29.9.2016 | 09:50
Hús dagsins: Oddeyrargata 19
Haraldur Jónsson snikkari fékk lóð árið 1928 á milli húsa nr. 17 og 21 við Oddeyrargötu. Í mars árið eftir er honum heimilað að reisa hús á lóð sinni, íbúðarhús á einni hæð á kjallara og með kvisti. Hitt er svo annað mál- að þetta er eina heimildin sem ég hef fundið um hús nr.21 við Oddeyrargötu. Því hlið þessa húss stendur Oddeyrargata 23 og stóð raunar þegar þegar þetta hús var reist. Því hlýtur að vera um að ræða misritun í fundargerðum Bygginganefndar. Það er raunar ekki óalgengt í eldri götum Akureyrar að eitt og eitt númer vanti í röðina. Í sumum tilvikum er um að ræða lóðir sem aldrei voru byggðar en þá er hitt einnig til, að aðeins ein húsbreidd sé á milli. Skýringarnar á þessu er líkast til eins misjafnar og þær eru margar. Ég hvet þá lesendur, sem ganga um götur Akureyrar, til að reyna að finna t.d. Ægisgötu 9, Norðurgötu 14 eða Hafnarstræti 51.
Haraldur reisti árin 1929-30 það hús sem enn stendur á Oddeyrargötu 19, en teikningar gerði H. Jónsson (skv. Húsakönnun 2014, ekki aðgengilegar á Landupplýsingakerfi). Þar er mögulega um að ræða Harald sjálfan. Húsið er einlyft steinsteypuhús á lágum kjallara og með háu risi og miðjukvistum að framan og aftan. Á norðurstafni hússins er forstofubygging með nokkrum steyptum yfirbyggðum tröppum upp að útidyrum. Margskiptir póstar eru í gluggum hússins og eru að öllum líkindum upprunalegir eða a.m.k. í samræmi við upprunalegt útlit, en stallað bárujárn á þaki. Þá klæðningu hef ég löngum kallað skífustál, vegna þess hve áferð þess líkist þakskífu.
Haraldur Jónsson bjó í húsinu ásamt fjölskyldu sinni um áratugaskeið og starfrækti þarna húsgagnaverkstæði. Ég er að vísu ekki viss hvort að húsgagnaverkstæðið var starfrækt í húsinu eða hvort skúr eða verkstæðisbygging stóð á lóðinni, en alltént var vinnustofan starfrækt á þessu heimilisfangi. Húsgagnavinnustofa Haraldar var sem sagt starfrækt þarna lengi vel og þar smíðaði Haraldur hinar ýmsustu mubblur á borð við barnarúm sem sjá má í auglýsingu í tenglinum hér að framan. Hér má einnig sjá forláta stól frá Haraldi í auglýsingu frá haustinu 1950. Mögulega eru einhverjir lesendur sem annað hvort eiga eða a.m.k. muna eftir húsgögnum frá Haraldi í Oddeyrargötu , en það er ekki annað að sjá en að þetta hafi verið eigulegir gripir. Svo er það nú einu sinni svo, að það sem framleitt var á þessum áratugum var smíðað til að endast og því ekki ólíklegt að mörg þau húsgögnin sem smíðuð voru þarna séu enn í fullu fjöri. Oddeyrargata 19 er stórglæsilegt og vel hirt hús, og mun að mestu óbreytt frá upprunalegri gerð. Þó voru gerðar nokkrar breytingar á þaki hússins árið 1982, m.a. þak hækkað á austurkvisti. Ein íbúð er í húsinu. Margskiptir gluggapóstar gefa húsinu sinn sérstaka svip, en það er kallað að augnstinga hús þegar póstum er skipt út fyrir einfaldari og gluggaumbúnaður fjarlægður en Oddeyrargata 19 hefur svo sannarlega ekki orðið fyrir slíkum aðgerðum. Myndin er tekin þann 21.febrúar 2016.
Heimildir: Jón Sveinsson. 1955. Jónsbók. Upplýsingar um upprunasögu húsa á Akureyri, teknar saman 1945-55.
Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 508
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 354
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.