27.12.2020 | 11:09
Hús dagsins: Hafnarstræti 107
Útvörður Hafnarstrætis í norðri er hið mikla stórhýsi, sem löngum hefur verið kennt við Útvegsbankann. Stendur það við rætur Brekkunnar norðan megin neðan Skátagils, en þeim megin gerist brekkan ávalari en sunnan giljanna, Skáta- og Grófargils. Líkt og á öllum lóðum við þennan ysta hluta Hafnarstrætis að vestanverðu er ekki um að ræða upprunalegt hús á lóðinni.
Fyrst reis hús á þessari lóð árið 1897, en það reistu þau Júlíus Sigurðsson bankastjóri og Ragnheiður Benediktsdóttir (systir Einars Benediktssonar, skálds og athafnamanns). Stundaði Ragnheiður eins konar búskap og átti túnblett á bak við, þar sem nú eru Bjarmastígur og Oddeyrargata en þetta var löngu fyrir tíma þéttbýlis á neðri Brekkunni. Júlíus lést 1936, en Ragnheiður gerði sér lítið fyrir, orðin 78 ára, og reisti sér nýtt hús örlítið ofar í Brekkunni, Bjarmastíg 7, árið 1938. Í febrúar 1953 mátti sjá umrætt hús auglýst í Degi, til niðurrifs eða brottflutnings . Til allrar lukku var hið síðarnefnda raunin og stendur hús þeirra Júlíusar og Ragnheiðar enn - nefnilega á Ránargötu 13 á Oddeyri. Það er ætíð gleðilegt- og að áliti höfundar æskilegra en hitt- ef hús verða nauðsynlega að víkja, að þau séu flutt og öðlist þannig framhaldslíf á nýjum slóðum.
Núverandi hús á Hafnarstræti 107 reisti Útvegsbankinn árið 1954, og hefur húsið löngum verið kennt við hann. Enda þótt húsið sé eitt af stærstu húsum Miðbæjarins hafði bygginganefnd ekki mörg um orð um byggingarleyfið til bankans, í júní 1954. Efnislega segir einfaldlega að bankinn fái að byggja á lóðinni fjögurra hæða hús á kjallara, fullnaðarteikningar fylgi, og skuli því lokið á fimm árum. Teikningarnar að húsinu gerði Bárður Ísleifsson, en hann starfaði m.a. með Guðjóni Samúelssyni, Húsameistara ríkisins og á heiðurinn af mörgum opinberum byggingum víða um land. Upprunalegar teikningar Bárðar eru ekki aðgengilegar á kortasjá Akureyrar, en þar má finna teikningar Stefáns Reykjalín frá 1961, með lítils háttar breytingum sem gerðar voru á húsinu.
Húsið er fjögurra hæða steinsteypuhús á lágum kjallara og með háu valmaþaki. Efsta hæð er örlítið inndregin á framhlið og eru þar svalir. Bárujárn er á þaki og veggir múrsléttaðir og þverpóstar í flestum gluggum, stórir verslunargluggar á fyrstu hæð. Gluggar 2. og 3. hæðar eru inndregnir og afmarkaðir í ramma og breiðir stöplar á milli gluggapara en mjórri súlur á milli stakra glugga. Á miðri framhlið og bakhlið eru þrír gluggar í ramma í miðju en þrenn gluggapör hvoru megin við. Á norðurstafni hússins eru hins vegar fáir gluggar þar er húsið áfast viðbyggingu við Brekkugötu 1.
Sem fyrr segir var húsið um árabil aðsetur Útvegsbankans, en þarna voru einnig verslanir og veitingastaðir í norðurenda fyrstu hæðar, m.a. Verslunin Vísir sem fluttist í húsið 1961, en fram að því var þarna veitingastofa sem nefndist einfaldlega Matur og Kaffi. Síðustu áratugi hefur húsið verið aðsetur Sýslumannsins á Akureyri. Þá eru einnig í húsinu Héraðsdómur Norðurlands, Tollstjóri, Sjúkratryggingar og Tryggingastofnun. Hefur húsið oft tekið hinum ýmsu breytingum að innan, síðast um 2017. Þá mun á tímabili hafa verið búið í húsinu; húsvarðaríbúð á efstu hæð.
Hafnarstræti 107 er reisulegt og traustlegt hús og eitt af helstu kennileitum Miðbæjarins og Ráðhústorgs. Húsið er að mestu lítið breytt frá upphaflegri gerð að ytra byrði. Í Húsakönnun 2014 er það ekki talið hafa varðveislugildi sem slíkt en er hluti húsaraðar, sem hefur nokkurt gildi. Eiginlega má segja, að húsið sé einnig þátttakandi í syðstu húsaröðinni í Miðbæjarhluta Brekkugötu. Þar er hins vegar um að ræða mun eldri og yfirleitt lágreistari hús. Myndirnar eru tvær, annars vegar sú hlið hússins sem blasir við þegar horft er til SV frá Ráðhústorgi, þ.e. framhliðin. Hins vegar mynd af suðurstafn og bakhlið, en hún er tekin neðst í Skátagili. Myndirnar eru teknar þ. 17. ágúst 2020.
Heimildir: Byggingarnefnd Akureyrar. Fundargerðir 1948-57. Fundur nr. 1193, 4. júní 1954. Óprentað, óútgefið; varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri.
Steindór Steindórsson. 1993. Akureyri; höfuðborg hins bjarta norðurs. Reykjavík: Örn og Örlygur
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 7
- Sl. sólarhring: 36
- Sl. viku: 465
- Frá upphafi: 441372
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 326
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 6
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Sæll.
Ef ég man rétt bjó húsvörður í húsinu, á efstu hæðinni. Ég vann í húsinu á árunum 1973 til 1976 og þá var húsvörður Jón nokkur, en ég man ekki föðurnafnið.
Guðmundur Logi Lárusson (IP-tala skráð) 27.12.2020 kl. 11:27
Sæll.
Kærar þakkir fyrir þessar upplýsingar, uppfæri færsluna m.t.t. þeirra.
ABH.
Arnór Bliki Hallmundsson, 27.12.2020 kl. 20:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.