2.7.2020 | 20:11
Vesturbrú vígð í gær
Þann 15. september 2019 var ég á ferðinni á hjóli um Vaðlaheiði. Á bakaleiðinni gerði sunnan slagveður (í kaldara lagi af sunnanvindi að vera) og hugðist ég fara svokallaða Þverbraut, gömlu brýrnar þrjár yfir óshólma Eyjafjarðarár. Þegar komið var að vestursporð vestustu brúarinnar blasti við heldur óskemmtileg sjón. Þar hafði verið komið fyrir girðingargrind, sömu gerðar og notuð er til afmörkunar byggingarsvæða og annarri í vinkil. Heldur þótti okkur félögunum þetta súrt og töldum það hefði verið lágmarks kurteisi, að láta vita hinu megin, að leiðin væri lokuð í annan endann. Því urðum við að snúa við þarna í slagviðrinu og halda út Eyjafjarðarbraut eystri og yfir Leiruveginn. Ég hefði ekki boðið í það, að reka þarna hrossastóð og þurfa að snúa því á punktinum.
Nokkru síðar var upplýst í fjölmiðlum, að brúin hefði lent inn á stækkuðu öryggissvæði Akureyrarflugvallar. Óhjákvæmilega var klippt á ansi skemmtilega göngu- og hjólaleið en auðvitað hljóta öryggismál flugvallar að vega þyngra en útivistarleið. Í september í fyrra gat maður allt eins ímyndað sér, að þessi skemmtilega göngu- hjóla- og reiðleið heyrði sögunni til. Varla yrði ráðist í margra milljóna framkvæmd við nýja brú þarna? Og hvar myndi hún vera; hversu sunnarlega ? Yrði hún Eyjafjarðarsveitar- eða Akureyrarmegin sveitarfélagamarkanna ? Og hvenær kæmi hún ? Líklega yrði maður að sætta sig við orðinn hlut. Gönguleiðir eru líka víða um Akureyri og nærsveitir og lítið mál er að hjóla fram að Miðbraut milli Laugalands og Hrafnagils, vilji maður bregða sér á þessar stuttan hring frameftir. Öðru máli gegnir hins vegar um hestamenn. Þverbrautin var eina leið Akureyrskra hestamanna að högum og aðstöðu í Hólmunum og reiðvegi frameftir. Því var þeim mikið kappsmál að fá nýja brú og munu þeir hafa haft mestan veg og vanda af því, að ráðist var í smíði nýrrar brúar.
Í gær, 1. júlí, var komið að vígslu nýrrar brúar. Var það hátíðleg og skemmtileg stund í sólríku og góðu veðri, þó tæki að blása nokkuð úr norðri þegar á leið. Karlakór Akureyrar flutti nokkur lög og ávarp flutti Guðmundur Baldvin Guðmundsson bæjarfulltrúi. Kynntar voru niðurstöður úr nafnasamkeppni fyrir nýju brúna og var nafnið Vesturbrú fyrir valinu. Er það vel viðeigandi, þar eð brúin er yfir vestustu kvísl Eyjafjarðarár. Það var svo Sigurður Ingi Jóhannsson sem klippti á borðann ásamt ungri hestakonu úr Létti. Það voru einmitt félagar í Létti sem riðu hópreið yfir brúna og í kjölfarið fylgdu skokkarar, þá hjólreiðamenn (þ.m.t. sá sem þetta ritar) og gangandi. Austanmegin var síðan boðið upp á léttar veitingar. Hér eru nokkrar myndir:
Til fróðleiks má nefna, að Vesturbrú mun vera fyrsta brúin sem rís yfir Eyjafjarðará á 21. öld og með henni telst mér til, að ellefu brýr séu á Eyjafjarðará.
Og hverjar eru þessar ellefu brýr ? Þær eru, eftir því sem ég kemst næst, talið frá suðri (fremst) til norðurs:
1. Brú við Halldórsstaði
2. Brú við Vatnsenda/Leyning
3. Hringmelsbrú (Bogabrú við Sandhóla)
4. Brú á móts við Möðruvelli
5. Reiðbrú við Melgerðismela
6. Brú á Miðbraut (Hrafnagil-Laugaland)
7. Vesturbrú
8.-10. Brýrnar á Þverbrautinni yfir Hólmana
11. Brúin á Leiruvegi (er eiginlega eins utarlega og hægt er á ánni, liggur eiginlega yfir Pollinn).
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.4.): 23
- Sl. sólarhring: 44
- Sl. viku: 471
- Frá upphafi: 445677
Annað
- Innlit í dag: 20
- Innlit sl. viku: 350
- Gestir í dag: 16
- IP-tölur í dag: 16
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll. Er þessi brú - og hinar - bæði fyrir ríðandi og hjólandi fólk? Það getur nú verið hættulegt, hér f. sunnan hafa orðið óhöpp, hestar hafa fælst þegar hjólandi fólk kemur á móti þeim.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 3.7.2020 kl. 12:25
Sæl og blessuð. Allar brýrnar á listanum, að undanskildum Hólmabrúnum (gömlu brýrnar á Þverbrautinni og nýja Vesturbrúin) og reiðbrúin við Melgerðismela eru ætlaðar ökutækjum (hjólum, bílum). Brýrnar yfir Hólmana hafa nýst fyrir hjólandi, ríðandi og gangandi. Það er rétt að það getur skapað hættu; einhvern tíma skildist mér að hross hræddust hross meira en bíla. Það hefur hins vegar sloppið hingað til, eftir því sem ég kemst næst, með gagnkvæmri tillitssemi allra. Það væri a.m.k. óðs manns æði að hjóla á fullri ferð yfir brú þar sem hross- að ég tali nú ekki hrossastóð kæmi á móti. En mönnum dettur svosem ýmislegt í hug, og sumir sjá ekki neitt nema sjálfa sig
.
Arnór Bliki Hallmundsson, 3.7.2020 kl. 17:28
Þessi óhöpp hafa víst orðið í skóglendi, í Heiðmörk og við Rauðavatn, þar sem lítið útsýni er. Hestinum bregður þegar hjólreiðamaður beygir inn á stíginn, hvorugur sér hinn fyrr en þeir eru komnir of nálægt hvor öðrum.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 3.7.2020 kl. 21:54
Sæl. Örlítil leiðrétting: "einhvern tíma skildist mér að hross hræddust hross" þarna að ofan á auðvitað að vera "hross hræddust HJÓL"
. (Liggur kannski í augum uppi- en rétt skal vera rétt). Stígar fyrir þessa blönduðu umferð í skóglendi og með litla yfirsýn geta vitaskuld verið varasamir. Held t.d. að hurð skelli stundum nærri hælum í Kjarnaskógi þar sem hjólreiðamenn koma á mikilli ferð gegn um skógarþykknið. En þar eru reyndar sérstakir, afmarkaðir hjólastígar.
Arnór Bliki Hallmundsson, 5.7.2020 kl. 15:06
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.