Á göngu

Fátt þykir mér eins skemmtilegt og að ganga. Skiptir þá litlu hvar það er, en í 99,9% allra tilfella fara mínir göngutúrar fram innan gatnakerfis Akureyrarkaupstaðar. Ég nota göngur bæði sem samgöngumáta og afþreyingu og þó að ég gangi kannski sömu leiðinni mörg hundruð sinnum fæ ég aldrei leiða á þeim. Því það er nefnilega alltaf eitthvað nýtt að sjá- kannski eru einhverjir skrautlegir bílar á ferð, kannski hittir maður eða sér einhvern og á sumrin eru það skemmtiferðaskipin. Gróðurinn er náttúrulega síbreytilegur á vorin, snjóalögin á veturna eru líka síbreytileg og svona mætti lengi telja. Oft er ég raunar svo upptekinn af umhverfinu að ég set sjálfan mig í stórhættu við umferðargötur og stundum missi ég af fólki sem ég mæti og veifar til mín, sökum þess. Ég er oftast nær með MP3-spilara í eyrunum eða útvarpið og tilfellið er að ég gæti mín frekar en annars með slíkar græjur. Því þá er ég meðvitaður um það að ég heyri kannski ekki í umhverfinu og er því sífellt skimandi aftur fyrir mig eða til beggja hliða. En ég passa mig ævinlega á að hafa ekki svo hátt stillt að ég heyri ekki í umferðinni. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ingibjörg Magnúsdóttir

Sæll Arnór Bliki, þó að ég sé ekki göngugaröpur eins og þú, þá á ég stundum leið um götur Akureyrarbæjar, eins og þú. Þá er ég í heimsókn hjá dóttur minni þarna f. norðan. Aðal göngutúrarnir hafa verið að fara útí búð. Þeð sem ég tek eftir, er hversu ökumenn á Akureyri eru tillitssamir við gangangandi vegfarandur. Þeir stoppa yfirleitt alltaf þegar maður þarf að fara yfir götu og yfir háa snjóskafla eins og þetta var þarna í vetur.

En eins og ég hef upplifað Akyreyri, þá verð ég að segja fyrir mig, að mér finnst bílstjórar þarna f. norðan taka meira tillit til gangandi vegfarenda en þeir hérna f. sunnan.

Ingibjörg Magnúsdóttir, 14.6.2015 kl. 00:07

2 Smámynd: Arnór Bliki Hallmundsson

Sæl Ingibjörg. Ég get svo sannarlega tekið undir það að ökumenn eru almennt tillitssamir og þolinmóðir hér á Akureyri. Auðvitað eru þó svartir sauðir þar innan um en ég hef ekki átt í neinum vandræðum með þá, allavega ekki svo stórvægilegum að ég muni eftir þeim. Ég hef svosem ekki gengið það mikið í Reykjavík að ég geti fullyrt nokkuð þar um en auvðitað er umferðin þar hraðari og þyngri. Ég reyni sjálfur á móti að taka sem mest tillit til þeirra sem eru akandi eða hjólandi, t.d. í slæmri færð og myrkri, enda snýst umferðin að sjálfsögðu um gagnkvæma tillitssemi og samvinnu allra. ( En eins og ég nefni í færslunni get ég stundum verið svolítið utan við mig á göngum mínum í skoðun á umhverfinu wink )

Arnór Bliki Hallmundsson, 15.6.2015 kl. 09:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur

Arnór Bliki Hallmundsson
Arnór Bliki Hallmundsson

Höfundur er grúskari. Skrifa um og mynda hitt og þetta auk eins og annars.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • IMG_1565
  • IMG_1569
  • IMG_1568
  • IMG_1564
  • IMG_1567

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 49
  • Sl. viku: 297
  • Frá upphafi: 420318

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 204
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband