25.2.2010 | 13:51
Tryllitæki úr ýmsum áttum
Þar sem ég hef ekki komið með "tryllitækjafærslu" frá því í október, eða í fjóra mánuði er um að gera að bæta úr því. Þannig að hér koma nokkrir gæðingar. Þeir eru á ýmsum aldri en meðalaldurinn sennilega yfir þrítugu. Hér má sjá Land Rover, Ford Mustang, Jeep Wagoneer, Ford Econoline, Chevrolet Suburban en ég þori ekki alveg að fara með hverrar gerðar svarti eðalvagninn neðst t.h. er en ábendingar þess efnis eru vel þegnar. Annars læt ég myndirnar bara tala sínu máli. Myndirnar eru teknar 2006-07 og árvissri bílasýningu Bílaklúbbs Akureyrar, 17.júní 2009.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.2.2010 | 19:59
PÍ og fleiri tölur
Mér þykir sá danski ansi seigur með pí-ið. Sjálfur man ég mest 9 aukastafi 3,141592654 og hef ég þó heyrt að ég sé nokkuð lunkinn með tölur. Það hlýtur líka að taka hann dágóðan tíma að þylja alla þessa runu; ef hann segir 3 tölur á sekúndu tekur þetta hann 22544/3 = ca. 7500sekúndur eða rúmlega tvo klukkutíma. En það sem hann segir í lokin með hann eigi erfitt með muna afmælisdaga vakti athygli mína því það mun af mörgum talið mitt sérsvið. En það er svo með mig að ef ég sé fæðingardag/ár viðkomandi man ég það einhvernvegin alltaf, og ekki nóg með það: ég man afmælisdaga og aldur betur en nöfn. Ef ég man afmælisdaga fólks sem ég þekki lítið á ég mun auðveldara með að muna nöfnin og stundum hef ég staðið mig að því að muna afmælisdag og aldur einhvers en það er gjörsamlega stolið úr mér hvað hann heitir !
![]() |
Man pí með 22.544 aukastöfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.2.2010 | 18:41
Hús dagsins: Gefjunarhúsið á Gleráreyrum
Öll Hús dagsins hingað til hafa átt það sameiginlegt að vera ennþá uppistandandi. Húsið á myndinni hér til hægri er hins vegar horfið. Þetta er Gefjunarhúsið á Gleráreyrum. Það var byggt árið 1907 og var á sínum tíma eitt mesta stórhýsi bæjarins, steinhlaðið og vel vandað til í alla staði. Húsið var reist fyrir ullarverksmiðjuna Gefjuni en rekja má sögu ullariðnaðar á Gleráreyrum allt til ársins 1897 er Tóvélar hófu starfsemi sínu. Tóvélar voru fyrirrennari þess iðnaðar sem fram fór á þessu svæði alla 20.öldina. (Enn má reyndar segja þarna fari fram iðnaður þó engar séu verksmiðjurnar, en á Gleráreyrum er nú staðsett miðstöð þjónustu- og verslunariðnaðar, Glerártorg) Sambands Íslenskra Samvinnufélaga, SÍS, keypti svo verksmiðju Gefjunar árið 1930. Verksmiðjan var starfrækt áfram í húsinu áratugum saman en SíS hóf skömmu seinna mikla uppbyggingu iðnaðar og verksmiðjuhúsa á Eyrunum. Verksmiðjuhúsin urðu hins vegar að víkja fyrir stækkun verslanamiðastöðvarinnar Glerártorgs, en það var upprunalega opnað árið 2000, (að hluta til í fyrrum verksmiðjuhúsnæði Skinnaiðnaðar ) en stækkuð 2008. Niðurrif húsanna tók margar vikur, enda um miklar og traustlegar byggingar að ræða. Húsið var orðið mjög mikið breytt frá fyrstu gerð, marg viðbyggt og líklega var sá hluti sem sést á myndinni sá sem kom næst því að vera upprunalegur hluti hússins. Síðustu árin voru í húsinu trésmíðaverkstæði og vinnustofur listamanna. Mörgum þótti niðurrif húsanna mikil hneisa og jafnvel móðgun við atvinnusögu Akureyrar, enda saga verksmiðjanna samofin þeirri sögu og sögu Akureyrar almennt á 20.öld. Sérstaklega sáu menn eftir Gefjunarhúsinu, enda var það eitt elsta iðnaðarhúsnæði bæjarins, á 100.aldursári þegar yfir lauk. Þessi mynd er tekin 8.janúar 2007, viku áður en húsið var jafnað við jörðu. Hér að neðan eru svo fleiri myndir af niðurrifinu en þar mátti greina m.a. upprunalega bogadregna glugga og gamlan turn, líklega skorstein sem hafði verið falinn inní seinni tíma viðbyggingum. ATH: HUGSANLEGA ER ÞAÐ MISJAFNT EFTIR VÖFRUM EÐA UPPSETNINGU ÞEIRRA HVORT MYNDIRNAR BIRTAST Í RÖÐ EÐA Í ÓREGLULEGRI HRÚGU.
