30.6.2009 | 13:19
Hús dagsins: Lundargata 2
Lundargata 2 er eftir því sem ég kemst næst, þriðja elsta hús á Oddeyri. Það er reist árið 1879 og aðeins Strandgata 27 ( 1876) og Strandgata 49 (1874) eru eldri. ( Rétt er þó að taka fram að byggingarár elstu húsa á Oddeyri eru nokkuð á reiki enda algengt að byggingarleyfi væru veitt eftir að hús voru byggð! ) Húsið reisti Jósep Jóhannesson en hann seldi það fljótlega norskum athafnamanni, Oules Hausken og var þetta hús lengi kallað Háskenshús. Þetta mun vera fyrsta skólahús á Oddeyri en þarna var haldin barnakennsla árin um og upp úr 1900. Fyrstu 23 árin stóð þetta hús um 30 metrum sunnar og sneri A-V. Húsið var nefnilega reist á lóðinni Strandgötu 23 en var flutt 1902 á núverandi stað. Geta má nærri hvílík framkvæmd það hefur verið að flytja hús fyrir 107 árum síðan þegar aðeins var notast og handafl og hestafl ( í orðsins fyllstu merkingu ). Helsta einkenni þessa hús er mikill turn á framhlið og hefur þetta hús líklega verið mjög áberandi þegar það stóð við Strandgötu, enda þá aðeins örfá hús við götuna og flest lágreistari en þetta. Þessi mynd er tekin í febrúar 2007.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2009 | 16:35
Þumalputtaregla þjóðmálaumræðunnar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2009 | 16:28
City that never sleeps...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2009 | 15:40
Til lesenda
Ef þið sjáið einhverjar vitleysur í færslunum hjá mér ( t.d. hús dagsins ) eða lumið á einhverjum sögum eða fróðleik til viðbótar, má endilega leiðrétta mig eða bæta við.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2009 | 15:34
Hús dagsins: Norðurgata 11.
Enn held ég mig í Norðurgötunni en. Húsið fremst á þessari mynd er Norðurgata 11. Byggingarár er nokkuð á reiki, FMR segir 1882, en byggingarleyfi er veitt 1883, (Guðný Gerður Gunnarsdóttir 1996; Oddeyri) en þá kemur fram að húsið er þegar risið. Í II bindi af Sögu Akureyrar (Jón Hjaltason,1994), segir frá búfjársýningu í húsinu vorið 1880, en þá var það óklárað. Þannig hlýtur húsið að vera byggt 1880. En þetta hús byggði einn helsti húsasmíðameistari Akureyrar um aldamótin 1900, Snorri Jónsson. Seinna reisti hann stórhýsi, eitt af stærri húsum á landinu á þeim tíma (1897) við Strandgötu 29 og var það kennt við hann. Snorrahús var rifið um 1988. Húsið er töluvert breytt frá fyrstu gerð en 1923 var húsið allt endurbyggt, stækkað til norðurs og lyft um rúman metra upp á steinsteyptan kjallara. Geta má nærri að það hafi verið mikil framkvæmd með tækni þess tíma. Í húsinu eru fjórar íbúðir en húsið hefur verið í eigu sömu fjölskyldu í hartnær heila öld.
Næstu hús ofan við 11 eru 13, 15 og einnig sést í nr. 17, Steinhúsið sem ég fjallaði um í gær. Nr. 13 er gult með rauðu þaki og reist 1886. Númer 15 er hvítt, tvílyft með lágu risi, svipað að gerð og nr. 11 en þó miklu yngra, byggt 1902. Ef myndin er stækkuð sést að öll þessi þrjú hús eru klædd með sérstakri klæðningu sem minnir á grjóthleðslu. Þessi klæðning er á landsvísu nokkuð sjaldgæf en algeng á Akureyri. Er þetta kallað rósajárn eða jafnvel Akureyrarjárn þar sem þetta sést varla annars staðar. Bæði þessi nöfn eru þó rangnefni þar sem þetta er ekki járn heldur blikk með zinkblöndu. Hefur þessi klæðning þá kosti að tærast mun síður en járn. Ástæðan fyrir því að þetta er svo algengt hér er að þetta var flutt inn af smiði sem búsettur var hér, Gunnari Guðlaugssyni sem einnig var mikill frumkvöðull í skátastarfi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2009 | 10:28
Hús dagsins: Norðurgata 17
Ég hef í nokkrar vikur birt myndir sem ég á af húsum á Akureyri og stutta umfjöllun um þau á Facebook. Hérna mun halda áfram með það. Eru þetta yfirleitt gömul hús á Oddeyri eða Innbænum en ég á orðið ágætis myndasafn af þeim. Heimildir um byggingarár og sögu húsanna eru fengnar úr öllum mögulegum bókum um byggingarsögu Akureyrar auk þess sem ég hef sótt a.m.k. eina sögugöngu Minjasafnsins um þessi eldri hverfi á hverju sumri síðan 1997.
