Hús dagsins: Lækjargata 2, 2a og 2b.

pa230010.jpgFyrsti húsapistillinn á nýju ári 2011 fjallar um þrjú lágreist hús á horni Lækjargötu og Aðalstræti og teljast þau standa á lóð nr.2 við Lækjargötu. Þau eru semsagt neðst í Lækjargötunni, neðst í Búðargili eða Lækjargili eins og það er líka kallað. Elst þessara húsa er nr. 2a,  og er það eitt af allra elstu húsum Akureyrar. Er það til vinstri á myndinni, gult með rauðu þaki. Það mun reist um 1840 af Margréti Thorarensen. Er það einlyft timburhús með bröttu risi, af algengri gerð timburhúsa þess tíma. Er það í  stórum dráttum lítið breytt frá upphafi, en húsin Aðalstræti 6 og Lækjargata 2 voru hins vegar byggð við það síðar, hið fyrrnefnda nokkrum árum seinna. Lækjargata 2, bláa húsið fyrir miðri mynd, var hins vegar byggð löngu síðar eða 1894 af Stephan Stephanssyni en hann eignaðist Lækjargötu 2a á eftir Margréti sem bjó í húsinu til dánardags 1883. Upprunalega var húsið einlyft með háu risi ekki ósvipað 2a en nokkuð mjótt, gaflinn breiðari en langhlið sem er all sérstætt. Enda hafa húsin sennilega myndað eina heild í fyrstu, en seinna breytt í tvo eignarhluta. E.t.v. var nr.2 á sama tíma hækkað um eina hæð og fengið núverandi lag þ.e. tvílyft með lágu risi. Lækjargata 2b er einlyft, bárujárnsklætt timburhús með lágu portbyggðu risi, sem stendur bakvið nr. 2. Örmjótt sund, sennilega um 2m skilur að húsin. 2b var upprunalega hlaða, byggð skömmu fyrir 1900 en breytt í íbúðarhús um 1920. Öll þessi þrjú hús eru í dag einbýlishús og mynda þau ásamt Lækjargötu 4 og Aðalstræti 6 ansi skemmtilega heild þarna neðst í gilinu. Ekki er þetta einsleit heild heldur er hvert hús þvert á móti með sínum sérkennum- enda byggð á mismunandi tímum á 19.öld og fengið sinn skerf af stækkunum og breytingum. Allt viðhald og frágangur þessara húsa er til fyrirmyndar og mjög margir sem leggja leið sína til Akureyrar berja þessa húsatorfu augum. Hún stendur nefnilega beint á móti einni vinsælustu ísbúð landsins og einu af helsta aðdráttaröflum Akureyrar, nefnilega versluninni Brynju, sem er í Aðalstræti 3. Þessi mynd er tekin 23.október 2010. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll frændi og þakka þér kærlega fyrir síðast.

Já, það hafa orðið ótrúlegar breytingar á gömlu húsunum í innbænum. Þessi hús hafa tekið miklum stakkaskiptum gegnum tíðina. Ég þarf að fara í göngutúr um Eyrina og Innbæinn í sumar.

Bestu kveðjur frá Brávöllum

margrét harðardóttir (IP-tala skráð) 6.1.2011 kl. 10:08

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl og takk sömuleiðis :)

Já, það er rétt að þessir gömlu bæjarhlutar hafa tekið miklum stakkaskiptum. Á síðustu 10-15árum hefur verið mikil bylting og nú orðið eru ansi fá hús orðin eftir sem eru lúin og illa við haldið. Mæli eindregið með göngutúrum um gömlu hverfin- fæ sjálfur aldrei leiða á því  

Bestu kveðjur, Arnór.

Arnór Bliki Hallmundsson, 6.1.2011 kl. 19:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • P3180106
  • IMG_1560
  • IMG_1561
  • IMG_1557
  • IMG_0685

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 12
  • Sl. sólarhring: 54
  • Sl. viku: 302
  • Frá upphafi: 420177

Annað

  • Innlit í dag: 12
  • Innlit sl. viku: 216
  • Gestir í dag: 12
  • IP-tölur í dag: 12

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband