5.1.2023 | 15:35
Hús dagsins: Hríseyjargata 1; Steinöld
Syðsta húsið við vestanverða Hríseyjargötu lætur kannski ekki mikið yfir sér, fremur en gatan yfirleitt, sem er skipuð lágreistum og snotrum húsum. En eftir því sem greinarhöfundur kemst næst, er hér um að ræða elsta steinsteypuhús Akureyrar. Fyrsta steinsteypta hús landsins mun vera íbúðarhúsið að Sveinatungu í Borgarfirði, byggt 1895. Hið steinsteypta hús við Hríseyjargötu 1 er aðeins átta árum yngra. Það er byggt 1903 og á því 120 ára stórafmæli á hinu nýhafna ári.
Hríseyjargötu 1 reisti Árni Pétursson árið 1903. Í júní það ár bókar bygginganefnd að hún sé [...]að mæla út hússtæði fyrir hús það, er Árni kaupmaður Pétursson ætlar að reisa á baklóð sinni, með austurhlið að hinni fyrirhuguðu götu, parallellt við húsalínu Grundargötu og 100 álnum (63m) frá henni. Húsið að stærð 10x10 álnir eða 6,3,x6,3m (Bygg.nefnd. Ak. nr. 250: 1903). Fyrirhuguð gata var auðvitað Hríseyjargata en það nafn kom löngu síðar og framan af taldist þetta hús Strandgata 39b. Árni Pétursson kaupmaður var búsettur í Strandgötu 39 og stundaði þar verslunarrekstur og var húsið reist sem bakhús á þeirri lóð.
Ekki minnist bygginganefndin á byggingarefni en Árni reisti húsið úr steinsteypu. Það var ekki algengt á þessum árum, að heilu húsin væru steypt, það voru fyrst og fremst sökklar og kjallarar- og auðvitað skorsteinar en lítið um það, að hús væru steypt. Vegna þessarar framandi byggingargerðar gekk húsið undir nafninu Steinöld. Það var raunar ekki fyrr en 1-2 áratugum síðar, að steinsteypan varð almenn í byggingu íbúðarhúsa. Fyrsta steinsteypuhús á Íslandi mun hafa verið íbúðarhúsið að Sveinatungu í ofanverðum Borgarfirði, byggt 1895, átta árum á undan Hríseyjargötu 1. Steinöld hlýtur því að vera í hópi elstu steinsteypuhúsa á landinu! Athuga ber, að hér er gerður greinarmunur á steinhúsum og steinsteypuhúsum, því steinhús geta jú einnig verið hlaðin. Um langt skeið höfðu verið reist steinhús hérlendis, m.a. hlaðin úr blágrýti, en sú byggingargerð náði aldrei almennri útbreiðslu. Eitt slíkt hús stendur enn á Akureyri, við Norðurgötu 17 á Oddeyri.
Hríseyjargata 1 er tvílyft steinhús með háu risi. Á bakhlið er útbygging; stigahús. Krosspóstar eru í gluggum efri hæðar en þverpóstar á neðri, bárujárn er á þaki og veggir múrsléttaðir. Grunnflötur hússins mælist um 6,3x13m en bakbygging er 2,50x3,50m.
Árni Pétursson var fæddur að Oddsstöðum á Sléttu árið 1862 og var því jafnaldri Akureyrarkaupstaðar. En til þess kaupstaðar fluttist hann 12 ára gamall og bjó þar hjá frænda sínum, Jósef Jóhannessyni, járnsmið. Árni nam verslunarfræði í Kaupmannahöfn einn vetur og hóf eftir það verslunarstörf hjá J.V. Havsteen á Oddeyri. Starfaði hann þar í fjögur ár en árið 1888 hóf Árni eigin verslunarrekstur. E.t.v. verslaði hann fyrstu árin í húsi Jósefs frænda síns, þar sem hann var búsettur árið 1890 skv. manntali. Hús Jósefs stóð þar sem nú er Strandgata 31 en brann árið 1908. En árið 1894 reisti Árni Pétursson hús á lóðinni, sem nú er Strandgata 39, þar sem hann bjó og verslaði. Verslaði hann einna helst með áfengi og smávöru. Og það var svo sumarið 1903 sem Árni reisti bakhús á lóð sinni. Sem fyrr segir, var það reist sem geymsluhús og var ein hæð með lágu risi. Var það með fyrstu steinsteypuhúsum Akureyrarkaupstaðar, ef ekki það fyrsta, en um það verður ekki fullyrt hér. Alltént er það líkast til það elsta slíkrar gerðar, sem nú stendur.
