi og allt til ársins 2007 en þá opnaði þarna veitingastaðurinn Indian Curry Hut en veitingarýni má sjá hér . Mæli ég eindregið með matnum frá Curry Hut, bæði fyrir þá sem dálæti hafa á Indverskum mat og aðra. Þessi mynd er tekin sunnudaginn 18.mars 2012.
Skammt frá Turninum, skáhallt á móti í gilkjafti Skátagilsins stendur Hafnarstræti 107b. Það byggði Ingimar Jónsson og er það sagt byggt á milli 1910-20 (freistandi að giska á 1915 sem er millivegurinn ). Húsið var (og er) Ingimarshús eftir fyrsta eigandanum. Er það tvílyft steinsteypuhús með lágu risi. Síðustu ár hafði það staðið autt og ónótað og bjóst ég allt eins við því að það yrði rifið. En sem betur fer hafði ég þar á röngu að standa, því sl. vetur var húsið allt tekið í gegn að innan og skipt um glugga, gamaldags sexrúðugluggar í stað þverpósta sem höfðu verið í áratugi. Og í byrjun sumars var opnað þarna kaffihúsið Kaffi Ilmur. Þangað hef ég einu sinni farið og fengið mér kaffi og vöfflu- hvort tveggja algjört lostæti. Er einstaklega notalegt að koma þar inn og sér maður greinilega að hér er um fyrrum íbúðarrými að ræða- sem gefur staðnum fyrir vikið heimilislegan blæ. Þessa mynd tók ég 18.mars sl. en þá var endurgerð hússins í fullum gangi og gluggarnir nýju nýkomnir.
Við Ráðhústorg teljast standa nokkur hús sem öll eru sambyggð. Ráðhústorg 1-5 afmarka Ráðhústorg í suðri en þetta eru ein fyrstu margra hæða stórhýsin á Akureyri. Þetta er steinsteypt hús á fimm hæðum byggð í áföngum frá 1930-39 eftir teikningum Tryggva Jónatanssonar og byggingarmeistarar voru Indriði Helgason, Ólafur Ágústsson og Þorsteinn M. Jónsson. Voru þettalengi einar stærstu byggingarnar í bænum og hafa eflaust þótt dálítið "erlendis". Í þessum húsum voru frá upphafi og eru enn verslanir, veitingastaðir og skrifstofur og nokkrar íbúðir einnig en það yrði langur, langur listi að telja upp alla þá starfsemi sem haft hefur aðsetur í húsunum við Ráðhústorg. Þessi mynd er, eins og sjá má, tekin 1.maí sl.
Geislagata 10 er byggð 1925. Það er einlyft timburhús á háum kjallara með háu portbyggðu risi, klætt steinblikki. Það er þó nokkuð svipað norsku timburhúsunum stóru, katalóghúsunum, sem mikið var byggt af uppúr aldamótum en mikið yngra. Það er raunar reist dálítið "seint" af timburstórhýsi að vera en þarna má segja að "steinsteypuöld" hafi verið gengin í garð en eftir 1915 er mun minna byggt af timburhúsum hér í bæ. Húsið var verulega farið að láta á sjá uppúr 1990 en var allt tekið í gegn að utan sem innan. Þá voru byggðar þessar miklu svalir framan á húsið- sem gefa því alveg nýjaan og skemmtilegan svip. Sennilega hefur frá upphafi verið verlsunarrými í kjallara og íbúðir og/eða skrifstofur á efri hæðum. Síðustu ár hefur verið gistiheimili og leiguíbúðir á hæð og í risi. Þegar ég man fyrst eftir mér var rakarastofa í kjallaranum og fór ég einu sinni þangað í klippingu um 1990. Fimm árum seinna var þar komin vídeóleiga sem var starfrækt þarna til ársins 2007 en stóð rýmið autt þar til í fyrravor að þarna var opnað kaffihús, Kaffi Költ. (Og hér kemur enn ein veitingarýnin) Er það mjög skemmtilegt og sérstakt kaffihús. Það er einnig prjóna- og handverksbúð. Þar er hægt að blaða í bókum og einnig er þarna heilmikið vínylplötusafn sem gestir og gangandi mega setja á "fóninn" ef þeim sýnist svo, og þá er þarna hægt að grípa í spil. Ég sest oft þarna inn og fæ mér þá jafnan kaffi og vöfflu en stundum einnig epla- og karamelluköku. Mæli eindregið með Kaffi Költ! Þessi mynd er tekin 1.maí 2012.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 1
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 372
- Frá upphafi: 440805
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 175
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.