21.12.2020 | 10:24
Hús dagsins: Hafnarstræti 95
Einhverjir gætu eflaust haldið, að fyrrum höfuðstöðvar KEA og byggingin sem kenna má við Stjörnu Apótek séu eitt og sama húsið. En svo er aldeilis ekki, því um er að ræða þrjú samliggjandi hús. Elst er hornhúsið nr. 91, KEA húsið valinkunna, byggt 1930 en hús nr. 93 er byggt 1945. Yngst í þessari húsaröð er Hafnarstræti 95. Raunar er öll húsaröðin frá 91-101 (KEA að Amaro) samliggjandi og samstæð heild ólíkra húsa.
Upprunalegt hús á Hafnarstræti 95 reisti Eggert Melstað árið 1906. Þar starfrækti Jóninna Sigurðardóttir Hótel Goðafoss um árabil. Hótel Goðafoss var hins vegar rifið í mars 1971 og árin 1971-74 reis af grunni núverandi hús, nýbygging KEA, eftir teikningum Hákonar Hertevig. Voru teikningarnar gerðar á teiknistofu Sambandsins. Byggingastjóri framkvæmdarinnar var Gísli Magnússon múrarameistari. (Síðuhafi hikar ekki við að kalla húsið „nýbyggingu KEA“ enda þótt byggingin sé nærri hálfrar aldar gömul og KEA sé löngu horfið á braut úr húsinu). Samhliða þessum framkvæmdum var einnig byggt við húsið á Hafnarstræti 93, tvær hæðir með flötu þaki vestan til. Eru þessar byggingar í raun samtengdar, þannig að raunar mætti telja Hafnarstræti 95 viðbyggingu við nr. 93 (sem aftur mætti telja viðbyggingu við nr. 91).
Hafnarstræti 95 er sex hæða steinsteypuhús með flötu þaki, og eru efstu tvær hæðir inndregnar. Að vestan liggur húsið upp að brattri melbrekku, svokölluðu Skessunefi, sem skilur að Grófargil og Skátagil. Fimmta hæð hússins liggur að Gilsbakkavegi og þaðan er inngangur. Að vestan liggur suðurhlið hússins að mjög djúpu porti (Kaupfélagsportinu). Frá suðvesturhorni hússins liggja miklar tröppur af Gilsbakkavegi og niður í porti og munu þær að stofni til vera frá því að húsið var byggt, en þarna hafði löngum legið gönguleið ofan af Skessunefi og niður í miðbæ. Hér til hliðar má sjá mynd af umræddum tröppum, tekna haustið 2015, nánar tiltekið 28. október. Gluggasetning framhliðar er nokkuð sérstök, verslunargluggar á jarðhæð og gluggaraðir og þriðju og fjórðu hæð. Á annarri hæð eru hins afar mjóir og háir gluggar, einskonar „gluggaræmur“ og setja þeir vissan svip á húsið. Á fimmtu hæð eru svalir meðfram allri vesturhlið.
Hafnarstræti 95 hefur alla tíð verið verslunar- og þjónustuhúsnæði, lengst af í eigu KEA og hýsti starfsemi þess. Í blaðinu Hlyni frá 15. janúar 1974 má sjá mjög ítarlega frásögn af hinni glæstu nýbyggingu KEA. Þar kemur m.a. fram, að húsið sé 3532 m2 að flatarmáli og 11.437 m3. Á fyrstu hæð er Stjörnuapótek, vefnaðarvöru- og teppadeild á annarri hæð og á fjórðu hæð sé gert ráð fyrir Skattstofunni, sem einnig fái til afnota rými í nr. 93. Á efstu hæðum voru birgðageymslur Matvörudeildar KEA, og þaðan gengt frá Gilsbakkavegi. Þriðja hæðin var að mestu óinnréttuð í ársbyrjun 1974, en þar gert ráð fyrir skrifstofum. Skemmst er frá því að segja, að enn er rekið apótek á götuhæð. Núverandi apótek er rekið undir merkjum Apótekarans. Þá er Skatturinn enn til húsa á fjórðu hæð hússins. Í Hafnarstræti 95 er einnig Grófin geðverndarmiðstöð og hinar ýmsu skrifstofur, lögmannsstofur o.fl. og tölvufyrirtækið Þekking. Húsið er í mjög góðri hirðu og hluti af hinni miklu húsaröð yst við Hafnarstrætið. Í Húsakönnun 2014 er húsið ekki talið hafa varðveislugildi sem slíkt, umfram önnur í húsaröðinni, en röðin í heild talin hafa nokkurt gildi. Myndin af Hafnarstræti 95 er tekin þ. 17. ágúst 2020.
Heimildir: Landslag arkitektastofa 2014. Akureyrarbær Miðbær- Húsakönnun. Unnið fyrir Akureyrarbæ. Óprentað, pdf aðgengilegt á slóðinni http://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/midbaer_husakonnun-2014.pdf
Steindór Steindórsson. 1993. Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (11.3.): 36
- Sl. sólarhring: 56
- Sl. viku: 298
- Frá upphafi: 443149
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 140
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll. Var eldra húsið þarna ekki það sem kallað var Jerusalem?
P.S. Ég hef verið að lesa Gæfuleit e. Viðar Hreinsson (2005), ævisögu Þorsteins M. Jónssonar, skólastjóra og bókaútgefanda á Akureyri, sem var af Héraði eins og margir sem létu til sín taka á Ak. Þeir voru með fyrirtæki sín hlið við hlið á Ráðhústorgi, Þ.M.J. og annar Héraðsmaður, Indriði Helgason rafvirki. Bókin er fróðleg f. áhugafólk um sögu Akureyrar.
Ingibjörg Ingadóttir (IP-tala skráð) 22.12.2020 kl. 12:24
Sæl og blessuð.
Jerúsalem var næsta hús sunnan við, þ.e. Hafnarstræti 93. Það brann árið 1945 og núverandi hús byggt skömmu síðar.
Ég hef þessa bók í huga, eflaust áhugaverð. Það nefnilega leynast oft ýmsar skemmtilegar og fróðlegar upplýsingar í ævisögum og endurminningar- fróðleikur sem ekki er annars staðar að finna.
Arnór Bliki Hallmundsson, 23.12.2020 kl. 11:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.