Viðhorf til hjólreiðamanna

Ekki þekki ég til þessa tiltekna máls, annað en það sem ég hef séð í fréttum, en það að aka vísvitandi á hjólreiðamann er ekkert annað en TILRÆÐI. Það sem hins vegar gerist ævinlega, þegar frétt á borð við þessa fer um netmiðla byrjar söngurinn "hjólreiðamenn eru alltaf fyrir" og "hjólreiðamenn fara ekki eftir reglum" og árstíðabundna vers sama söng "það á ekki að hjóla á veturna". Svona eins og framangreint beinlínis RÉTTLÆTI svona lagað. En stöldrum aðeins við þennan punkt: Hjólreiðamenn eru alltaf fyrir.  Þetta þykir þó nokkrum svo djöfullegt, að umræddir hjólreiðamenn teljast allt að því réttdræpir. Allir vilja auðvitað allir komast leiðar sinnar og tafir hvers konar geta verið hvimleiðar. En stundum gerist það, að bílum er lagt á hjóla/göngustíga eða snjór annað hvort ekki ruddur eða á hinn veginn að snjóruðningar loki viðkomandi stígum. Ef fundið er að því er segin saga, að slíkt er afgreitt sem "væl" eða "tuð" eða jafnvel "frekja". Stórmerkilegt, svo ekki sé meira sagt. Svo gæti ég haldið áfram. Sumum finnst það algjört fásinna og sóun á fé skattgreiðenda að leggja göngu- eða hjólastíga. Hér skal þó skýrt tekið fram, að ég tel þetta ekki almenna viðhorfið og ég upplifi nánast undantekningalaust sjálfur tillitssemi í minn garð á götum Akureyrar. Og flestir hafa skilning á ólíkum þörfum ólíkra samgöngumáta.

Eitthvað af þessum viðhorfum gæti skýrst af því, að fólk telur hjólreiðar ekki vera samgöngumáta heldur "sport" og þess vegna sé t.d. bara allt í lagi þó einhver hjólastígur sé tepptur eða lokaður. Það er bara einfaldlega rangt! Sjálfur fer ég t.d. flestallra minna ferða hjólandi og ég þarf alveg eins að mæta á staði á réttum tímum, eða ná fyrir lokun eins og ökumaðurinn, sem bölvar hjólreiðamanninum, sem alltaf er fyrir. undecided Og ég er aldeilis ekki eini maðurinn, sem notar þennan ferðamáta. 

Alhliða lausnin í þessu öllu saman er, að allir vegfarendur, óháð ferðamáta taki sjálfsagt tillit til hvers annars. smile

 

  IMG_0685


mbl.is „Ert þú þá svona latte-lepjandi hjólagaur?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Bæði hjólreiðamenn og ökumenn bifreiða eiga að fara eftir umferðareglum.

Það gengur ekki að annar geti skáskotið sér yfir gatnamót, farið á móti umferð, farið af götu yfir á gangbraut og aftur á götuna hinum megin.

Svoleiðis býður uppá að aðrir taka ekki tillit til hinna.

Og það er það sem því miður skeður oft.

Birgir Gudjonsson (IP-tala skráð) 17.4.2024 kl. 16:28

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæll. Það er einmitt lóðið. Allir eiga að fara eftir umferðarreglum, óháð ferðamáta. Þessi hegðun sem þú lýsir er auðvitað ólíðandi - og auðvitað með öllu ólögleg - og býður upp á slys.

Það er líka ítrekuð svona athæfi, sem skapar ákveðið óþol gagnvart hjólreiðamönnum. Það er nefnilega ekki allt ökumönnum að kenna - eins og stundum er haldið fram - ekkert frekar en að hjólreiðamenn eigi ekkert gott skilið og séu almennt réttlausir vegna gáleysislegrar hegðunar sumra þeirra.

Gagnkvæm tillitssemi og skilningur er þannig númer 1,2 og 3 og þar er enginn stikkfrí! cool

Arnór Bliki Hallmundsson, 17.4.2024 kl. 23:19

3 identicon

Bla bla bla Birgir.

Hjólreiðafólki er heimilt að vera hvoru tveggja á götunni og gangstéttinni.

Reiðhjólamaður á götunni setur engan í hættu nema sjálfan sig.

En farðu ekki að grenja yfir því að hjólreiðafólk nýti reiðhjólið sem hagkvæman ferðamáta. 

Bú hú hú

Guðjón Birgisson (IP-tala skráð) 18.4.2024 kl. 14:52

4 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Raunar er hjólreiðamaður í meiri rétti á götu en gangstétt, skilji ég umferðarlögin rétt. Gangandi stendur stundum stuggur af hjólreiðamönnum á gangstéttum og það kannski eðlilega. En þá er sjálfsagt að hringja bjöllu...Eftir stendur, að í augum margra eru reiðhjól einhvers konar olnbogabörn, hvorki velkomin á götur né gangstéttir.  Svo, af því ég hef mjög gaman að bregða mér út fyrir þéttbýlið á hjólinu, mætti einnig ræða viðskipti hjólreiðamanna og hestamanna, en það er raunar efni í annan pistil... 

Arnór Bliki Hallmundsson, 18.4.2024 kl. 18:44

Bæta við athugasemd

Hver er summan af tíu og þremur?
Nota HTML-ham

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 40
  • Sl. sólarhring: 240
  • Sl. viku: 556
  • Frá upphafi: 420633

Annað

  • Innlit í dag: 30
  • Innlit sl. viku: 435
  • Gestir í dag: 30
  • IP-tölur í dag: 30

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband