11.7.2017 | 21:24
Hús dagsins: Hafnarstræti 13
Í síðastliðnum færslum hef ég tekið fyrir Munkaþverárstrætið að Bjarkarstíg/Krabbastíg vestanvert og hyggst næst taka fyrir sömu götu að austanverðu. En áður en að því kemur, skulum við aðeins bregða okkur í Innbæinn.
Hið 222 ára gamla Laxdalshús, Hafnarstræti 11, elsta hús bæjarins var reist af Kyhns- verslun árið 1795. Var það upprunalega geymsluhús en tveimur árum áður hafði Kyhn reist veglegt verslunarhús. Á þessari ljósmynd, sem finna má á Sarpur.is sést umrætt verslunarhús frá 1793 til hægri. Húsið var tvílyft með háu risi og sneri austur- vestur. Líklega hefur það verið komið í mikla niðurníðslu árið 1933 þegar það var rifið, þá 140 ára gamalt. Það var ekki fyrr en áratugum síðar að nokkrum datt í hug að varðveita og gera upp gömul hús.
En sama ár var maður að nafni Adolf Kristjánsson í byggingarhugleiðingum. Vildi hann fá að að reisa einlyft timburhús á lóð Jóns Kristjánssonar Byggingin var ekki heimiluð þar, en snemma árs 1934 fékk Adolf makaskipti á áðurnefndri lóð við lóðina norðan Hafnarstrætis 11 [Laxdalshús]. Skyldi lóðin 18x20m. Ekki gat ég fundið út úr því hvar þessi lóð Jóns Kristjánssonar var, en hún mun hafa verið austan Hafnarstrætis. Á þessari lóð var Adolf leyft að reisa hús, eina hæð á kjallara. Teikningar gerðu ráð fyrir tveimur hæðum en Adolf vildi fá 10 ára frest til þess að ljúka húsinu en Bygginganefnd vildi að húsinu yrði lokið á fimm árum. Ári síðar fékk hann þó þennan frest lengdan í tuttugu ár. Það er svosem skemmst frá því að segja að 83 árum síðar er Hafnarstræti 13 ein hæð á kjallara. Upprunalegar teikningar eru ekki aðgengilegar á Landupplýsingakerfi. Hafnarstræti 13 er einlyft steinsteypuhús á háum kjallara og með valmaþaki. Forstofubygging er á norðurhlið og steyptar tröppur upp að inngangi. Á bakhlið er útbygging og verönd sunnan við hana. Krosspóstar eru í gluggum efri hæðar en einfaldir lóðréttir póstar í kjallaragluggum og bárujárn á þaki. Upprunalega var húsið með flötu þaki, ekki ósvipað næsta húsi, Hafnarstræti 15. Valmaþak var hins vegar byggt á húsið árið 1956, eftir þessum óundirrituðu teikningum.
Sé húsinu flett upp í timarit.is má m.a. sjá auglýsingar frá 1942 um e.k. prjónastofu á vegum Ásgríms Stefánssonar , en þar mun hafa verið um að ræða það sem síðar varð Prjónastofan Hekla. Eigandi hússins árið 1956 var Kristbjörg Jónatansdóttir, skv. teikningunum að valmaþakinu. Þarna bjó einnig Ragnheiður O. Björnsson verslunarkona með meiru og einn stofnenda Zontaklúbbsins á Akureyri. Erlingur Davíðsson ritstjóri heimsótti hana haustið 1972 og hafði þá þetta að segja um húsið: Hafnarstræti 13 gamalt hús og þar verður fótatak manna blandað ofurlitlu braki. Íbúðin er hlýleg, búin gömlum dönskum húsgögnum úr búi foreldranna, þeirra Ingibjargar Benjamínsdóttur frá Stóru-Mörk í Laxárdal og Odds Björnssonar, prentmeistara, fyrrum heiðursborgara Akureyrar... (Erlingur Davíðsson 1972: 183). Frásögn Ragnheiðar O. Er að finna í fyrsta bindi bókaflokksins Aldnir hafa orðið. Þar er um að ræða einstaklega fróðlega lesningu og skemmtilega fyrir þá sem áhuga hafa á sögu Akureyrar, því hún lýsir nokkuð gaumgæfilega daglegu lífi í Innbænum (það kemur raunar fram, að á uppvaxtarárum hennar hafi það hugtak verið óþekkt- þar var einfaldlega um að ræða Akureyri) á fyrstu árum 20.aldar. Þegar ég var að skrifa um Bæjarbrunana á þessa síðu haustið 2013 átti ég í þó nokkru basli við það, að finna út hvaða hús skemmdust í brunanum 1901. Því í þá daga voru götuheiti og númer yfirleitt ekki notuð heldur húsin einfaldlega kennd við eigendur eða húsbændur. Ég gat með engu móti fundið út hvaða hús var Blöndalshús. En líklega um ári síðar las ég þessa frásögn Ragnheiðar og þar kemur fram, að hún bjó einmitt í umræddu Blöndalshúsi þegar bruninn varð: Blöndalshús var Lækjargata 6, kennt við Magnús Blöndal sem átti efri hæðina.
En aftur að Hafnarstræti 13. Húsið er í góðu standi og lítur vel út, hefur nýlega (2010) hlotið endurbætur þar sem m.a. var byggð forstofa eða anddyri á norðurhlið. Ein íbúð er í húsinu. Núverandi eigandi, Sigurbjörg Pálsdóttir, hefur búið hér í tæpa fjóra áratugi. Í nýútkominni bók Kristínar Aðalsteinsdóttur, Innbær. Húsin og fólkið, er fróðlegt og skemmtilegt viðtal við hana. Ég mæli með þeirri bók fyrir hvern áhugamann um Innbæinn og Akureyri sem er- og í rauninni mæli ég með þeirri bók fyrir hvern sem er. Myndin er tekin þann 24.febrúar 2015, þ.e. fyrir rúmum tveimur árum síðan þegar þetta er ritað. Það gerist stundum, að húsamyndir gleymast hjá mér.
Heimildir:
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1930-35. Fundur nr 716, 27.feb 1934. Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Erlingur Davíðsson. (1972). Aldnir hafa orðið. I bindi. Akureyri: Skjaldborg.
Jón Sveinsson. (1955). Jónsbók. (Skrá yfir upprunasögu húsa sem stóðu á Akureyri um 1935, tekin saman 1945-55). Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Kristín Aðalsteinsdóttir. 2017. Innbær. Húsin og fólkið. Akureyri: Höfundur.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring: 51
- Sl. viku: 508
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 354
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.