Bloggar | Breytt 17.2.2010 kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.2.2010 | 13:29
Hús dagsins "slá í gegn"
Þeir sem eiga leið um Rósenborg ættu endilega að kíkja á ganginn á 1.hæð. Þar hef ég nefnilega komið upp myndasýningu á 19 húsum sem flestöll hafa fengið umfjöllun hér á síðunni. Myndirnar eru framkallaðar á pappír og með fylgir texti, sem er nv. sá sami og síðunni hér. Ef þið hafið gaman af þessari síðu og eruð staðsett á Akureyri (eða eigið leið þangað á næstunni ) er um að gera að kíkja.
Hér er mynd af Rósenborg og hér umfjöllun mín um það ágæta hús frá 4.jan. sl. )
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.2.2010 | 15:45
Orkudrykkir
Ég hef aldrei getað vanið mig á að drekka þessa svokölluðu orkudrykki. Á myndinni sem fylgir með fréttinni má reyndar sjást glitta í Leppin flöskur en sá drykkur var nú ævinlega í uppáhaldi hjá mér þegar kom að orkudrykkjum. Leppin hef ég hinsvegar ekki séð í einhver ár. Manni skildist alltaf hann væri betri og hollari en aðrir slíkir drykkir en hvort það sé alveg rétt skal ósagt látið. En það er til mikið ódýrari og betri leið til að halda sér gangandi en orkudrykkir: Nefnilega gamla góða kaffið.
![]() |
Stóraukin koffínneysla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.2.2010 | 17:10
Hús dagsins: Ós, skólahús Glerárþorps
Með aðeins örfáum undantekningum hafa Hús dagsins verið staðsett annaðhvort í Innbænum eða Oddeyrinni, stundum Miðbænum. Hús dagsins er hins vegar staðsett í Sandgerðisbót, norðan Glerár. Húsið stendur við götuna Óseyri og er kallað Ós og var fyrsta skólahús Glerárþorps. Var húsið reist 1908, steinsteypt eða hlaðið úr múrsteinum. Á þeim tíma náði Akureyrarkaupstaður einungis að Gleránni og Glerárþorp var dreifbýli aðskilið frá kaupstaðnum. Í bók Steindórs Steindórssonar frá Hlöðum (1993) segir að húsið hafi reist 16 framtakssamir menn sem mynduðu Skólahúsfélag Glerárþorps byggt enn mælt var fyrir um skólaskyldu 10-14ára barna í fræðslulögum 1907. Nauðsynlegt þótti að reisa hús fyrir skólahaldið þar sem ekki var neitt hentugt húsnæði í þorpinu. Fyrsti kennarinn í barnaskólanum hét Halldór Friðjónsson en líklega hefur hann séð um kennsluna einn. Húsið var notað til skólahalds fram undir 1940. Eftir það mun húsið hafa verið tekið til íbúðar, enn seinna varð þetta geymsluhús. Einhverntíma hefur verið byggt við húsið, timburbygging vinstra megin á mynd. Uppúr 2000 var húsið var komið í talsverða vanhirðu og rætt um niðurrif þess. Það hefur þó fengið mikla yfirhalningu og mörg upprunaleg einkenni þess dregin fram, s.s. bogadregnar gluggaumgjarðir og búið var að múra uppí upprunalegar dyr (lengst til hægri ), sem voru endurheimtar. Ekki er mér kunnugt um hver núverandi notkun hússins er, en einhverntíma er ég var á göngu þarna framhjá heyrði ég greinilega að hljómsveit var að æfa sig þar. Þessi mynd er tekin í kvöldsólinni þann 27.maí 2007.
Heimild: Steindór Steindórsson. (1993). Akureyri. Höfuðborg hins bjarta norðurs.Reykjavík: Bókaútgáfan Örn og Örlygur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.6.): 16
- Sl. sólarhring: 45
- Sl. viku: 366
- Frá upphafi: 448716
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 279
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 7
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar