8.4.2018 | 13:19
Kærar þakkir Guðni Már
Allt hefur sinn tíma segir einhvers staðar, og það á að sjálfsögðu líka við um góða- eða öllu heldur framúrskarandi frábæra- útvarpsþætti á borð við Næturvaktina með Guðna Má Henningssyni. Það skal þó tekið fram, að ég efast ekki hætishót um að eftirmaður hans á Næturvaktinni komi til með að standa sig frábærlega.
Það vill svo til, að tónlistarval Næturvaktarinnar hefur fallið einstaklega vel að mínum tónlistarsmekk og oft um að ræða tónlist sem maður heyrir sjaldan annars staðar á öldum ljósvakans. Svo ég nefni dæmi, það líða oft margir dagar- ef ekki vikur- milli þess að maður heyri Led Zeppelin eða Uriah Heep lög í útvarpi. Í þætti gærkvöldsins spilaði Guðni a.m.k. tvö lög með hvorri sveit í 5 klst. þætti. Þetta er ekkert einsdæmi. Þá hefur maður h.u.b. getað gengið að þvi vísu, að Guðni spili meistara Bjartmar Guðlaugsson í hverjum þætti. El Paso Marty Robbins spilaði hann reglulega sem og My friend the wind Demis Roussos hvort tveggja dæmi um perlur sem heyrðust reglulega hjá Guðna en eru afar sjaldheyrðar annars staðar. Og allir "meistararnir", íslenskir sem erlendir sem of langt mál væri að telja upp. Tónlistarvalið var ekki ósvipað því sem gerðist í Hvítum Mávum Gests Einars Jónassonar, sællar minningar. Það er hins vegar ekki svo, tónlist á borð við framangreinda, sem ég kalla oft einu nafni "Gömlu góðu" heyrist ALDREI í útvarpi annars, ég nefni sem dæmi góðan þátt KK á Rás 1; Á Reki á laugardagsmorgnum auk þess sem margir dagskrárgerðarmenn Á Rás 2 og Bylgju lauma stundum perlum á "fóninn". Á Næturvaktinni er Guðni Már skemmtilega afslappaður og mikil þekking og alúð fyrir viðfangsefninu skín í gegn um viðtækið. Þá hefur alltaf verið skemmtilegt að heyra spjall hans við þá sem hringja inn, margir sem hringja reglulega og spjalla oft heillengi um daginn og veginn, þetta verður svona notalegt kaffispjall í beinni. Sjálfur gerðist ég reyndar aldrei svo frægur að hringja inn, lét nægja að hlusta.
Og fyrst minnst er á notalegt spjall skal að sjálfsögðu nefnt Auglitið, sem var á dagskrá á sunnudögum til hausts 2014. Þar var svipað uppi á teningnum hvað tónlistarval varðaði en það sem oft var mest spennandi var þegar fasti, ákveðni trommutaktur Fun Boy Three & Bananarama lagsins It ain´t what you do it´s the way you are doing it tók að hljóma. Það þýddi, að Keli Vert var mættur í hús. Spjall þeirra tveggja gat orðið algjörlega óborganlegt, í senn fræðandi og stórfyndið. Lögðu þeir upp með að tala um mat og matargerð en spjallið fór oftar en ekki út um víðan völl og þá byrjaði gamanið. Minnisstæðast er e.t.v. þegar sú hugmynd fæddist í beinni útsendingu að steypa páskaegg úr Prins Póló, eða þegar þeir blésu óvænt til bjúgnahátíðar, sem mér skilst að sé orðin árviss viðburður á hótelinu sem Keli rekur á Snæfellsnesi.
Það ber e.t.v. vott um sjálfhverfu að koma þessu að, en það rétt að geta þess, að fjölmargir húsapistlarnir hér á þessari síðu eru skrifaðir á laugardagskvöldum undir ljúfum tónum og spjalli Næturvaktarinnar - pistlar frá 2013-14 margir hverjir á sunnudögum undir Auglitinu. Sem dæmi má nefna, allar greinar hér frá útmánuðum 2015 um Ægisgötu og Ránargötu á Oddeyrinni. Þá tamdi ég mér beinlínis þá venju, að skrifa á laugardagskvöldum meðan ég hlustaði á Næturvaktina.
Síðasta lagið sem Guðni spilaði á Næturvaktinni í gærkvöld var Hawaíski söngurinn Aloha- Oe í flutningi Johnny Cash. Einstaklega vel valið loka- lokalag.
Þakka Guðna Má Henningssyni kærlega fyrir góða skemmtun og ljúfa tóna öll þessi ár og óska honum góðs gengis og alls hins besta á nýjum slóðum.
Hefur bara hafnað Händel | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 5
- Sl. sólarhring: 62
- Sl. viku: 422
- Frá upphafi: 440779
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 201
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.