27.9.2013 | 16:28
Hús dagsins: Hafnarstræti 31 og 33.
Ég held áfram með Hafnarstrætisröðina frá 29 en þetta eru allt sviplík hús, reist á fyrstu árum 20.aldar (öll nema eitt) á lóðum sem timburmeistararnir Jónas Gunnarsson og Sigtryggur Jóhannesson eignuðust 1904 og líklegt er talið að þeir hafi annast byggingu flestra húsanna. Nú tek ég fyrir tvö hús í einu en annað þeirra er sögulega mjög svo frábrugðin hinum kannski helst vegna þess að það er um 8 sinnum yngra en flest hin húsin.
Hafnarstræti 31 (blátt, til vinstri á mynd)
Hafnarstræti 31 er lang yngsta húsið í þessari röð og að ég held yngsta hús við Hafnarstrætið allt en það er byggt 1999. En þarna endaði verslunarlóð Schiöth- verslunar og stóð þarna svokallaður Rauði-Stólpi, mikill staur sem afmarkaði verslunarlóðina. Árið 1906 fengu eigendur lóðarinnar, áðurnefndir Jónas og Sigtryggur fengið byggingarleyfi þarna en nýttu sér það ekki. Það var svo ekki fyrr en 93 árum seinna sem þetta hús var byggt. Mig minnir að SS-Byggir verktakar hafi byggt þetta (nú mega lesendur endilega leiðrétta mig ef mig misminnir!) en húsið var reist með því sem ég kalla plastkubba eða "legokubba" aðferð þ.e. hlaðið úr einangrunarplastkubbum og í þá er skellt járnbentri steinsteypu. Húsið er semsagt tvílyft bárujárnsklætt steinhús á háum kjallara og með lágu risi og með gamaldags póstum. En þegar reist eru ný hús inn í eldri húsaröðum er reynt að láta þau líkja eftir lagi eldri húsanna enda nýtur t.a.m. þessi húsaaröð friðunar sem heild. Hafnarstræti 31 er dæmi þar sem þetta hefur tekist h.u.b. fullkomlega en húsið fellur algjörlega inní þá götumynd útlitslega og stærðarlega séð, en húsið er örlítið lægra og styttra en hús nr. 29 en ívið stærra en 33.
Hafnarstræti 33 (t.v. á mynd)
Húsið er talið byggt 1904 en ekki finnst formlegt byggingarleyfi fyrir húsinu, en fyrsti eigandi þess hét Páll Þorkelsson en líklegast hafa þeir Jónas og Sigtryggur annast byggingu hússins. 1911 eru þeir allavega orðnir eigendur hússins. Húsið er tvílyft timburhús á steinsteyptum kjallara og með lágu risi. Lítil forstofubygging er á suðurhlið og stigahús á bakhlið. Húsið er klætt með steinblikki og bárujárn er á þaki. Gluggapóstar á neðri hæð eru dálítið sérstakir, margskiptir en á efri hæð eru krosspóstar en ekki gott að átta sig á hvort hefur upprunalega verið. Í bók Hjörleifs Stefánssonar um Innbæinn koma fram nákvæmar upplýsingar um stærð húsanna sem fjallað er um og þar kemur fram að húsið sé 231 fermetrar og 718 rúmmetrar að stærð (Hjörleifur Stefánsson 1986: 127). Þar er einnig eigendalisti frá upphafi sem ekki verið tíundaður hér en margir hafa átt húsið og enn fleiri búið í því en eftir 1940 virðist húsið hafa skipst í tvo eignarhluta og skiptist milli hæða. Enn eru tvær íbúðir í húsinu, hvor á sinni hæð. Meðfylgjandi mynd af Hafnarstræti 31 og 33 er tekin 10.september sl.
Heimildir: Hjörleifur Stefánsson (1986) Akureyri: Fjaran og Innbærinn byggingarsaga. Reykjavík: Torfusamtökin.
Steindór Steindórsson (1993). Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 30
- Sl. sólarhring: 44
- Sl. viku: 501
- Frá upphafi: 436856
Annað
- Innlit í dag: 21
- Innlit sl. viku: 323
- Gestir í dag: 20
- IP-tölur í dag: 20
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.