3.4.2019 | 09:23
Hús dagsins: Holtagata 9
Í marsbyrjun 1939 var Holtagatan að mestu leyti óbyggð, en þá stóðu aðeins hús nr. 1 og 2 við hana, hvor tveggja tiltölulega nýreist. En þá fékk Guðmundur Ólafsson úthlutað tveimur ystu lóðum við götuna vestanverða, þ.e. nr. 9 og 11. Hann fékk síðan byggingarleyfi 30. maí um vorið fyrir húsum við báðar lóðirnar. Húsin teiknaði sonur Guðmundar, Stefán Reykjalín. Mögulega hefur hann fengið lóðirnar og tekið að sér að reisa hús í einhvers konar verktöku en nokkrum mánuðum síðar afsalar hann sér báðum lóðunum, ásamt byggingarleyfum til annarra. En það var semsagt þann 18. september 1939 sem Guðmundur yfirfærði lóð og væntanlegt hús á nafn Hjartar Gíslasonar. Húsið sem byggja skyldi á Holtagötu 9 var byggt úr steini, ein hæð með höllu þaki og þak úr timbri, járnklætt. Stærð að grunnfleti 10,45x5,90m og útskot að stærð 1,6x4,0m.
Þannig að Hjörtur Gíslason hefur væntanlega byggt húsið eða a.m.k. lokið við byggingu þess. Hjörtur, sem var frá Bolungarvík og kona hans Lilja Sigurðardóttur frá Steiná í Svartárdal og börn þeirra bjuggu hér um nokkurra ára skeið en fluttust síðar í Þórunnarstræti. Hann starfaði sem rútubílstjóri, hjá KEA og hjá Flugfélagi Íslands en er líklega þekktastur sem rithöfundur. Þekktustu verk hans eru líklega barnabækur hans um Salómon svarta sem út komu 1960 og 1961 (Salómon svarti og Bjartur), sem löngu eru orðnar sígildar. Margir hafa átt og búið í húsinu gegn um tíðina, og hefur það alla tíð verið einbýlishús. Ýmsar og margvíslegar breytingar hafa verið gerðar á Holtagötu gegn um tíðina, rishæð var byggð 1981 og bílskúr fjórum árum síðar, hvort tveggja eftir teikningum Bjarna Reykjalín. Síðar var risi breytt, eftir teikningum Grétars Ólafssonar. Um 2000 var byggður sólskáli við, einnig eftir teikningum Bjarna Reykjalín.
Holtagata 9 er einlyft steinsteypuhús með háu portbyggðu risi. Portbyggt ris er hugtak sem ekki hefur sést lengi á þessari síðu, og kannski rétt að rifja upp merkingu þess. En portbyggt merkir einfaldlega að gólfflötur rishæðar stendur lægra en mót veggja og þaks. Stór gaflkvistur eða burst er á suðurhlið hússins og þríhyrndur kvistur á bakhlið (sólskáli) til vesturs. Áfastur bílskúr er á suðurhlið og svalir ofan á honum. Í gluggum eru einfaldir lóðréttir póstar. Neðri hæð hússins er klædd svokölluðum steníplötum en neðri hluti rishæðar (port) timburklæddur og bárujárn á þaki. Húsið er sem áður segir mikið breytt frá upphafi og segir í Húsakönnun 2015 að það Húsið ber ekki lengur nein ummerki funkisstíls. (Ak.bær, Teiknistofa Arkitekta 2015:132). Engu að síður er húsið stórbrotið og hefur svo sannarlega sín sérkenni. Þrjú nyrstu húsin við Holtagötuna vestanverða, sem öll eru eftir Stefán Reykjalín eiga þessa sameiginlegu breytingasögu, þ.e. í upphafi funkishús með flötum eða lágum þökum og fengu seinna meir risþök. En þetta stórbrotna hús er í mjög góðri hirðu og lítur vel út, og sama máli gegnir um lóðina. Ein íbúð er í húsinu. Myndin er tekin þann 9. okt. 2018
Heimildir: Akureyrarbær og Teiknistofa Arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar. (2015). Norðurbrekkan, neðri hluti. Húsakönnun. Akureyrarbær: Pdf-útgáfa aðgengileg á slóðinni http://www.akureyri.is/static/files/Skipulagsdeild/Deiliskipulog/Nordur_Brekka/n-brekka-husakonnun-150129-vefutgafa.pdf
Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1935-41. Fundur nr. 830 þ. 3. mars 1939. Fundur nr. 835, 30. maí 1939. Fundur nr. 842, 18. sept. 1939. Óprentað og óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.1.): 1
- Sl. sólarhring: 29
- Sl. viku: 372
- Frá upphafi: 440805
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 175
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.