Ekki naut Árni Pétursson þessa steinhúss lengi, því hann lést 2. ágúst 1904, aðeins 42 ára að aldri. Ráðskona hans, Kristín Árnadóttir, mun hafa erft húseignir hans og átt um áratugaskeið. Lesendur kunna e.t.v. að velta fyrir sér hvort, hún hafi verið dóttir Árna Péturssonar, en það var hún ekki. Kristín, sem hét fullu nafni Guðrún Kristín Árnadóttir, var fædd árið 1858, líkast til á Völlum í Saurbæjarhreppi, og uppalin þar og í Rauðhúsum í sömu sveit. Mjög fljótlega eftir að Kristín ráðskona eignaðist húsin, innréttaði hún íbúðarrými í steinhúsinu og leigði út. Í Manntali 1906 virðist fyrst getið íbúa í Steinhúsi, Strandgötu og það eru þeir Benedikt Sveinbjarnarson, lausamaður frá Hrafnagili og Jón Jónsson frá Króksstöðum. Sjálf bjó Kristín Árnadóttir áfram í Strandgötu 39. Þar brann árið 1907 en Kristín reisti nýtt hús, sem enn stendur. (Kannski hefði bakhúsið brunnið líka, hefði það ekki verið steinsteypt?)
Árið 1925 byggði Kristín Árnadóttir hæð ofan á Hríseyjargötu 1. Þess má geta, að í bókunum Bygginganefndar er húsið sagt nr.1 við Hríseyjargötu eða svonefnd Steinöld. Breytingarnar sem Kristín sóttu um fólust í því, að bæta hæð ofan á húsið, lækka (?) risið ofan í 2m og breyta gluggaskipan. Samþykki nefndarinnar var háð ýmsum skilyrðum. M.a. mátti þakskegg ekki vera minna en 15 cm, eldvarnarveggur skyldi vera á norðurhlið og gluggi á götuhlið, norðan við útidyr skyldi í sömu hæð og aðrir gluggar hússins. Við þessar breytingar fékk húsið í grófum dráttum það útlit, sem það enn hefur. Stigabygging á bakhlið kom þó ekki fyrr en löngu síðar. Í bókun Bygginganefndar frá 1925 er vísað í fyrirliggjandi uppdrátt en ekki kemur fram hver teiknaði. Uppdráttur þessi er ekki aðgengilegur í gagnagrunni map.is/akureyri, hefur e.t.v. ekki varðveist. Árið 1924 búa sex manns í húsinu, í tveimur íbúðum. En ári síðar, þegar búið var bæta hæð ofan á húsið, eru íbúarnir hins vegar sautján og íbúðirnar orðnar fjórar. Árið 1961 var byggð við húsið stigabygging og gerður þar sér inngangur á efri hæð. Teikningar að þeirri byggingu gerði Guðmundur Gunnarsson.
Í Húsakönnun 1995 segir um staðsetningu hússins að það standi [...]frekar illa undir háum húsagafli við Strandgötu (Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson 1995:96). En húsið blasir þó engu að síður við þeim, sem leið eiga vestur eftir Strandgötunni frá Oddeyrartanga, og þá leið fer nánast hver einasta farþegi skemmtiferðaskipa, sem heimsækja Akureyri. Og fjölmargir aðrir. Að öllum líkindum er Hríseyjargata 1 eða Steinöld eitt elsta, ef ekki allra elsta, steinsteypuhús Akureyrar og ætti að njóta friðunar í samræmi við það. Það er nú tilfellið, að á Oddeyrinni leynast margar perlur, sögufrægar jafnt sem stórmerkilegar í byggingasögulegu tilliti. Stundum heyrast því miður þær raddir, að byggðin á Eyrinni sé að mestu leyti lágkúruleg og ómerkileg; bara kofar eða hreysi sem eigi ekkert annað skilið en stórfellt niðurrif; og helst skuli reisa nýmóðins stórhýsi í staðinn. Hreint út sagt ömurlegt og alrangt en auðvitað á hver maður rétt á sínum skoðunum. Í Húsakönnun 2020 hlýtur húsið miðlungs varðveislugildi en það er að sjálfsögðu aldursfriðað skv. hinni svokallaðri 100 ára reglu. Húsið sem er einfalt og látlaust er í góðri hirðu og sómir sér vel í skemmtilegri götumynd. Nú munu tvær íbúðir í húsinu. Myndirnar eru teknar á vetrarsólstöðum, 21. des. 2022.
Heimildir: Bjarki Jóhannesson. 2021. Húsakönnun fyrir Oddeyri 2020. Akureyrarbær. Aðgengilegt á pdf-formi á slóðinni Husaskra-Oddeyrar-Merged2-.pdf (minjastofnun.is)
Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson. 1995. Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri og Skipulagsdeild Akureyrarbæjar. Aðgengilegt á vefnum: https://www.minjastofnun.is/media/husakannanir/Husakonnun_Oddeyri.pdf
Byggingarnefnd Akureyrarkaupstaðar. Fundargerðir 1902-1921. Fundur nr. 250, 24. júní 1903. Fundargerðir 1921-35. Fundur nr. 565, 6. apríl 1925. Óprentað, óútgefið, varðveitt á Héraðsskjalasafninu á Akureyri. Aðgengilegt á vef Héraðsskjalafsafnsins: Fundargerðabók bygginganefndar Akureyrar 1857-1902 by Héraðsskjalasafnið á Akureyri - Issuu
Ýmis manntöl á vef Héraðsskjalasafns og manntal.is, greinar á timarit.is; sjá tengla í texta.
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.2.): 22
- Sl. sólarhring: 37
- Sl. viku: 208
- Frá upphafi: 441472
Annað
- Innlit í dag: 14
- Innlit sl. viku: 154
- Gestir í dag: 14
- IP-tölur í dag: 11
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.