28.12.2016 | 10:44
Hús dagsins: Oddeyrargata 10
Árið 1927 fengu þeir Áskell Sigurðsson og Sigurbjörn Friðriksson leyfi til að reisa íbúðarhús við Oddeyrargötu, steinhús á einni hæð á háum kjallara og valmaþaki, 11x8m að stærð. Teikningarnar að húsinu gerði Tryggvi Jónatansson. Oddeyrargata 10 er tvílyft steinsteypuhús með háu valmaþaki. (Á teikningum og í bókunum bygginganefndar er neðri hæð raunar kölluð kjallari) Á þaki er bárujárn en krosspóstar eru í gluggum. Framhlið hússins er samhverf um miðju; þar eru tvær inngöngudyr og gluggi nær horni en á efri hæð hálfur gluggi næst miðju hvoru megin og tveir gluggar við hlið þeirra.
Húsið hefur frá upphafi verið parhús og íbúðaskipan alla tíð sú sama. Bjó Sigurbjörn, sem síðar byggði hús við Norðurgötu á Oddeyri, í nyrðri hluta en í syðri hluta bjuggu þau Áskell Sigurðsson og kona hans Sigríður Aðalheiður Jónsdóttir. Þess má geta, að þau voru langafi og langamma þess sem þetta ritar. Sigríður hafði mikinn áhuga á garðrækt og hafði lítið gróðurhús á lóðinni þar sem hún ræktaði ýmsar skrautjurtir og matjurtir. Þá gróðursetti hún nokkur tré á lóðinni, þ.á.m. gullregn sem stóð og stendur enn sunnan við húsið. Í þessari grein frá 1981 minnist Ingólfur Davíðsson grasafræðingur á gullregnið við Oddeyrargötu 10. Síðar bjó hér um áratugaskeið Júdit nokkur Jónbjörnsdóttir. Með henni bjó faðir hennar, Jónbjörn Gíslason. Hann var um tíma búsettur í Vesturheimi en fluttist aftur til Íslands 1956 og bjó í þessu húsi ásamt dóttur sinni til dánardægurs. Hann var mikill áhugamaður um rímnakveðskap og átti hljóðrita og safnaði með honum ýmsum kvæðum til varðveislu. Hann hljóðritaði á hólka, líkt og tíðkaðist á þeim tíma (1920-30) en yfirfærsla þeirra upptaka á segulband fór fram í Oddeyarargötu 10 á kyndilmessu 1968. (Frásögn Júditar í Húnavöku 1982) Nú eru þessi hljóðrit, sem yfirfærð voru á segulband í þessu húsi aðgengileg á ismus.is. Hér má m.a. heyra Jónbjörn kveða Andrarímur ásamt Sigríði Hjálmarsdóttur en hljóðritunin er talin gerð á bilinu 1920-23 þ.e. rétt innan við aldargömul!
Oddeyrargata 10 er reisulegt hús í einföldum klassískum stíl. Húsið er að mestu óbreytt frá upphafi en í mjög góðri hirðu. Lóðin er einnig vel gróin og vel frágengin m.a. með bjálkahleðslu á lóðarmörkum og klifurjurtir setja einnig skemmtilegan svip á húsið. Að ógleymdu gullregninu sem mikil prýði er af. Húsið stendur á horni Krabbastígs og Oddeyrargötu og er neðst í röð svipaðra húsa, 10-22 og hefur skv. Húsakönnun 2015 varðveislugildi sem hluti þessarar glæsilegu húsaraðar. Húsið er eilítið stærra að grunnfleti en flest þessara húsa og jafnframt það eina sem skiptist eftir miðju í eignarhluta. Myndin er tekin í upphafi ársins sem senn er á enda, 10. janúar 2016. Hér að neðan má sjá gullregnið í haustskrúða, myndin tekin þann 4.okt. sl.
Heimildir: Jón Sveinsson. 1955. Jónsbók. (Skrá yfir upprunasögu húsa sem stóðu á Akureyri um 1935, tekin saman 1945-55).
Óprentað, óútgefið. Varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (30.1.): 25
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 467
- Frá upphafi: 441289
Annað
- Innlit í dag: 22
- Innlit sl. viku: 324
- Gestir í dag: 22
- IP-tölur í dag: 21
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir þennan pistil. Í þessu húsi fæddist ég. Á tal um garðræktaráhuga ömmu má þess líka geta að hún var ein af þeim sem tóku þátt sköpun Lystigarðsins á sínum tíma.
Kær kveðja,
Magga
Margrét Harðardóttir (IP-tala skráð) 3.1.2017 kl. 08:36
Mín var ánægjan, takk fyrir innlit og athugasemd- og skemmtilega fróðleiksmola. Ég vissi ekki að langamma hefði komið að stofnun Lystigarðsins, en það kemur mér sannarlega ekki á óvart. Vissi að hún var stofnfélagi í kvenfélaginu Baldursbrá sem m.a. gróðursettu í Glerárþorpi, þar sem síðan kallast Kvenfélagsgarðurinn. Mér skilst að sá garður megi raunar muna sinn fífil fegri frá því sem áður var. En þó hefur þar verið komið fyrir upplýsingaskilti um upphaf garðsins og kvenfélagsins.
Bestu kveðjur,
Arnór.
Arnór Bliki Hallmundsson, 7.1.2017 kl. 19:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.