27.3.2013 | 17:36
Hús dagsins: Eyrarlandsvegur 24 (Eyrarlandsvegur 26, endurbirtur pistill frá 11.5.2010)
203. Húsapistillinn er um Eyrarlandsveg 24 og þar með loka ég umfjölluninni um Eyrarlandsveg neðanverðan upp að 26, en það hús er ívið eldra en röðin niður að nr. 12. Eyrarlandsveg 26 fjallaði ég um fyrir tæpum þremur árum síðan og mun ég endurbirta þann pistil hér að neðan. En hús númer 24 reisti Páll Sigurgeirsson, kaupmaður í Brauns-verslun árið 1925. Níu árum síðar byggði hann við húsið til norðausturs en á blaðsíðu 82 í bók Steindórs Steindórssonar (1993:82) sést glögglega hvernig húsið leit út upprunalega. Þá var það einlyft með háu risi og á lágum kjallara og alls með þremur kvistum einum bogadregnum á suðvesturhorni, öðrum með hallandi þekju nær norðausturgafli og einum mjög litlum efst uppi fyrir miðju húsinu. Þessi einkenni hússins hafa öll haldið sér og það sem meira er- gluggapóstar virðast með sama lagi nú og árið 1927 þegar umrædd mynd var tekin. (Sá sem tók þá mynd var Vigfús Sigurgeirsson, bróðir Páls sem byggði húsið!) Viðbygging frá 1934 er tvílyft að hluta en á henni eru einnig miklar svalir með skreyttu handriði og virðist fremsti hluti hugsaður sem forstofa. Alltént voru útidyr hússins á suðausturhorni hússins upprunalega, eiginlega hornrétt örlitlu innan við núverandi aðaldyr. Að utan er húsið næsta lítið breytt frá 1934 að viðbygging var reist en líklega hefur einhverju verið hnikað til að innan- það er alla jafna tilfellið þegar í hlut eiga hús um nírætt. Húsið mun vera einbýli og hefur líklega alla tíð verið án þess að ég viti það nákvæmlega; enda húsið meira en þrisvar sinnum eldra en undirritaður
. En líkt og öll húsaröðin í Eyrarlandsveginum er húsið , sem og umhverfi þess í glæsilegu og góðu standi og lóðin- eins og nágrannalóðir- vel gróin reyni- og birkitrjám. Þessi glæsilega húsaröð við neðanverðan Eyrarlandsveg er nefnilega "í felum" þrjá mánuði ársins fyrir laufskrúði áratuga gamalla og stæðilegra trjáa. Þessi mynd er tekin 24.febrúar 2013.
Heimild: Steindór Steindórsson. (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.
Hér er pistillinn um næsta hús ofan við, Eyrarlandsveg 26, birtist fyrst 11.maí 2010. Myndina tók ég þann 6.mars 2010 á leið á kjörstað þegar kosið var um Icesave!
11.5.2010 | 14:54
Hús dagsins: Eyrarlandsvegur 26
Eyrarlandsvegur 26, einnig kallað Breiðablik á stórafmæli á næ sta ári en það er 99 ára, byggt 1911. Húsið hefur mörg einkenni norskra katalóghúsa. Einkennandi fyrir húsið er útskorið skraut og á því er sérstæður kvistur og útbygging nálægt horni þess sem gefa því glæsilegan og sérstakan svip. Upprunalegur eigandi hússins var Sigurður Hlíðar dýralæknir en hann mun ekki hafa byggt það heldur fengu hann og kona hans Guðrún Louise Guðbrandsdóttir það í brúðkaupsgjöf frá móður hennar sem var stórkaupmannsekkja úr Reykjavík. (Steindór Steindórsson 1993) Kom húsið tilhöggvið frá Noregi. Næstu eigendur hússins á eftir Sigurði voru m.a. þeir Guðmundur G. Bárðarson, átti húsið 1923-26 og Brynleifur Tobíasson sem bjó þar lengi á eftir. Báðir kenndu þeir við Menntaskólann á Akureyri, en þetta hús er einmitt staðsett skáhallt á móti skólanum. Þá mun Sigurður sjálfur einhverntíma hafa kennt við skólann. Nú er húsið í eigu Kaþólsku kirkjunnar og þar mun vera íbúð prests og kapella. Kaþólska kirkjan á einnig næsta hús, Hrafnagilsstræti 2 ( gafl þess sést t.v. á myndinni) og var það hús gert upp á hennar vegum fyrir ca. 5-10árum og þjónar nú sem kirkja. Þessi mynd er tekin 6.mars 2010. En þann dag brá ég mér í mikinn ljósmyndaleiðangur á leið frá kjörstað (þann dag var einmitt kosið um IceSave eins og allir muna), þar sem ég hafði tæmt það húsamyndasafn sem ég átti fyrir. Myndaði ég þar þetta hús, Gamla Skóla, Sigurhæðir og nokkur hús við Hafnarstræti. Húsamyndasafn mitt frá Akureyri er þar með tæmt, en þó eru fáein sögufræg hús sem ég finnst mér verða að koma að fyrst ég er nú að þessu á annað borð.
En hvenær læt ég staðar numið af húsum dagsins ? Í því er ekkert ákveðið. Hugsanlega segi ég það gott eftir 100 hús (þetta er 80.húsamyndin sem ég set inn). Eða eftir eitt ár, en 25.júní nk. verður þessi dálkur Hús dagsins eins árs. Svo geta hlutirnir undið uppá sig; ef ég set inn eitt hús þá finnst mér kannski ekki stætt á öðru en að setja annað, sem ég tel á e-n hátt "sambærilegt". En eitt er víst að ég mun tilkynna það hvenær ég hyggst láta staðar numið af Húsum dagsins. Einhverjir kíkja hér eflaust reglulega og og athuga hvort komið sé "nýtt" hús og leiðinlegt þætti mér að skilja þá eftir í óvissu um hvort og hvenær ný umfjöllun kæmi.
Heimild: Steindór Steindórsson. (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur.
(PS. Þetta er óneitanlega dálítið skemmtilegar hugleiðingar þarna í lokin á pistlinum frá maí 2010- svona í ljósi þess hvert framhaldið hefur orðið og hversu lengi þetta hefur gengið!)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.3.): 9
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 271
- Frá upphafi: 443122
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 138
- Gestir í dag: 5
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.