9.8.2018 | 16:02
Hús dagsins: Munkaþverárstræti 34
Munkaþverárstræti 34 reisti Þórður V. Sveinsson árið 1943. Hann fékk haustið 1942 leyfi til byggingar húss, sem skyldi steinsteypt með steinlofti og járnklæddu timburþaki, tvær hæðir með kjallara undir 2/5 hluta hússins. Að grunnfleti skyldi húsið vera 13,6x12,25 m.ö.o. ívið stærra en flest húsin í nágrenninu, bæði að lengd og breidd. (Til samanburðar má nefna, að næsta hús sunnan við þ.e. nr. 32 mun vera 11,2x9,2m) Þá var húsið frábrugðið næstu húsum að á því var risþak, þó húsið sé með einkennum funkisstefnunnar. Teikningarnar að húsinu gerði Gunnlaugur Halldórsson.
Munkaþverárstræti 34 er steinsteypuhús, tvílyft á lágum kjallara en líkt og gengur og gerist við Munkaþverárstrætið er nokkur hæðarmismunur á lóð, þ.a. neðri hæð hússins er að nokkru niðurgrafin að vestanverðu. Á húsinu er lágt ris, bárujárnsklætt en veggir eru múrsléttaðir. Einfaldir, lóðréttir póstar eru í flestum gluggum með opnanlegu þverfagi í neðra horni. Svalir til austurs eru á efri hæð. Á suðausturhorni eru horngluggar, í anda funkisstílsins en á suðurhlið eru einnig stórir gluggar innrammaðar í eins konar útskoti. Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús, þarna bjó áðurnefndur Þórður V. Sveinsson ásamt fjölskyldu sinni til dánardægurs, en hann lést langt fyrir aldur fram árið 1964.
Þórður var m.a. húsgagnasali og hafði á 6. áratugnum umboð fyrir hin valinkunnu Hansa húsgögn. Hansa hillur, Hansa hurðin, Hansa gluggatjöld o.fl. kannast sjálfsagt margir við frá fyrri tíð. Og ekki bara fyrri tíð, því þessi húsgögn endast og endast og eru enn í fullu gildi á mörgum heimilum. Mér skilst, að Hansa húsgögn komi stundum inn á nytjamarkaði en staldri aldrei lengi við, því eftirspurnin mun mikil, um 60 árum eftir að Þórður V. og fleiri umboðsaðilar höfðu þau á boðstólnum. Og nú hefur Bjartmar Guðlaugsson gert Hansa hillurnar ódauðlegar í texta lagsins Þegar vindurinn sefur þar sem segir [...] þar ilmar tekkolíurómantíkin / skenkurinn og hansahillufárið [...] Þess má geta, að í textanum eru fleiri gersemar nefndar; eftirprentuð Fjallamjólk, Drengurinn með tárið og tveggja borða bíórgel. Lagið má finna á nýjustu plötu Bjartmars, Blá nótt sem út kom sl. vetur.
En svo við víkjum aftur sögu að húsinu, er það svo að það mun vera svo til upprunalegt í útlitli að ytra byrði, og einnig er við götu steypt girðing sem mun upprunaleg. Innra skipulagi mun hafa verið breytt árið 1988 eftir teikningum Birgis Sigurðssonar. Var þá íbúðum fjölgað, og eru síðan tvær íbúðir á neðri hæð og ein á þeirri efri. Húsið fær varðveislugildi 1 í Húsakönnun 2015, en er sagt stórt og ólíkt húsum í húsaröðinni (án þess þó að það sé til nokkurrar foráttu). Húsið fær plúsa fyrir upprunaleika og viðhald. Enda ekki annað að sjá, en að viðhald og umhirða hússins sé til fyrirmyndar. Sömu sögu er að segja af lóð, en á henni m.a. sjá nokkrar stæðilegar aspir. Myndin er tekin þ. 18. feb. 2018.
Heimildir:
Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Bjartmar Guðlaugsson. 2017. Þegar vindurinn sefur af plötunni Blá nótt. Geimsteinn útgáfa, Reykjanesbæ.
Bygginganefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 927, 2. okt. 1942.
Óprentað og óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.2.): 7
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 195
- Frá upphafi: 441491
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 142
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.