20.11.2017 | 07:39
Hús dagsins: Bjarmastígur 8
Bjarmastíg 8 reisti Svavar Guðmundsson bankastjóri árið 1952 eftir teikningum Bárðar Ísleifssonar. Í bókunum Byggingarnefndar er lýsingar á húsinu ekki getið, en aðeins vísað í fyrirliggjandi teikningu. Þann 1.nóvember 1948 hafði Útvegsbankinn (Hafnarstræti 107) sótt um að reisa einbýlishús á lóð sinni við Bjarmastíg. Það var samþykkt, enda reiknað með því að skipulagi yrði breytt á þann hátt, að byggt yrði meðfram allri götunni að austan. (Þá voru aðeins risin tvö hús þeim megin, þ.e. Bjarmastígur 2 og 6). Ekki er ósennilegt að hér sé um að ræða umrætt hús, en Útvegsbankinn var til húsa í Hafnarstræti 107, sem liggur einmitt næst austan og neðan þessarar lóðar. Alltént var það bankastjóri Útvegsbankans sem reisti þetta hús. En Bjarmastígur 8 er einlyft steinsteypuhús með háu valmaþaki og stendur það á háum kjallara. Inngöngudyr og steypt verönd á framhlið og steyptar tröppur að honum. Í flestum gluggum eru einfaldir lóðréttir póstar en á suðurhlið og við inngang eru stórir og voldugir gluggar með margskiptum póstum; níu smárúðum (tólf í glugga við inngöngudyr). Neðan þessara glugga eru inndregnar svuntur sem gefa húsinu óneitanlegan sérstakan svip. Svavar bankastjóri hefur líkast til ekki búið hér í mörg ár, en hann flutti nokkrum árum síðar til Hamborgar í Þýskalandi. Hann var búsettur þar þegar hann lést, árið 1960.
Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús, en þess má þó geta, að hér var starfrækt bílaleiga, Prinz-leigan á sjöunda áratugnum. Héðan hafa því líkast til verið leigðir út NSU-Prinz smábílar, en þeir voru framleiddir í Vestur Þýskalandi um nokkurra ára skeið um 1960. Mögulega hefur bílskúr, sem stendur norðan við húsið, nýst eitthvað við bílaleiguna en fyrir honum fékk Svavar Guðmundsson byggingarleyfi haustið 1953. Húsið er í góðu standi og lítur vel út, traustlegt og reisulegt að sjá. Stórbrotnir gluggar gefa húsum ævinlega sérstakan og einkennandi svip og svo er vitaskuld tilfellið með margskiptu gluggana á Bjarmastíg. Lóð hússins er stór og vel gróin, þar má finna hálfgerðan skóg af grenitrjám neðst og austast. Sunnan við húsið, nær götu eru tvö mikil lerkitré. Annað þeirra, eða það syðra, er sérlega skemmtilega vaxið en stofn þess greinist mjög reglulega í þrennt svo minnir á kampavínsglas eða eitthvað þess háttar. (Sjá mynd) Lerkitré þessi eru á að giska 15 metrar á hæð, a.m.k. Myndirnar eru teknar að kvöldi Uppstigningadags, 25.maí 2017.
Heimildir: Bygginganefnd Akureyrarbæjar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr.1104, 1.nóv. 1948, fundur nr.1141, 17.ágúst 1951, fundur nr. 1179, 9.okt. 1953. Óprentað, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 2
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 385
- Frá upphafi: 436918
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 275
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.