9.12.2020 | 18:54
Hús dagsins: Hafnarstræti 21
Lóðin Hafnarstræti 21 á sér ríflega 200 ára sögu, en upprunalega var hún hluti af landareign Hans Lever, sem byggði þar sem nú eru hús nr. 19 og 21, árið 1818. Þarna mun hann hafa reist pakkhús. Lever var um tíma verslunarstjóri Kyhns- verslunar og er hann e.t.v. einna þekktastur fyrir það, að hafa kennt Akureyringum að rækta kartöflur í upphafi 19. aldar. Munu kartöflugarðar Akureyringa í Búðargili hafa verið eitt helsta kennileiti bæjarins framan af þeirri öld (og rétt að geta þess hér, að enn eru ræktaðar kartöflur í Búðargili). Á síðari hluta 19. aldar var faktorinn E.E. Möller með umsvif þarna, byggði þarna hlöðu 1871 og fjós 1887. Síðar komst lóðin í eigu Höepfnersverslunar og Akureyrarbæjar árið 1933.
Núverandi hús á Hafnarstræti 21 reistu þeir Tómas Jónsson og sonur hans, Jón Guðbjörn Tómasson, árin 1956-57 eftir teikningum Mikaels Jóhannessonar. Húsið er tvílyft steinhús, með valmaþaki. Á suðurhlið er útskot og austanmegin við það tröppur og inngöngudyr á efri hæð en svalir á efri hæð og sólpallur á neðri hæð vestanmegin. Bárujárn er á þaki og veggir múrsléttaðir.
Tómas Jónsson, (1916-2003) sem lengst af starfaði sem slökkviliðsmaður (brunavörður) var Akureyringur, nánar tiltekið Innbæingur en foreldrar hans voru þau Jón Emil Tómasson og Sigurlína Sigurgeirsdóttir frá Öngulsstöðum. Bjuggu þau um áratugaskeið í Lækjargötu 6 ásamt börnum sínum og afkomendum.
Húsið hefur alla tíð verið íbúðarhús og bjuggu þau Tómas Jónsson og Hulda Emilsdóttir (1919-1966) bjuggu í húsinu allan sinn aldur á móti Jóni og Þóreyju Bergsdóttur. Búa hin síðarnefndu enn á neðri hæðinni.
Hafnarstræti 21 er reisulegt og glæst hús og í afbragðs góðri hirðu. Sömu sögu er að segja af lóð sem er vel hirt og til mikillar prýði í umhverfinu. Framan við húsið er eitt af gróskumeiri og stæðilegri grenitrjám Innbæjarins, sem hefur um árabil skartað mikilli og litríkri ljósaskreytingu fyrir jólin, vegfarendum Hafnarstrætisins til ánægju og yndisauka. Í Húsakönnun 2012 fær húsið eftirfarandi umsögn: Samstæð hús og heild sem lagt er til að vernda með hverfisvernd í deiliskipulagi (gult) (Hjörleifur Stefánsson, Hanna Rósa Sveinsdóttir, 2012: án bls.). Tvær íbúðir eru í húsinu, hvor á sinni hæð. Myndin er tekin þann 14. maí 2015.
Heimildir: Hjörleifur Stefánsson, Hanna Rósa Sveinsdóttir. 2012. Húsakönnun- Fjaran og Innbærinn. Minjasafnið á Akureyri. Pdf-skjal á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/Fjaran-og-Innbaerinn-2012.pdf
Steindór Steindórsson. 1993. Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 422
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 329
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll. Ertu ekki búinn að sjá að komið er nýtt og betra loftkort tengt við símaskrána á Já.is? Ég er búin að skoða borgina, Akureyri og Austurland, en ég býst við að þetta sé alls staðar. Það er raunveruleg loftmynd af Hagahverfinu, ekki bara strik.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 10.12.2020 kl. 11:26
Sæl. Já ég er búinn að skoða þetta- mikil framför á kortavefnum og allt að annað að skoða hann en var.
Arnór Bliki Hallmundsson, 10.12.2020 kl. 16:37
Því miður er Google Street View þrívíddarkortið enn frá 2017 f. Akureyri. Sums staðar í borginni er það frá 2019, en ekki alls staðar.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 12.12.2020 kl. 11:00
Ég hafði einmitt tekið eftir því ósamræmi. Þetta hlýtur að uppfærast með tíð og tíma.
Arnór Bliki Hallmundsson, 12.12.2020 kl. 17:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.