25.6.2016 | 16:31
Hús dagsins: Þingvallastræti 4
Árið 1929 fékk Helgi Tryggvason leyfi til byggingar íbúðarhúss, á einni hæð á háum kjallara og með risi, að stærð 8,10x9m. Teikningarnar af húsinu gerði Sigtryggur Jónsson og var húsið fullbyggt árið 1930. Í byggingaleyfi er húsið sagt einlyft á kjallara og upprunalegar teikningar virðast gera ráð fyrir því að kjallari sé lægri eða a.m.k. meira niðurgrafinn. Það er a.m.k. Mat þess sem þetta ritar að húsið sé tvílyft, þar eð neðri hæð hússins er algjörlega ofanjarðar. Húsið er af klassískri gerð, með háu risi og miðjukvistum að framan og aftan. Bakkvistur er lægri en sá að framan. Steyptar tröppur eru uppá aðra hæð að austanverðu og á þeim skrautlegt, steypt handrið. Inngangur á neðri hæð er á vesturgafli. Krosspóstar eru í gluggum en bárujárn á þaki.
Þingvallastræti 4 er ekki langt ofan Miðbæjarins, í raun aðeins í fimm mínútna göngufæri þaðan. Þó er það svo, að þegar húsið var byggt var það í hópi útvarða þéttbýlis Akureyrar, í hópi efstu húsa bæjarins. Ofar voru erfðafestulönd, grasbýli og tún, m.a. nýtt af Oddeyringum. Voru kýr þeirra reknar upp og niður Oddeyrargötuna sem hlaut viðurnefnið Kúagata þess vegna.
Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús. Það er auglýst sem einbýlishús fyrir hálfri öld, og líkast til varð það byggt sem slíkt. Um og fyrir miðja 20.öld öld bjó Sigmund Jacobssen í húsinu. Hann ritstýrði ásamt séra Nils Ramselius Barnablaðinu sem gefið var út á vegum Filadelfíusafnaðarins. Hófu þeir útgáfu blaðsins árið 1938 og var afgreiðsla blaðsins í húsinu um árabil. (Hér að framan er krækja á fyrsta tölublað Barnablaðsins frá október 1938, og á öftustu síðu kemur fram að afgreiðsla blaðsins sé í Þingvallastræti 4). Þá var einnig starfrækt saumastofa í húsinu um 1947. Öfugt við það sem margir kynnu að halda er kvisturinn á þaki hússins ekki upprunalegur en kvistirnir voru settir á húsið árið 2000 í kjölfar þess að þakið var endurnýjað algjörlega. Hönnuður þeirra breytinga er Þröstur Sigurðsson.
Húsið er stórglæsilegt og virðist sem nýtt, enda er rishæðin raunar tiltölulega nýleg. Samkvæmt Húsakönnun sem gerð var 2015 fer nýr kvistur húsinu vel og get ég sannarlega tekið undir það. Húsið sómir sér vel í þessari glæsilegu götumynd sem þessi elsti og neðsti hluti Þingvallastrætis er og ekki skemmir fyrir að lóð er vel hirt og umhverfi stórglæsilegt líka. Í húsinu eru tvær íbúðir. Myndin er tekin þann 8.maí 2016.
Heimildir: Jón Sveinsson. 1955. Jónsbók. Upplýsingar um upprunasögu hús á Akureyri árið 1933.
Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 30
- Sl. sólarhring: 30
- Sl. viku: 521
- Frá upphafi: 436916
Annað
- Innlit í dag: 29
- Innlit sl. viku: 352
- Gestir í dag: 29
- IP-tölur í dag: 27
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.