Hús dagsins er Norðurgata 17, einnig kallað Steinhúsið eða Gamla Prentsmiðjan. Húsið er það eina á Akureyri sem hlaðið er úr blágrýti svipað og Alþingishúsið og Hegningarhúsið. Byggingarár mun vera 1880 og er þetta hús í 3.-4.sæti yfir elstu hús á Oddeyri. Í þessu húsi var lengst af starfandi prentsmiðja en ýmis önnur starfsemi hefur einnig verið stunduð í húsinu á 130 árum.
Ég minntist á að þetta væri 3.-4. elsta hús Oddeyrar. Sjálfsagt mál er að telja upp þau hús á Oddeyri sem teljast eldri en Steinhúsið. Norðurgata 11 er jafn gamalt (1880), Lundargata 2 (1879), Strandagata 27 (1876) og elst er Strandgata 49, Gránufélagshúsið, (1874).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.6.2009 | 23:13
Sumarsólstöður á Akureyri
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.6.2009 | 23:00
Formáli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Arnór Bliki Hallmundsson
Tenglar
Mínir tenglar
- Minjastofnun Heimasíða Minjastofnunar, fróðleikur um gömul um hús og mannvirki
- Landupplýsingakerfi Akureyrarkaupstaðar Hér er hægt að skoða Akureyri eins og hún leggur sig, tæknilegar upplýsingar og byggingarárs HvERS EINASTA húss í bænum og teikningar af sumum þeirra.
- Gamlar myndir frá Akureyri Stórskemmtileg myndasíða Rúnars Vestmann. Hér má sjá gnægð gamalla mynda af Akureyri.
- Náttúrufræðistofnun
- timarit.is Öflugur vefur til hvers kyns heimildaöflunar
- Umhverfisstofnun
Á síðunni minni
- Svona verður Húsapistill til Lesendur leiddir í allann sannleikan um tilurð dæmigerðs Húsapistils. Sett saman í tilefni af 10 ára afmælis h.d.
- 100 elstu hús Akureyrar 100, eða öllu heldur, 103 elstu húsin sem enn standa á Akureyri
- Húsapistlar 2023 "Hús dagsins" greinar árið 2023
- Húsapistlar 2021 "Hús dagsins" greinar árið 2021
- Húsapistlar 2022 "Hús dagsins" greinar árið 2022
- Húsapistlar 2020 "Hús dagsins" greinar ársins 2020
- Húsapistlar 2019 "Hús dagsins" greinar ársins 2019
- Húsapistlar 2018 "Hús dagsins" greinar ársins 2018
- Húsapistlar 2017 "Hús dagsins" greinar ársins 2017
- Húsapistlar 2016 "Hús dagsins" greinar á árinu 2016.
- Húsapistlar 2015 Hús sem ég skrifaði um árið 2015.
- Húsapistlar 2014 Hús sem ég skrifaði um árið 2014.
- Húsapistlar 2013 "Hús dagsins" greinar ársins 2013
- Húsapistlar 2012 "Hús dagsins" greinar ársins 2012
- Húsapistlar 2011 "Hús dagsins" greinar ársins 2011
- Húsapistlar 2010 "Hús dagsins" greinar ársins 2010
- Húsapistlar 2009 "Hús dagsins" greinar ársins 2009
- Bæjarbrunarnir á Akureyri í upphafi 20.aldar Stutt grein um brunanna miklu í Innbænum 1901 og 1912 og Oddeyrarbrunann 1906
- Akureyri- 150 ára sögustiklur Árið 2012 tók ég saman í stuttu máli byggðasögu Akureyrar, m.t.t. mannvirkjauppbyggingar o.fl.
Ytri Brekka
- Bjarmastígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarmastíg.
- Bjarkarstígur Hús sem ég fjallað um, við Bjarkarstíg á Brekkunni
- Brekkugata Hús við Brekkugötu sem ég hef skrifað um hér.
- Gilsbakkavegur Hús við Gilsbakkaveg, sem ég hef fjallað um hér.
- Hamarstígur (neðan Þórunnarstrætis) Hús sem ég hef fjallað um, við Hamarstíg
- Hlíðargata Hús sem ég fjallað um, við Hlíðargötu.
- Holtagata Hús sem ég fjallað um, við Holtagötu.
- Klapparstígur- Krabbastígur Söguágrip húsanna við Klapparstíg og Krabbastíg
- Lögbergsgata Hús sem ég hef fjallað um, við Lögbergsgötu.
- Munkaþverárstræti Umfjallanir um hús Munkaþverárstræti, Brekkunni.
- Oddagata Hús sem ég fjallað um við Oddagötu á Neðri-Brekku.
- Oddeyrargata Hús við Oddeyrargötu sem ég hef skrifað um hér.
- Þingvallastræti Hús sem ég fjallað um, við Þingvallastræti
- Sniðgata Hús sem ég hef fjallað um, við Sniðgötu.
- Helgamagrastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Helgamagrastræti.
Syðri Brekka
- Býli á Brekkunni Gömul býli og önnur hús á Brekkunni, bæði Syðri og Ytri
- Eyrarlandsvegur Hér eru greinar um hús sem standa við Eyrararlandsveg á Brekkunni.
- Eyrarlandsstofa Eyrarlandsstofa í Lystigarðinum
- Hrafnagilsstræti Hús sem ég fjallað um, við Hrafnagilsstræti
- Möðruvallastræti Hús sem ég hef fjallað um, við Möðruvallastræti.
- Skólastígur Hús sem ég hef fjallað um, við Skólastíg
Oddeyri
- Eiðsvallagata Söguágrip um hús við Eiðsvallagötu á Akureyri.
- Fjólugata Hús sem ég fjallað um, við Fjólugötu á Oddeyri
- Gránufélagsgata Hús sem ég fjallað um við Gránufélagsgötu á Eyrinni.
- Hríseyjargata Hús sem ég hef fjallað um, við Hríseyjargötu.
- Laxagata Hús sem ég fjallað um við Laxagötu á Eyrinni.
- Lundargata Hús sem ég fjallað um við Lundargötu á Eyrinni.
- Norðurgata (sunnan Eyrarvegar) Umfjallanir um hús við Norðurgötu á Eyrinni, ritað frá júní 2009 til feb.2015
- Ránargata Stutt söguágrip húsana við sunnanverða Ránargötu á Oddeyri.
- Strandgata Hús sem ég fjallað um, við Strandgötu
- Geislagata, Glerárgata, Hólabraut, Grundargötu Nokkrar götur á Oddeyri
- Ægisgata Hús sem ég fjallað um, við Ægisgötu á Oddeyri
- Sláturhúsið á Oddeyrartanga Sláturhús KEA á Oddeyrartanga b.1928.
- Nótastöðin Nótastöðin á Gleráreyrum/Oddeyri, b. 1945.
- Grænagata Hús sem ég hef fjallað um, við Grænugötu
- Eyrarvegur Færslur um hús við Eyrarveg
Innbær
- Aðalstræti Hús sem ég hef fjallað um við Aðalstræti
- Hafnarstræti í Innbænum Hafnarstræti að mörkum Innbæjar og Miðbæjar.
- Lækjargata Söguágrip um hús við Lækjargötu í Innbænum á Akureyri.
- Spítalavegur Hús sem ég hef fjallað um við Spítalaveg sem liggur milli Innbæjar og S-Brekku
Miðbær
- Hafnarstræti: Miðbær Hús sem ég hef fjallað um í Miðbæjarhluta Hafnarstrætis
- Ráðhústorg Ráðhústorg 1-5.
- Skipagata Hús sem ég hef fjallað um, við Skipagötu
Glerárþorp
- Glerárþorp Býli og önnur hús í Glerárþorpi
Eyjafjarðarsveit
- Freyvangur Umfjöllun um félagsheimilið Freyvang Eyjafjarðarsveit (Öngulsstaðahreppi)
- Laugarborg Umfjöllun um félagsheimilið Laugarborg Eyjafjarðarsveit (Hrafnagilshreppi)
- Sólgarður Umfjöllun um félagsheimilið Sólgarð Eyjafjarðarsveit (Saurbæjarhreppi)
- Þighúsið á Hrafnagili Umfjöllun um fyrrum félagsheimilið og þinghúsið á Hrafnagili
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.6.): 16
- Sl. sólarhring: 46
- Sl. viku: 537
- Frá upphafi: 450059
Annað
- Innlit í dag: 13
- Innlit sl. viku: 316
- Gestir í dag: 13
- IP-tölur í dag: 13
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar